Svavar Örn ánægður - slaufan á Jónsa samt eins og smekkur Boði Logason skrifar 10. maí 2012 21:35 Svavar Örn telur að Gréta Salóme og Jónsi muni standa sig vel í Aserbaídjan. mynd/Vilhelm „
Mér líst alveg rosalega vel á þau. Þetta er fallegt og þjóðlegt og það er gaman að sjá að það er engin flugeldasýning í gangi," segir Svavar Örn Svavarsson, hágreiðslumaður og tískulögga, um klæðnað Jónsa og Grétu Salóme sem keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision sem fram fer í Aserbaídsjan eftir rúmar tvær vikur. Þau opinberuðu fatnaðinn sem þau ætla að klæðast í dag en Rebekka Ingimundardóttir og Elma Bjarney Guðmundsdóttir eiga heiðurinn að honum. „Mér finnst klæðnaðurinn henta laginu mjög vel. Ég er voðalega ánægður með að Gréta haldi sig við að vera þjóðleg en ég þarf að hugsa þessa slaufu á Jónsa aðeins betur, það er eins og hann sé með smekk. Hann er samt rosalega flottur eins og alltaf. Þau eru bæði svo fit og flott og bera allan klæðnað svo vel, það væri alveg sama í hvað þau myndu fara þau væru alltaf glæsileg," segir Svavar.Glæsileg!„Mér finnst gaman að því þegar það er verið að taka peysufötin og þjóðbúninginn og poppa hann aðeins upp. Það er gaman að tengja klæðnaðinn við Ísland og ánægður með að þau haldi sig við upprunalega „lúkkið". Ég sannfærður um að þetta gyllta í hálsinum á Jónsa muni koma vel út í ljósunum úti. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum áður á Eurovision, þetta er ekkert smá ljósashow." Spurður hvort að íslenskir þátttakendur hafi áður verið í þjóðlegum búningum nefnir Svavar kjólinn hennar Jóhönnu Guðrúnar sem dæmi. „Það hefur ekki verið mikið um að íslenskir keppendur hafi verið í þessum þjóðlega stíl," segir hann og bendir á klæðnaður keppenda geti skipt miklu máli. „Það hefur oft á tíðum verið þannig en eins og við sáum með Alexander Rybak, þá var hann bara í svörtum buxum og hvítri skyrtu." Og Svavar hefur mikla trú á Jónsa og Grétu Salóme. „Ég held að okkur muni bara ganga mjög vel, lagið er svolítið þjóðlegt, en þrátt fyrir það er það kraftmikið og Eurovision-legt. Ég hef reyndar alltaf farið út með því hugarfari að við værum að fara vinna, eða allavega ganga mjög vel. Ég held að þetta muni bara ganga mjög vel hjá þeim."
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira