Segja herbúðasnið slæmt - hafa samt meiri áhyggjur af umferðinni 10. maí 2012 09:55 Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vg, og Torfi Hjartarson, fulltrúi Vg í skipulagsráði. „
Í bókuninni er líka gefið til kynna að líkamsrækt með herbúðasniði eigi lítið erindi í dalinn og dregið fram að líkamsræktarstöð á þessum stað fylgir mikil umferð bíla og rík þörf fyrir stæði. Þetta bílakraðak er auðvitað mesta áhyggjuefnið," skrifa fulltrúar Vg í skipulagsráði Reykjavíkurgborgar, þau Torfi Hjartarson og Sóley Tómasdóttir, í grein sem birtist á Vísi í dag. Þar útskýra þau bókun sem flokkurinn lagði fram á fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar fyrir skömmu, en þar mótmæltu þau meðal annars því að líkamsræktarstöðin Boot Camp fengi aðstöðu í dalnum, en flokkurinn taldi yfirbragð líkamsræktarstöðvarinnar með full miklu herbúðasniði. Í greininni útskýra þau á að fyrirsjáanleg aukin umferð tengdri líkamsræktarstöðinni sé verulegt áhyggjuefni. Þannig skrifa þau: „Engar upplýsingar liggja fyrir um væntanlega umferð tengda starfseminni og lélegar tengingar við almenningssamgöngur eru við svæðið." Þau standa við gagnrýni sína á hernaðartengingu Bott Camp og skrifa: „Þessi gagnrýni okkar Vinstri grænna þarfnast varla frekari skýringa en til frekari skemmtunar fyrir þá sem hlógu sig hása að þeirri hugmynd að líkamsrækt undir merkjum Boot Camp minni á herbúðir má segja frá því að í ensk-íslenskri orðabók segir klippt og skorið að samsetta orðið boot camp merki æfingabúðir fyrir nýliða í flota eða landgönguliði Bandaríkjanna." Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. DV greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Í frétt DV kom jafnframt fram að kaupin væru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. 7. maí 2012 14:00 Brandarinn um Boot Camp Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárdal finnst sprenghlægileg sú hugmynd að starfsemin minni með einhverju móti á herþjálfun eða herbúðir. Heimdellingar rjúka upp til handa og fóta en taka svolítið annan pól í hæðina, þeim finnst það himinhrópandi firring, að Vinstri græn skuli fetta fingur út í svona líkamsrækt sem aðrar þjóðir og voldugri en við Íslendingar hafa notað til að efla heilsu hermanna! 10. maí 2012 06:00 Sóley búin að prófa Boot Camp: "Takk samt fyrir boðið" "Ég er búin að prófa Boot Camp, ég gerði það árið 2007. Þannig takk samt fyrir boðið, ég er í fínu formi þrátt fyrir að vera ekki hjá þeim," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna í borgarstjórn. Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eiganda Boot Camp, skoraði á Sóleyju að koma og prufa einn tíma hjá þeim í samtali við Vísi í dag. 7. maí 2012 20:36 Eigandi Boot Camp býður Sóleyju í prufutíma Boot Camp er bara venjuleg líkamsræktarstöð og á ekkert skylt við hernað, segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eigenda Boot Camp, í samtali við Vísi. Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. Telja VG að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkasrækt með herbúðarsniði. 7. maí 2012 16:23 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira
Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. DV greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Í frétt DV kom jafnframt fram að kaupin væru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. 7. maí 2012 14:00
Brandarinn um Boot Camp Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárdal finnst sprenghlægileg sú hugmynd að starfsemin minni með einhverju móti á herþjálfun eða herbúðir. Heimdellingar rjúka upp til handa og fóta en taka svolítið annan pól í hæðina, þeim finnst það himinhrópandi firring, að Vinstri græn skuli fetta fingur út í svona líkamsrækt sem aðrar þjóðir og voldugri en við Íslendingar hafa notað til að efla heilsu hermanna! 10. maí 2012 06:00
Sóley búin að prófa Boot Camp: "Takk samt fyrir boðið" "Ég er búin að prófa Boot Camp, ég gerði það árið 2007. Þannig takk samt fyrir boðið, ég er í fínu formi þrátt fyrir að vera ekki hjá þeim," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna í borgarstjórn. Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eiganda Boot Camp, skoraði á Sóleyju að koma og prufa einn tíma hjá þeim í samtali við Vísi í dag. 7. maí 2012 20:36
Eigandi Boot Camp býður Sóleyju í prufutíma Boot Camp er bara venjuleg líkamsræktarstöð og á ekkert skylt við hernað, segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eigenda Boot Camp, í samtali við Vísi. Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. Telja VG að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkasrækt með herbúðarsniði. 7. maí 2012 16:23