Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðalhetjur Finding Nemo í útrýmingarhættu Hópur vísindamanna frá Kanada og Bandaríkjunum hefur framkvæmt rannsókn á lífríki kóralrifa. Þeim til hliðsjónar var teiknimyndin vinsæla frá Pixar - Finding Nemo. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að 16% þeirra tegunda sem eru í teiknimyndinni eru nú í bráðri útrýmingarhættu. 13.12.2011 11:28
Gríðarlegar skemmdir á húsinu Gríðarlegar skemmdir urðu á húsnæðinu við Fagrahjalla í Kópavogi sem kviknaði í í gærkvöld, eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði. Fram hefur komið brenndist kona alvarlega í eldinum og liggur hún nú á Landspítalanum. Konan var ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. Hann logaði í stofu á eftir hæð og eru eldsupptök rakin til arins sem er þar. 13.12.2011 11:15
Skattamálið reynist Venstre harla erfitt Grunur um óréttmæt afskipti stjórnar Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, af skattamálum núverandi forsætisráðherra eru óðum að snúast upp í martröð fyrir flokk Rasmussens, hægriflokkinn Venstre sem nú er í stjórnarandstöðu. 13.12.2011 11:00
Krefjast afsökunarbeiðni frá Bandaríkjunum Yfirvöld í Íran neita að láta bandaríska njósnaflaug af hendi þrátt fyrir kröfu Bandaríkjahers. 13.12.2011 10:55
Fjölskylda fannst látin í Leeds Lögreglan í Leeds í Bretlandi hefur hafið morðrannsókn eftir að fjölskylda búsett í úthverfi borgarinnar fannst látin. Hjónin Richard og Clair Smith fundust látin í svefnherbergi sínu ásamt sonum þeirra. 13.12.2011 10:28
Slapp ótrúlega vel þegar jeppi ók yfir hana Fimm ára gömul kínversk telpa slapp ótrúlega vel þegar jeppi ók yfir hana á dögunum. Öryggismyndavél náði atvikinu á filmu sem hefur vakið mikla athygli um allan heim. Svo virðist sem stelpan hafi verið að rífast við fjölskyldu sína og vill ekki halda áfram þar sem þau eru að ganga eftir götu. Eftir nokkuð þref virðist sem konurnar sem eru með henni ákveði að skilja hana eftir, væntanlega til að kenna henni lexíu. 13.12.2011 10:21
Situr í fangelsi næstu áratugi Manuel Noriega, fyrrverandi forseti Panama, var fluttur heim til Panama í gær eftir 22 ára fjarveru. 13.12.2011 10:00
Skóm fleygt að Ahmadinejad Atvinnulaus maður fleygði skóm sínum í átt að Mahmoud Ahmadinejad, forseta Íran, í gær. Samkvæmt fréttamiðlum í Íran var maðurinn að mótmæla því að hafa ekki fengið atvinnuleysisbætur. 13.12.2011 09:12
Skattleggja hagnað en lækka skatt á laun Fjársýsluskattur á lífeyrissjóði verður felldur út úr frumvarpi fjármálaráðherra um ráðstafanir í ríkisfjármálum, bandorminum svokallaða. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar samþykkti umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu í gærkvöld. Það verður til umræðu á þingi í dag. 13.12.2011 09:00
Óslóartréin eignast afkomendur á Íslandi Oslóartrén, sem prýtt hafa Austurvöll í 60 ár haf nú eignast afkomendur í Elliðaárdal, þar sem nokkur lítil Oslóartré vaxa nú og dafna. 13.12.2011 07:55
Fikt með úðabrúsa endaði með sprengingu Karlmaður á þrítugsaldri, hafði næstum farið sér að voða og hlaut fyrsta og annars stigs bruna þegar hann var að fikta með própangas og kveikti í lakkúðabrúsum, sem sprungu og sköpuðu eldhaf. 13.12.2011 07:47
