Boðar byltingu í rappinu - segir strákunum að passa sig Erla Hlynsdóttir skrifar 10. maí 2012 16:38
Nadia boðar til byltingar í rappheimum á Íslandi. Hún er að senda frá sér sitt fyrsta lag þar sem hún beinir því til rappara sem ala á kvenfyrirlitningu, að passa sig. Þórdís Nadia Semichat hefur jafnan mörg járn í eldinum, er Íslandsmeistari í magadansi, uppistandari og barþjónn. Nýlega fékk hún til liðs við sig Redd lights, Alvíru og leikstjórann Eilíf Örn Þrastarson til að gera ögrandi myndband við ekki síður ögrandi textann, sem hún samdi sjálf, við rapplagið „Passaðu þig." „Textinn er í raun bara eitt stórt fokk-jú-merki til allra rapparanna sem hafa verið að rappa um konur og hlutgera þær og vera með kvenfyrirlitningu í textunum sínum," segir Nadia í samtali við Stöð 2. Henni finnst rappsenan vera of karllæg. „Það er bara svo rosalega mikið sem gengur út á að reykja gras, ríða stelpum og í raun bara hlutgera þær þannig, að bara tala um einn líkamspart af þeim, og þannig er þetta líka í myndböndunum," segir hún. Meðal áhrifavalda Nadiu er hin umdeilda MIA, söngkonan Lauryn Hill og hin íslenska Cell 7 sem margir þekkja betur sem Rögnu úr Subterranean. Hún hefur lengi hlustað á rapp en blöskrar margir rapptextar. „Þetta byrjaði þannig að ég fékk lánaðan iPod hjá 15 ára stelpu. Hún var með fullt af íslensku rappi og mér hreinlega blöskraði svolítið við að hlusta á textana, og að það séu fimmtán ára krakkar, og jafnvel yngri, sem eru að hlusta á þetta," segir Nadia.„Menningin elur líka upp börn" Henni finnst mikilvægt að tónlistarmenn sýni ábyrgð. „Þessir rapparar koma oft fram og segja að þeir séu ekki að ala upp börnin, foreldrarnir geri það. Mér finnst samt að það eigi að taka einhverja ábyrgð því poppmenning er svo áhrifarmikil. Menningin elur líka upp börn," segir hún. Myndbandið í heild sinni verður frumsýnt á Bakkus klukkan níu í kvöld. Hér má sjá myndskeið úr kvöldfréttum Stöðvar 2 um málið.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira