Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engin sátt náðist um niðurskurð Repúblikönum og demókrötum á Bandaríkjaþingi hefur ekki tekist að ná samkomulagi um að draga úr fjárlagahalla og ríkisskuldum. Sjálfkrafa niðurskurður hefst engu að síður eftir næstu kosningar. 23.11.2011 01:00
Stundaði lýtalækningar án leyfis Lögreglan í Miami í Bandaríkjunum hefur handtekið þrítuga konu sem stundaði lýtalækningar án leyfis. Eitt af fórnarlömbum hennar er nú undir eftirliti lækna eftir að sementi og öðrum eitruðum efnum hafði verið sprautað í rasskinnar hennar. 22.11.2011 23:45
Nektarmyndir eru góðar fyrir heilann Nektarmyndir eru allra meina bót samkvæmt vísindamönnum í Finnlandi. 22.11.2011 23:15
Harður jarðskjálfti í Bólivíu - íbúar hafa flúið heimili sín Harður jarðskjálfti reið yfir Bólivíu síðdegis í dag en skjálftinn mældist 6,2 stig á stærð. Upptök skjálftans voru um 185 kílómetra suðaustur af bænum Santa Ana og var á um 530 kílómetra dýpi. 22.11.2011 22:15
Skrifuðu undir kjarasamning í kvöld Í dag var skrifað undir kjarasamning milli félags leikskólakennara og Sigöldu ehf, sem rekur leikskólann Aðalþing í Kópavog. 22.11.2011 21:00
Jónas heiðursborgari Kópavogs Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs. Með því vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar, menningar og tónlistaruppeldis, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 22.11.2011 20:55
Jólagjöfin í ár spjaldtölva - sambýliskona eiganda Epli.is í dómnefnd Jólagjöfin í ár verður spjaldtölva. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar um jólaverslunina, en sérstök jólagjafanefnd sér um að velja jólagjöf ársins. 22.11.2011 20:08
Bera kennsl á börnin og bjarga þeim Íslenskir lögreglumenn hafa frá og með morgundeginum aðgang að alþjóðlegum gagnagrunni Interpol með myndum af börnum sem hafa verið misnotuð kynferðislega. Markmiðið er að bera kennsl á börnin og bjarga þeim. 22.11.2011 19:38
Jón Gnarr vill fá að gefa saman hjón Borgarstjóri Reykjavíkur sótti í dag um undanþágu til innanríkisráðuneytisins til þess að fá að gefa saman hjón. Jón Gnarr segist reglulega fá fyrirspurnir um að gera slíkt, aðallega frá erlendum hommum. 22.11.2011 19:04
Íslensk fornrit leggja grunn að norskri ferðaþjónustu Fornsögum sem Íslendingar færðu í letur fyrir áttahundruð árum er haldið í heiðri í Noregi og þar rekin söfn og menningartengd ferðaþjónusta á grunni íslenska sagnaarfsins, sem Norðmenn telja reyndar vera sinn eigin sagnaarf. 22.11.2011 18:59
Þingmaður: Ríkisendurskoðandi fer yfir reikninga frá bróður sínum "Ríkisendurskoðandi er að endurskoða gjörðir Samfylkingarinnar nánast á hverjum degi og hann er líka að endurskoða fjármálaráðuneytið. Þar situr bróðir hans sem yfirmaður í rauninni á ríkiskassanum sjálfur,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 22.11.2011 18:06
Fjórtán fullir ökumenn og fimm dópaðir Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Sex voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 19-42 ára og tvær konur, 28 og 42 ára. 22.11.2011 17:40
Víggirt Alþingi vegna Áramótaskaupsins Ráðgert er að ljúka tökum á Áramótaskaupinu að mestu leyti um eða eftir helgina, segir Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri. Tökur fóru fram fyrir utan Alþingishúsið í dag. 22.11.2011 16:56
Kosið í Egyptalandi í næstu viku Herstjórnin í Egyptalandi hefur ákveðið að skipa nýja stjórn sem eigi að sinna markmiðum byltingarinnar. 22.11.2011 16:40