Kanadamenn segja sig frá Kyoto bókuninni Stjórnvöld í Kanada ætla að segja sig formlega frá Kyoto bókuninni um niðurskurð á gróðurhúsalofttegundum. 13.12.2011 07:44
Þrálát bræla stoppar loðnuveiðarnar Flest loðnuskipin eru í höfn vegna þrálátrar bræðu á Grænlandssundi, þar sem helsta veiðivonin er. 13.12.2011 07:42
Yfir 5.000 hafa fallið í Sýrlandi Fjöldi fallinna í mótmælunum og uppreisninni í Sýrlandi er kominn yfir 5.000. Þetta segja talsmenn Sameinuðu þjóðanna. 13.12.2011 07:40
Enn talsverður kuldi á landinu Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr frosti víðast hvar á landinu mældist rúmlega 12 stiga frost í Húsafelli og tæplega 12 stiga frost á Hvanneyri í nótt. 13.12.2011 07:39
Kona alvarlega brennd eftir eldsvoða í Kópavogi Kona liggur alvarlega brennd á Landsspítalanum eftir að hún komst af sjálfsdáðum út úr brennandi raðhúsi við Fagrahjalla í Kópavogi um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. 13.12.2011 07:27
Hluti af Frozen Planet tekinn upp í dýragarði Í ljós er komið að hluti af hinni áhrifamiklu sjónvarpsþáttaröð Frozen Planet sem BBC gerði var tekinn upp í dýragarði í Hollandi en ekki á auðnum Norðurpólsins. 13.12.2011 07:25
Danir vilja þjóðaratkvæði um samkomulag ESB Meirihluti Dana vill að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um samkomulagið sem náðist á leiðtogafundi Evrópusambandsins í lok síðustu viku. 13.12.2011 07:17
Segir skatt vegna skuldamála styrkja lífeyrissjóði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir lífeyrissjóðina njóta góðs af skattlagningu á sjóðina. Hún sé hluti af aðgerðum til styrktar skuldugum heimilum og sjóðirnir muni njóta góðs af betri stöðu heimilanna. 13.12.2011 06:00
Flestir ætla að eyða svipað miklu í jólagjafir og í fyrra Landsmenn ætla ýmist að eyða svipuðum upphæðum og í fyrra til jólagjafakaupa, eða eyða lægri upphæðum en fyrir síðustu jól, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 13.12.2011 06:00
Með dóp og bjúghníf á jólahlaðborði Lögreglumenn úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu á laugardagskvöld athygli tveimur karlmönnum sem sátu í stolnum bíl fyrir utan klúbbhús Vítisengla í Hafnarfirði. Mennirnir voru handteknir og samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins kvaðst annar þeirra hafa verið á jólahlaðborði sem Vítisenglar stóðu fyrir þá um kvöldið í höfuðstöðvum sínum. 13.12.2011 05:45
Krydda tómatarækt með hestasýningum „Nýja gróðurhúsið er hugsað fyrir stóraukna tómatarækt en einnig móttöku fyrir ferðamenn,“ segir Knútur Rafn Ármann, garðyrkjubóndi á Friðheimum í Reykholti, sem er að ganga frá nýju 2.200 fermetra gróðurhúsi. Eftir stækkun er rafmagnsnotkun býlisins á við þrjú þúsund manna bæjarfélag. 13.12.2011 05:30
Henti 18 kílóa borði í konu Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 13.12.2011 05:00
Pólitíkusar heykjast á samkomulagi Ekki tókst að ná lagalega bindandi samkomulagi allra þjóða um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda í Durban. Engu að síður skuldbundu ríki sig til að ná saman um samning sem tæki gildi 2020. Umhverfissinnar hafa áhyggjur af því að það verði of seint. Kýótó-bókunin rennur út á næsta ári. 13.12.2011 04:45
