Fleiri fréttir

20. barnið andvana í móðurkviði - vildu ekki hætta í oddatölu

Hjónin Jim og Michelle Duggar áttu von á sínu 20. barni. Á fimmtudaginn fengu hjónin þær hörmulegu fréttir að barnið væri andvana í móðurkviði. Öll börn hjónanna byrja á bókstafnum joð og sagði Jim þau nýlega ákveðið nafnið á nýjasta meðlimi fjölskyldunnar.

Dæmdur fyrir kannabisræktun

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag mann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot en hann hafði í vörslu sinni 105 kannabisplöntur í ræktun og 150 grömm af kannabislaufum. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Auk kannabisafurðanna gerði lögreglan upptæka ræktunarlampa og fleiri áhöld sem notuð eru við framleiðslu kannabis.

Sveppamaður lá nakinn uppi í rúmi

Lögregla var kölluð að íbúðarhúsi á Selfossi aðfaranótt sunnudags vegna gruns um að þar væri maður sem ekki ætti þar að vera. Þegar lögreglumenn komu inn í íbúðina sáu þeir allsnakinn karlmann sem lá sofandi í sófa inni í stofu.

Býður sig fram gegn Pútín

Rússneski auðkýfingurinn Mikhail Prokhorov tilkynnti í dag að hann ætlaði að bjóða sig fram gegn Vladimír Pútín í forsetakosningunum á næsta ári.

Gifs fannst á Mars

Rannsóknarflakkari NASA hefur fundið ummerki um vatn á plánetunni Mars. Vísindamenn hjá NASA segja fundinn renna stoðum undir þá kenningu að vatn hafi eitt sinn flætt um plánetuna.

Landflóttaskeiðið orðið það lengsta í sögunni

Landflóttaskeiðið frá hruni er orðið það lengsta svo vitað sé í íslenskri þjóðarsögu, samkvæmt greiningu í tímaritinu Frjálsri verslun. Yfir sex þúsund íslenskir ríkisborgarar hafa farið frá landinu síðustu þrjú ár, umfram aðflutta.

Pútín viðstaddur opnun kjarnakljúfs

Forsætisráðherrann Vladimír Pútín sótti opnunarathöfn nýs kjarnakljúfs í Rússlandi í dag. Þetta var fyrsta opinbera erindagjörð hans síðan mótmælin hófust þar í landi á laugardaginn. Mótmælendur krefjast þess að framkvæmd þingkosninga þar landi verði rannsökuð en fregnir hafa borist af víðtæku kosningasvindli.

Grafalvarlegt mál ef menn yfirgefa slysavettvang

„Þetta er bara orðin spurningin um miskunnsama Samverjann,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð. Slökkviliðsmenn í Borgarbyggð urðu fyrir því á laugardag að maður tilkynnti bílveltu rétt við brúna við Borgarnes. Hann neitaði hins vegar að stöðva og bar því við að hann væri með börn í bílnum. Neyðarlínan þorði ekki annað en að kalla út tækjabíl ef ske kynni að menn væru fastir í bílnum.

Glæpatíðni langhæst í Eyjum

Vestmannaeyjar eiga met í skráðum lögbrotum á síðasta ári. Miðað við íbúatölu hefur lögreglan í Vestmannaeyjum sinnt flestum líkamsárásarmálum, fíkniefnabrotum, áfengislagabrotum og brotum gegn valdstjórninni, af öllum umdæmum landsins.

Aftur komin á toppinn

Söngkonan Amy Winehouse er á ný komin í efsta sæti vinsældarlistans í Bretlandi. Platan Lioness: Hidden Treasures kom út á mánudaginn í síðustu viku, rúmlega fjórum mánuðum eftir dauða hennar.

Rafmagn komið á í Eyjum

Allt rafmagn fór af í Vestmannaeyjum um klukkan tuttugu mínútur yfir í níu í morgun og varði það í rúman klukkutíma. Að sögn lögreglunnar í bænum fengust þau svör hjá HS Veitum að um bilun uppi á fastalandinu hafi verið að ræða. Þegar til stóð að gangsetja vararafstöð í bænum bilaði hún og því fór sem fór. Klukkan tuttugu og fimm mínútur í ellefu kom rafmagnið aftur á í bænum.

Skammgóður vermir - kuldaboli kemur aftur

Frostlaust hefur verið víða á landinu í morgun en svo var einnig í flestum byggðum landsins í gær, í fyrsta sinn frá því kuldakastið hófst í lok nóvember. Hitinn hefur sumstaðar skriðið nokkrar gráður yfir núllið.

Ísbirnir éta ungviði í meira mæli

Á ferðalagi sínu um Svalbarða náði ljósmyndarinn Jenny E. Ross áhrifamiklum myndum af fulltíða ísbirni drepa og éta bjarnarhún.

Ók fram á umferðarslys án þess að stansa

Ökumaður sem keyrði framhjá bíl sem hafði oltið í Borgarnesi á laugardaginn ákvað að keyra framhjá vettvangi án þess að stöðva bílinn og veita aðstoð. Maðurinn hringdi aftur á móti í Neyðarlínuna 112 og tilkynnti slysið.

Rafmagnslaust í Eyjum

Allt rafmagn fór af í Vestmannaeyjum um klukkan tuttugu mínútur yfir í níu í morgun. Að sögn lögreglunnar virðist vera sem öll eyjan sé rafmagnslaus og þar á bæ hafa menn engar upplýsingar um hvað veldur. Hjá HS Veitum fengust einnig þær upplýsingar að verið sé að vinna að viðgerð. Ekki sé hinsvegar ljóst af hverju bilunin stafar.

Fann rauðsprettu undir vélarhlífinni eftir ofsaveður

Íbúa í bænum Hirstshals brá heldur í brún þegar hann skoðaði bíl sinn á hafnarbakka bæjarins í morgun. Bíll hafði staðið á hafnarbakkanum síðan að ofsaveður skall á Jótlandi á föstudag.

Springsteen á Hróarskeldu - Björk mætir líka

Bandaríska rokkhetjan Bruce Springsteen, eða The Boss eins og hann er jafnan kallaður, kemur fram á Hróarskelduhátíðinni næsta sumar. Hann mun mæta með hljómsveit sína, E Street Band og koma fram á Appelsínugula sviðinu sem er stærsta svið hátíðarinnar.

Skaut lögreglumann til bana í Virginia Tech

Einn lögreglumaður féll í skotárás í Virginia Tech háskólanum í Virginíu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn síðastliðinn. Vígamaðurinn svipti sig lífi stuttu seinna.

Ofurölvi ók á bíl á rauðu ljósi

Ofurölvi ökumaður ók aftan á kyrrstæðan bíl sem beið á rauðu ljósi á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar um klukkan níu í gærkvöldi, og skjögraði fótgangandi af vettvangi.

Útkall vegna vatnsleka í Hafnarfirði

Árvökull blaðburðarmaður , sem var að bera út í íbúðahverfi í Hafnarfirði um sex leitið í morgun, sá hvar heitt vatn seytlaði undan þröskuldi á útihurð á einu húsinu.

Ekkert amaði að mönnunum sem fundust í gærkvöldi

Ekkert amaði að mönnunum fjórum, sem björgunarsveitir á Austurlandi leituðu að á Fljótsdalsheiði í gær, þegar þyrla Landhelgisgæslunnar fann þá í skála við Kollumúlavatn um sjö leitið í gærkvköldi.

Manuel Noriega fluttur í fangelsi í Panama

Manuel Noriega fyrrum einsræðisherra Panama var fluttur til heimlands síns frá Frakklandi í gærkvöldi. Við komuna til Panama var Noriega keyrður rakleiðis í fangaklefa.

Um 65% vilja ljúka viðræðum við ESB

Tveir af hverjum þremur landsmönnum vilja ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og setja samning í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Þriðjungur vill draga aðildarumsóknina til baka.

Sprenging í sushi-áti meðal unga fólksins

Íslendingar borða fisk sem aðalrétt að meðaltali tvisvar sinnum í viku samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Matís á neysluvenjum og viðhorfi fólks á aldrinum átján til áttatíu ára til sjávarfangs.

Opna fimm kafla og loka fjórum í dag

Fimm samningskaflar verða opnaðir á þriðju ríkjaráðstefnu í samningaviðræðum Íslands og ESB sem haldin er í Brussel í dag.

Öll ríki verði skuldbundin losunarkvóta

Samkvæmt samkomulagi sem gert var í fyrrinótt á loftslagsráðstefnu í Durban í Suður-Afríku taka þróuð ríki á sig lagalega bindandi skuldbindingar um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda á grundvelli Kýótó- bókunarinnar.

Tvö þúsund manns í Bláfjöllum

„Það er frábært færi. Við getum ekki beðið um betri opnunardag,“ sagði Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins en Bláfjöll opnuðu skíðasvæðið fyrir almenning í gær.

Klessti á bíl á rauðu ljósi og labbaði í burtu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að umferðaróhappi á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar sem varð um klukkan 21 í kvöld. Ekið var á kyrrstæða smábifreið á rauðu ljósi en ökumaðurinn lagði fótgangandi á flótta. Þeir sem hafa upplýsingar um óhappið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á abending hjá lrh.is

Mennirnir fundnir heilir á húfi

Mennirnir fjórir sem leitað hefur verið að á Austurlandi í kvöld eru fundnir heilir á húfi. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Seyðisfirði, segir að mennirnir hafi verið í Egilsselsskála við Kollumúlavatn þar sem þeir voru tepptir vegna snjóa.. Þeir eru nú á leið til Egilsstaða í læknisskoðun með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sá ljós frá skálanum fyrr í kvöld.

Hvassaleitisskóli oftast hæstur

Skólar á Vestfjörðum stóðu sig hvað verst á samræmdum könnunarprófum í haust. Fellaskóli var með lægstu meðaltölin í flestum greinum en Hvassaleitisskóli er oftast hæstur.

Bensínhækkanir furðulegar

Verð á bensíni og díeslolíu mun hækka um þrjár og hálfa krónu um áramótin verði frumvarp sem felur í sér hækkanir á gjöldum og sköttum samþykkt. Framkvæmdarstjóri FÍB segir hækkanirnar furðulegar þegar akstur hefur dregist saman og heimsmarkaðsverð er í hæstu hæðum.

Færri börn koma í kirkjuna fyrir jólin en áður

Meirihluti þjóðarinnar eða rúm sextíu prósent eru á móti því að takmarka aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi frá því sem verið hefur. Þetta sýnir ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Dómkirkjuprestur segir færri börn koma í skipulagðar ferðir í kirkjuna fyrir jólin en áður.

Bíllinn fundinn - en ekki tveir vélsleðar

Bíll mannanna fjögurra sem björgunarsveitir á Austurlandi leita nú að á Fljótsdalsheiði fannst rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Bíllinn fannst á vegi rétt ofan við Keldárstíflu en tveir vélsleðar sem mennirnir voru með á kerru voru ekki við bílinn.

Þyrlan komin á loft - 80 björgunarsveitarmenn leita

Björgunarsveitir á Austurlandi leita nú fjögurra manna sem hugðust sækja kindur á Fljótsdalsheiði og fóru akandi og með vélsleða til verksins. En ekkert hefur heyrst frá þeim síðan í gærmorgun.

Myndi Heiða fá öðruvísi viðbrögð ef hún héti Heiðar?

Jón Gnarr borgarstjóri veltir því fyrir sér á Facebooksíðu sinni í dag hvort að Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, myndi fá öðruvísi viðtökur ef hún væri karlmaður. Hann segir hana oft fá skringileg viðbrögð í fjölmiðlum og umræðu.

Engin gögn skemmdust hjá ríkisskattstjóra

„Það skemmdust engin gögn eða tæki en það má eiginlega að segja að gólfefnið sé ónýtt,“ segir Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri. Mikið tjón varð á húsnæði embættisins í nótt þegar að vatnslok á brunaslöngu gaf sig.

Mugison heldur fleiri fría tónleika

Tónlistarmaðurinn Mugison, sem ákvað nýlega að bjóða landsmönnum á tónleika í Hörpu fyrir jólin, ætlar að bæta við tónleikum í öllum landsfjórðungum. Það ætlar hann að gera vegna þess að viðtökurnar hafi farið framúr björtustu vonum og færri fengu miða en vildu. Tónleikarnir á landsbyggðinni verða einnig í boði tónlistarmannsins. En staðirnir sem um ræðir, auk Reykjavíkur, eru Akureyri, Bolungarvík, Seyðisfjörður og Vestmannaeyjar.

Forseti Hells Angels: Ummæli Ögmundar ólíðandi

Forseti Hells Angels á Íslandi segir það ólíðandi að ráðherra dómsmála leyfi sér að kalla samtökin opinberlega glæpasamtök. Hann segir lögreglu landsins mjög ótrúverðuga.

Sjá næstu 50 fréttir