Líbía fær samþykki Alþjóðaglæpadómstólsins Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins sagði í dag að yfirvöldum í Líbíu sé frjálst að rétta yfir syni og erfingja Muammars Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra landsins. Hann sagði þó að dómarar frá Hag verði þó að vera viðriðnir málið. 22.11.2011 15:57
Lou Reed veitti Ragnari verðlaun kennd við Malcolm McLaren Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson fékk í gærkvöldi verðlaun í New York sem kennd eru við Malcolm McLaren. McLaren, sem lést í fyrra, var á sínum tíma umboðsmaður bresku pönksveitarinnar Sex Pistols og af sumum talinn sá sem mest áhrif hafði á þá tónlistarstefnu. 22.11.2011 15:54
Fyrsta flensutilfellið staðfest Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi. 22.11.2011 15:36
Græna orkan afhendir ráðuneytinu skýrslu um orkuskipti Verkefnisstjórn Grænu orkunnar afhenti í dag iðnaðarráðuneytinu skýrslu um það hvernig best verði staðið að orkuskiptum í samgöngum. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri tók við skýrslunni grænu frá Sverri Hauki Viðarssyni, formanni verkefnisstjórnar Grænu orkunnar. 22.11.2011 15:30
Vélstjórar á Herjólfi aflýsa vinnustöðvun Samkomulag hefur náðst kjaradeilunni á milli Eimskips, rekstraraðila Herjólfs og vélstjóra ferjunnar. Fyrirhugaðri vinnustöðvun sem hefjast átti um næstu helgi er því aflýst, að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna. Ferðir Herjólfs verða því með eðlilegum hætti um helgina. 22.11.2011 15:17
Lögreglan leitar eiganda að verulegum verðmætum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir eiganda að verulegum verðmætum sem hún hefur í sinni vörslu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan sendi fjölmiðlum. 22.11.2011 15:11
Lögreglan minnir fólk á endurskinsmerki Lögreglan segir það vera áberandi hve fáir grunn- og framhaldsskólanemar nota endurskinsmerki. Þetta sé sérstaklega bagalegt snemma á morgnana þegar myrkur grúfir yfir og margir eru á ferð við skóla á höfuðborgarsvæðinu, bæði gangandi og akandi. 22.11.2011 14:44
Fólk sendir nú smáskilaboð í svefni Svefnsérfræðingur segir erilsamt líf nútímamannsins vera að hefta svefn okkar. Hann viti um dæmi þar sem fólk sendir smáskilaboð í svefni. 22.11.2011 14:43
Byssan úr Bryggjuhverfi enn ófundin - einn laus úr haldi Byssan sem notuð var til að skjóta á bíl í Bryggjuhverfinu á föstudagskvöld er enn ófundin. Í bíl mannanna sem handteknir voru vegna málsins fannst stór kylfa, ekki ósvipuð óeirðarkylfum. Tveir mannanna hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald en þeim þriðja hefur verið sleppt. Hann er innan við tvítugt. 22.11.2011 14:25
Forseti Tyrklands segir Assad að stíga frá völdum Forsætisráðherra Tyrklands biðlar til Bashar Assad, forseta Sýrlands, um að endurskoða stöðu sína. Í ljósi mótmælanna í Sýrlandi verði forsetinn að stíga frá völdum. 22.11.2011 14:19
Maraþonfundur hjá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin situr enn á fundi í Stjórnarráðshúsinu en þar hófst fundur klukkan níu í morgun. Laust fyrir klukkan tvö var gert hlé á fundi til þess að ráðherra gætu fengið sér hádegismat og skömmu síðar var fundarhöldum fram haldið. Ástæða þessarar löngu fundarsetu mun vera sú að ríkisstjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að afgreiða stjórnarfrumvörp í ríkisstjórninni svo hægt sé að leggja þau fyrir haustþingið sem nú stendur yfir. 22.11.2011 14:18
KFS nýbúið að gera sex ára samning við Iceland Express Öllum starfsmönnum flugþjónustunnar, Keflavík Flight Services, á keflavíkurflugvelli var sagt upp störfum í gær eftir að flugfélagið Astraeus hætti rekstri. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir þetta vera mikið áfall enda var félagið nýbúið að gera sex ára þjónustu samning við Iceland Express. 22.11.2011 12:27