Jólasveinarnir mæta á safnið Stekkjarstaur mætti í heimsókn á Þjóðminjasafnið í gærmorgun, en hann er fyrsti jólasveinninn og kom til byggða í fyrrinótt. Fjöldinn allur af börnum tók á móti Stekkjarstaur. 13.12.2011 04:00
Ofbeldisvarnaráði verði komið á fót Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi eru í engu samræmi við það hversu mikil ógn ofbeldið er við heilsu og réttindi barna á Íslandi. Þetta segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Stofnunin hefur gert ráðamönnum grein fyrir hugmyndum sínum um að stofnað verði ofbeldisvarnaráð hér á landi sem myndi sinna forvörnum gegn ofbeldi með áherslu á kynferðislegt ofbeldi, eða að forvörnum verði fundinn staður hjá viðeigandi stofnun. 13.12.2011 03:45
Víðtæk áhrif af banni við mismunun kynja Bann við mismunun kynja við tryggingaútreikninga mun hafa margvísleg neikvæð áhrif á neytendur, tryggingamarkaðinn og samfélagið í heild sinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem Evrópusamtök vátryggjenda hafa látið vinna fyrir sig. Samkvæmt skýrslunni, sem unnin var af greiningarfyrirtækinu Oxera og kynnt í síðustu viku, er fyrirséð að breytingin muni valda því að lífeyrisgreiðslur skerðist um fimm prósent, líftryggingariðgjöld kvenna hækki um þrjátíu prósent og iðgjöld bílatrygginga ungra kvenna hækki um ellefu prósent. 13.12.2011 03:15
Köld excel-skjöl segja ekkert „Kaldir meðaltalsútreikningar í excel-skjölum segja ekkert til um aðstæður á einstökum stöðum,“ segir bæjarstjórn Grundarfjarðar, sem hvetur Heilbrigðisstofnun Vesturlands til að skera niður í öðru en heilsugæslunnni. 13.12.2011 03:15
Segja „óraunhæfa“ tillögu vonbrigði „Tillagan var algjörlega óraunhæf, fól í sér skref aftur á bak frá undanförnum fundum og olli íslenskum stjórnvöldum því miklum vonbrigðum,“ segir Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslendinga í viðræðum um makrílveiðar, um tillögu ESB og Noregs varðandi veiðarnar. 13.12.2011 03:00
Utanríkisráðherra til Íslands Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu, kemur til Íslands á morgun í boði Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. 13.12.2011 02:00
Segir almenning vera að vakna „Samfélagið er að vakna,“ sagði Mikhaíl Prokhorov, þriðji auðugasti maður Rússlands, þegar hann tilkynnti um framboð sitt til forsetakosninga í vor. 13.12.2011 01:00
Fyrirtæki lokuð og skólar tómir Sýrlendingar sýndu andstöðu sína gegn stjórnvöldum víða um land í gær með því að loka fyrirtækjum og senda börn sín ekki í skóla. 13.12.2011 00:30
Konur láti í sér heyra fyrir frelsi Ellen Johnson Sirleaf, Leymah Gbowee og Tawakkul Karman fengu friðarverðlaun Nóbels afhent í Ósló á laugardag. Konurnar þrjár hafa barist gegn misrétti, einræðisherrum og kynferðislegu ofbeldi í Líberíu og Jemen. Í ræðum sínum hvöttu þær kúgaðar konur heimsins til þess að rísa upp gegn yfirráðum karla. 13.12.2011 00:00
Kæfði unnustu sína í svefni Fyrrverandi kokkur varð unnustu sinni að bana eftir að hann sofnaði ofan á henni. 12.12.2011 23:30
93 ára gömul hjúkrunarkona sæmd heiðursorðu Bandaríkjahers 93 ára gömul hjúkrunarkona frá Belgíu hefur hlotið heiðursorðu Bandaríkjahers fyrir hugprýði. Augusta Chiwy, sem er af kongólskum ættum, kom hundruðum særðum Bandaríkjamönnum til bjargar í Ardennasókninni. 12.12.2011 23:00
