Endurskoða reglur um hælisleitendur 11. maí 2012 08:00 Drengirnir tveir komu með fölsuð skilríki til landsins í apríl. Myndin tengist fréttinni ekki. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hegðaði sér samkvæmt lögum, reglum og hefðum þegar ákveðið var að ákæra tvo marókóska drengi fyrir að koma hingað til lands með fölsuð vegabréf. Þetta sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi í gær. Hann sagði hins vegar að þessar reglur og hefðir þyrfti að skoða, því þar væru brotalamir. „Ég hef miklar efasemdir um að þeir eigi að sæta ákærumeðferð eins og hefðin hefur skapast fyrir hér en þetta eru mál sem við erum öll með til endurskoðunar í ráðuneytinu,“ sagði Ögmundur jafnframt. Drengirnir tveir komu hingað til lands í síðasta mánuði og framvísuðu fölsuðum vegabréfum. Þeir segjast vera fimmtán og sextán ára gamlir. Þeir voru dæmdir í þrjátíu daga fangelsi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar sátu þeir inni í þrjá sólahringa en í samtali við Stöð 2 í gær sagði annar drengjanna að þeir hefðu setið inni í níu daga. Eftir fangelsisdvölina var annar þeirra fluttur á fósturheimili og hinn á Fit-hostel, þar sem hælisleitendur sem bíða úrlausnar sinna mála dvelja yfirleitt. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum sendi frá sér tilkynningu á miðvikudag vegna máls þeirra þar sem kom fram að grunur léki á því að þeir væru í raun eldri en þeir segðust vera. Íslensk landsnefnd UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, benti í gær á það að í dómnum yfir þeim er gengið út frá því að þeir séu fimmtán og sextán ára. „Þeir eru því dæmdir sem börn. Liggi vafi á aldri vegalausra barna sem hingað til lands leita leggur UNICEF auk þess áherslu á að aldur þeirra verði ávallt túlkaður þeim í hag, þar til annað hefur verið leitt í ljós,“ segir í yfirlýsingu UNICEF. Samtökin hvöttu jafnframt stjórnvöld til þess að fara eftir Barnasáttmála og Flóttamannasamningi SÞ í málefnum hælisleitenda á barnsaldri. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagðist á Alþingi í gær efast um að þessir sáttmálar hefðu verið virtir í máli drengjanna. Áður hafði Ögmundur sagst telja að flóttamannasamningurinn hafi ekki verið brotinn. Nefnd um endurskoðun á löggjöf um flóttamenn og hælisleitendur er að störfum og segir Ögmundur vonir standa til að drög að nýrri löggjöf verði tilbúin í haust, þar sem ýmsar réttarbætur verði gerðar. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira