Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telur þjóðina hafa minnkandi tiltrú á ríkisstjórninni Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson var gestur í útvarpsþættinum Sprengisandi ásamt Benedikt Jóhannessyni, ritstjóra Vísbendingar. Þeir voru beðnir um álit sitt á stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar. 5.2.2012 13:24
Hlutfall kvenna með rofna PIP púða hærra hér á landi Velferðarráðherra segir ekkert komið fram sem skýrir hvers vegna hlutfall kvenna með rofna PIP púða virðist vera mun hærra hér en í öðrum löndum. Ráðherrann segir að mörgum spurningum sé enn ósvarað. 5.2.2012 12:44
Plus500 býður fjárfestum að veðja á verðbreytingar Bresk vefsíða sem býður fjárfestum upp á skuldsetta stöðutöku í hlutabréfum, hrávöru og gjaldmiðlum án þess að raunveruleg viðskipti liggi að baki stöðutökunni reynir nú að lokka íslenska fjárfesta í viðskipti. Fjármálaeftirlit erlendis hafa varað við síðunni. 5.2.2012 12:10
Jón Ásgeir hafnar ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum aðaleigandi Baugs, hafnar því að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á falli Glitnis. Honum finnst hins vegar miður að sjóðirnir hafi tapað á Baugi. Lífeyrissjóðirnir töpuðu samtals 77 milljörðum króna á félögum tengdum Baugi. 5.2.2012 12:04
Lífeyrissjóðirnar fjármagna Hverahlíðavirkjun Fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Björgvin G. Sigurðsson, upplýsti á opnum fundi í Árborg í gær að lífeyrissjóðirnir myndu sjá um að fjármagna Hverahlíðavirkjun á Hellisheiði, ekki Orkuveita Reykjavíkur. 5.2.2012 11:41
Sjö látnir eftir bílasprengjuárás í Afganistan Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir bílasprengjuárás í borginni Kandahar í Afganistan í dag. 5.2.2012 11:26
Kvikmyndargerðarmenn létust í þyrluslysi í Ástralíu Tveir kvikmyndargerðarmenn létust í þyrluslysi í austurhluta Ástralíu í nótt. Mennirnir voru sérfræðingar í neðansjávarmyndatöku og unnu að heimildarmynd fyrir National Geographic. 5.2.2012 11:02
LV hafnar ásökunum rannsóknarnefndar Lífeyrissjóður verzlunarmanna hafnar því að hann hafi brotið lög með gerð gjaldmiðlavarnarsamninga en í skýrslu rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna er slíkt gefið í skyn þar sem segir að sjóðurinn hafi með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008 aukið áhættu sjóðsins - þvert á lögbundið hlutverk sitt. 5.2.2012 10:30
Tillaga um búsetuskírteini lögð fram á norska þinginu Tillaga hefur verið lögð fram á norska þinginu þess efnis að innflytjendum, utan ríkja Evrópu, verði gert skylt að hafa ávallt meðferðis búsetuskírteini. 5.2.2012 10:30
Sveitarfélög í erfiðleikum með ákvæði sveitastjórnarlaga Sum sveitarfélög munu eiga erfitt með að uppfylla ákvæði nýrra sveitastjórnarlaga um skuldsetningu að mati starfshóps sem innanríkisráðherra skipaði í haust til að meta gildi fjármálareglna fyrir sveitarfélög. 5.2.2012 10:30
Skíðasvæði opin í dag Skíðasvæðin í Oddsskarði og Hlíðarfjalli verða opin í dag á milli klukkan tíu og fjögur síðdegis, en opið er til fimm í Bláfjöllum. 5.2.2012 09:35
Mitt Romney sigraði í Nevada Mitt Romney, fyrrverandi fylkisstjóri Massachusetts, sigraði í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar í Nevada í nótt. 5.2.2012 09:30
Ákvörðun Rússlands og Kína "svívirðileg" Aðildarríki Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna harma ákvörðun Rússlands og Kína um að hafa beitt neitunarvaldi sínu í gær þegar ráðið fjallaði um ályktun varðandi ástandið í Sýrlandi. 5.2.2012 09:15
Samgöngur farnar úr skorðum í Bretlandi Snjó hefur kyngt niður í Bretlandi og liggja samgöngur þar víða niðri. Ökumenn hafa neyðst til að skilja bíla sína eftir á hraðbrautum vegna snjóþungans og hafa björgunarsveitarmenn á sérútbúnum bifreiðum þurft að kalla eftir aðstoð. 5.2.2012 09:00
Bjarga vélsleðamanni í fjallshlíðum Esju Sleðahópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú á leið í útkall í fjallshlíðum Esju. 5.2.2012 14:49
Meirihutaviðræður halda áfram í dag Ómar Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í Kópavogi, segir að meirihlutaviðræður í Kópavogi muni halda áfram í dag. 5.2.2012 14:35
Fljúgandi fólk yfir New York Auglýsingabrella hefur vakið mikla athygli á myndbandavefsíðunni YouTube. Myndbandið sýnir nokkrar fjarstýrðar flugvélar í mannslíki svífa yfir götum New York í Bandaríkjunum. 4.2.2012 23:00
Féll í kælilaug kjarnaofns Starfsmaður í kjarnorkuveri í Kaliforníu varð fyrir þeirri óheppilegri reynslu að detta ofan í kælilaug kjarnaofns. Slysið átti sér stað þegar hann teygði sig í vasaljós sem hann hafði misst. 4.2.2012 22:30
Tíu ára stúlka uppgötvaði nýja sameind Tíu ára gömul stúlka í Missouri í Bandaríkjunum uppgötvaði nýja sameind eftir að kennari sýndi henni grunnatriðin í sameindafræði. 4.2.2012 22:00
Björt framtíð stofnuð í dag Nýtt stjórnmálaafl, frjálslynt, grænt og alþjóðlega sinnað var formlega stofnað í dag. Formenn flokksins eru tveir og í stjórn hans situr meðal annarra Borgarstjórinn í Reykjavík. 4.2.2012 19:29
Landsbankinn hagnast á hækkandi verðlagi Misvægi í verðtryggðum eignum og skuldum Landsbankans gerir það að verkum að bankinn hagnast um meira en milljarð í hvert skipti sem verðlag hækkar um prósent. Misvægið hefur aukist í Landsbankanum frá hruni, meðan hinir tveir hafa dregið úr því. 4.2.2012 18:54
Enginn tók eftir líki karlmanns á netkaffihúsi í Tævan Lík 23 ára karlmanns í Tævan lá ósnert klukkutímum saman á netkaffihúsi. Maðurinn hafði verið að spila tölvuleik og meðspilarar hans virtust ekki hafa tekið eftir því að hann væri í raun látinn. 4.2.2012 18:15
Rússland og Kína beittu neitunarvaldi í Öryggisráðinu Rússland og Kína beittu neitunarvaldi sínu þegar fulltrúar í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna greiddu atkvæði um ályktun varðandi ástandið í Sýrlandi. 4.2.2012 17:50
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna að Facebook er meira ávanabindandi en áfengi og tóbak. Þó eru kynlíf og svefn með sterkara hald á mannfólkinu. 4.2.2012 17:36
Aumingja Ísland, til hamingju! Brot úr kvikmyndinni Aumingja Ísland var birt á vefsíðunni YouTube fyrr í vikunni. Myndin er framleidd af kvikmyndagerðarmanninum Ara Alexander Ergis Magnússyni. 4.2.2012 17:07
Hræddar um að læknar skrifi ekki upp ísetningu nýrra brjóstapúða Konur með PIP púða hafa áhyggjur af því að læknar muni ekki skrifa upp á ísetningu nýrra brjóstapúða fyrir þær í aðgerðum á Landspítalanum, þar sem þeir vonist sjálfir eftir viðskiptum þeirra síðar meir. 4.2.2012 19:33
Skilanefndarmenn með 1.650.000 á mánuði Skilanefndarmenn þurfa að reikna sér tvöfalt hærri laun en þeir sérfræðingar sem hæst laun hafa í sjálfstæðum rekstri á öðrum sviðum. Gert er ráð fyrir að þeir hafi að minnsta kosti 1650 þúsund krónur á mánuði eftir hækkun á reiknuðu endurgjaldi. 4.2.2012 18:46
Ferja strandaði undan strönd Ítalíu Rúmlega 260 manns var bjargað úr ítölsku ferjunni Shardon eftir að hún strandaði undan strönd Ítalíu í nótt. 4.2.2012 16:55
Öryggisráðið fundar um Sýrland Talið er að 200 hafi látist í sprengjuárásum í borginni Homs í Sýrlandi í dag. Andspyrnuhópar segja að yfirvöld þar landi hafi staðið að baki árásinni. 4.2.2012 15:59
Mínútuverð á símtölum milli Evrópulanda lækkar Mínútuverð á símtölum ferðamanna í Evrópu hefur farið stiglækkandi síðustu ár. Tilefni lækkunarinnar er áætlun Evrópusambandsins um að lækka símakostnað milli aðildarlanda sinna. 4.2.2012 15:39