Hulk Hogan: "Ég er ekki hommi" Leikarinn og glímukappinn Hulk Hogan vísar á bug fullyrðingum fyrrverandi eiginkonu sinnar um að hann sé samkynhneigður. Hún segir að Hogan hafi átt í ástarsambandi við kollega sinn Brutus Beefcake. 12.12.2011 22:30
Þurfti nokkra daga í frí - birti dánartilkynningu móður sinnar Maður í bænum Brookville í Pennsylvaníu birti dánartilkynningu móður sinnar. Hann lét yfirmann sinn síðan vita að móðir hans hefði fallið frá og vildi fá nokkra daga í frí. Móðir mannsins gekk síðan inn á skrifstofu blaðsins The Jeffersonian Democrat og sagðist vera á lífi. 12.12.2011 22:30
Einn minnsti fyrirburi veraldar kom öllum á óvart Hin 22 ára gamla Madeline Mann er búsett í Illinois-fylki í Bandaríkjunum. Hún er heiðursnemandi við háskólann í Augustana. Hún fæddist í júní árið 1989 - hún var minnsti fyrirburi veraldar. 12.12.2011 22:00
Tyggigúmmí eykur einbeitingu Þrátt fyrir að tyggigúmmí hafi í áraraðir verið bannað í skólastofum þá benda niðurstöður nýlegrar rannsóknar til að nemendur sem nota tyggigúmmí fyrir próf fái hærri einkunnir en aðrir. 12.12.2011 21:30
Eldsvoði og umferðaróhapp með skömmu millibili Tveir voru fluttir á spítala í kvöld. Annarsvegar var kona flutt á spítala eftir að eldur kom upp í íbúð í raðhúsi í Fagrahjalla á áttunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang en það tók slökkviliðið aðeins nokkrar mínútur að ráða niðurlögum eldsins. 12.12.2011 20:40
Uppljóstrun Alþingis eyðilagði fyrir sérstökum saksóknara Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir úrræði embættisins um að notast við símhleranir hafa eyðilagst eftir að það komst í hámæli í fjölmiðlum. Það var innanríkisráðherra sem upplýsti Gunnar Braga Sveinsson um hleranir embættsins síðasta sumar. Þar kom fram að sérstakur saksóknari notaðist við símhlustun í 72 tilvikum árið 2009. Eftir það gat embættið ekki notast við símhlustun við rannsóknir sínar. 12.12.2011 19:38
Snjóbrettaslysum fjölgað verulega hér á landi Snjóbrettaslysum hefur fjölgað hér á landi með auknum vinsældum brettanna. Rifbeinsbrot og áverkar á milta eru á meðal þess sem læknar sjá eftir slík slys. Yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum segir öryggisbúnað hafa bjargað lífum. 12.12.2011 19:30
Hjálpræðisherinn verður ekki með matarúthlutun Hjálpræðisherinn í Reykjavík hefur ákveðið að vera ekki með matarúthlutun í ár eins og síðastliðin ár. Ástæðan er bág fjárhagsstaða Hjálpræðishersins. Hjálpræðisherinn verður þó eftir sem áður með jólamat á aðfangadag og fangahjálp auk þess að veita heimilislausum mat á dagsetrinu á Eyjaslóð. 12.12.2011 14:34
Aðstandendur Skaupsins í vandræðum vegna Gillz Aðstandendur Áramótaskaupsins íhuga hvort atriði þar sem karakter Egils Einarssonar, eða Gillzenegger, kemur fyrir verði klippt úr næsta Skaupi. Ástæðan er sú staða sem Egill er í eftir að hann var ásakaður um að hafa beitt átján ára stelpu kynferðisofbeldi. Samkvæmt heimildum Vísis er um nokkur atriði að ræða þar sem karakter Egils kemur fyrir. 12.12.2011 13:16
Lil' Drac nýtur sín meðal mannfólksins Ávaxtaleðurblakan Lil' Drac var yfirgefinn af móður sinni eftir að dýragarðurinn sem hún bjó í var lokað. Samtökin Bat World Sanctuary komu honum til bjargar og tóku hann í fóstur. 12.12.2011 13:12