Hreyfingin tilnefnir Bradley Manning til Nóbelsverðlauna Þinghópur Hreyfingarinnar hefur tilnefnt Bradley Manning til friðarverðlauna Nóbels. Manning er sakaður um að hafa lekið þúsundum skjala til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks og bíður nú þess að verða dreginn fyrir herdómstól í Bandaríkjunum. 4.2.2012 16:16
Nýr ritstjóri Eyjunnar ráðinn Stjórnmálafræðingurinn Magnús Geir Eyjólfsson hefur verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar. Magnús tekur við af Karli Th. Birgissyni en hann lét störfum hjá Eyjunni nýlega. 4.2.2012 15:19
Flugferðir um Heathrow felldar niður vegna snjókomu Von er á mikilli snjókomu í Lundúnum í nótt og hefur tæpum þriðjungi flugferða sem áttu að fara um Heathrow flugvöllinn verið frestað. 4.2.2012 15:01
11 látnir eftir átök í Kaíró Ellefu létust og 2.500 særðust í átökum mótmælenda og öryggissveita í Kaíró í Egyptalandi í dag. 4.2.2012 14:57
Seinni ferð Herjólfs fellur niður Seinni ferð Herjólfs fellur niður í dag vegna veðurspár. Spáin gerir ráð fyrir 28m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð. 4.2.2012 14:26
Starfsemi Bitru færist yfir á Sogn Nú stendur til að breyta húsnæðinu á Sogni í Ölfusi í opið fangelsi. Þetta tilkynnti fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Björgin G. Sigurðsson á opnum fundi Samfylkingarinnar í Árborg í morgun. 4.2.2012 14:02
Uglurnar í Laugardalnum flúðu vetrarhörkur Líffræðingur segir að uglurnar sem nú hafa hópast saman í Laugardalnum hafi líklega flúið vetrarhörkur og villst af leið yfir norðursjó. 4.2.2012 13:33
Rússar mótmæla í frosthörkum Tugir þúsunda mótmæltu í Moskvu í dag en þess er krafist að Vladimír Pútín dragi forsetaframboð sitt til baka. Skipuleggjendur mótmælanna segja að 120.000 manns hafi verið á mótmælunum. 4.2.2012 13:12
Mikil flóð í Ástralíu - þúsundir eru strandaglópar Mörg þúsund íbúar í suðurhluta Ástralíu komast hvorki lönd né strönd vegna mikilla flóða þar í landi og hafa þúsundir neyðst til að yfirgefa heimili sín. Hugrún Halldórsdóttir. 4.2.2012 12:19
Manning mun fara fyrir herdómstól Bandaríski herinn hefur staðfest að Bradley Manning, greiningasérfræðingnum sem gefið að sök að hafa lekið þúsundum skjala sem innihéldu mikilvægar öryggisupplýsingar til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, verði sóttur til saka fyrir herdómstólum, að því er kemur fram á fréttavef BBC. 4.2.2012 11:59
Tveir sjúklingar fluttir með sjúkraflugi Flogið var sjúkraflug til Grænlands á fimmtudaginn. Sérútbúin flugvél Mýflugs flaug þá til Ammassalik þar sem tveir sjúklingar biðu. Aðeins var hægt að flytja einn sjúkling í einu og þurfti því að fara tvær ferðir. 4.2.2012 11:46
Erilsöm nótt í höfuðborginni Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur. Sú fyrri átti sér stað við Nonnabita á Hafnarstræti en þar hafði stúlka slegið mann í andlitið svo á sást. Gerandinn flúði af vettvangi og eru óljósar upplýsingar um hann. Sá sem var sleginn ætlar ekki að kæra. 4.2.2012 11:18
Liðsmaður Rauður Khemaranna dæmdur í lífstíðarfangelsi Dómstóll Kambódíu hafa dæmt fyrrverandi foringja Rauðu Khemaranna í lífstíðarfangelsi. Kaing Guek Eav er 69 ára gamall og sá um skipulagningu og framkvæmd fjölda ódæðisverka í Kambódíu. 4.2.2012 11:03
Stóra systir merkir Goldfinger með Gillz-límmiðum Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir hengdi í dag límmiða á dyr skemmtistaðarins Goldfinger í Kópavogi. Gulur borði var einnig dreginn um innganginn að hætti lögreglumanna. 4.2.2012 10:42
Pústrar og ölvunarakstur í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að skemmtistaðnum Spot í Kópavogi vegna slagsmála um tvöleytið í nótt. Einn var handtekinn eftir áflogin og hann vistaður í fangageymslu. 4.2.2012 10:10