Björgólfur Thor ósáttur við heimildarmyndina Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður er ósáttur við dönsku myndina Thors Saga sem sýnd var á RÚV um helgina. Í myndinni er fjallað um Thor Jensen langafa Björgólfs en ekki síður um hann sjálfan og hans umsvif fyrir og eftir hrun. „Ég stóð í þeirri trú að áherslan yrði fyrst og fremst á langafa okkar," segir Björgólfur. „Hins vegar fékk ég engu ráðið um útkomuna, fremur en aðrir sem samþykktu að koma fram í myndinni." 22.11.2011 11:05
Gaslöggu vikið frá störfum - slær í gegn á Netinu Lögreglustjórinn á stúdentagörðunum við UC Davis háskólann í Kalíforníu hefur verið leystur tímabundið frá störfum ásamt tveimur undirmönnum sínum. Ástæðan er óhófleg notkun á piparúða þegar lögreglumennirnir reyndu að leysa upp friðsamleg mótmæli á skólalóðinni á föstudaginn var. Eins og við var að búast var atvikið tekið upp og hefur meðfylgjandi myndband vakið mikla athygli á Internetinu. Þar sést lögreglumaðurinn John Pike fara sér í engu óðslega og spreyja piparúðanum í miklu magni á námsmennina sem sitja með krosslagðar lappir og ógna engum. 22.11.2011 10:16
Fær aðgang að gagnagrunni yfir óþekkt börn Nokkrir íslenskir lögreglumenn eru þessa dagana í þjálfun hjá sérfræðingi frá alþjóðalögreglunni Interpol til að læra á alþjóðlegan gagnagrunn með myndum af óþekktum börnum sem eru kynferðislega misnotuð. Gagnagrunnurinn er þegar nýttur til rannsókna í um þrjátíu löndum. 22.11.2011 12:10
Dóri laus af strandstað Björgunarskip Landsbjargar náði fyrir stundu að draga fiskibátnum Dóra GK af strandstað í fjörunni á Stöðvarfirði, þar sem hann strandaði upp úr klukkan eitt í nótt. Ljóst er að hann er nokkuð skemmdur. 22.11.2011 12:07
Tími dagsins hefur áhrif á alvarleika hjartaáfalla Niðurstöður nýlegrar rannsóknar í Bandaríkjunum gefa til kynna að hjartaáföll sem eiga sér stað á milli 1 og 5 að nóttu til séu mun líklegri til að leiða til dauða en áföll sem gerast á öðrum tímum sólarhringsins. 22.11.2011 11:44
Strandvegur í San Pedro féll í Kyrrahafið Stór hluti strandvegar í San Pedro í Bandaríkjunum hrundi í Kyrrahafið síðastliðinn sunnudag. Risavaxin hola er nú þar sem vegurinn var. 22.11.2011 11:16
Sex aukamilljónir í jólaskraut „Það er verið að bæta töluvert í,“ segir Jón Halldór Jónasson. upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, um jólaskreytingar sem settar verða upp á vegum borgarinnar í ár. 22.11.2011 11:00
Ók á ljósastaur í hálku Töluverð hálka er á götum borgarinnar þessa stundina, einkum í úthverfum borgarinnar eins og Breiðholti og Grafarholti. Þrátt fyrir það hefur umferð gengið nokkuð vel hingað til að sögn lögreglunnar. Þó var bíl ekið á ljósastaur í Norðurfelli, skammt frá Jórufelli, í morgun. Bíllinn var dreginn í burtu með kranabíl og kalla þurfti starfsmenn Orkuveitunnar til því að ljósastaurinn. 22.11.2011 10:58
Vatnsskerfi Illinois hamlað af tölvuþrjótum Rússneskir tölvuþrjótar brutust inn í stjórnkerfi vatnsdælu sem sér þúsundum heimila í Illinois í Bandaríkjunum fyrir vatni. Sérfræðingur í kerfisstjórnun borgarinnviða segir álíka árás aldrei áður hafa átt sér stað. 22.11.2011 10:50
Skotárás í úthverfi Orlando Átján ára gamall piltur er sakaður um morðtilræði eftir að hann hóf skothríð í úthverfi í Flórída í Bandaríkjunum. 22.11.2011 10:30
Rukkarar undir fölsku flaggi Lögreglunni á Selfossi var gert viðvart vegna tveggja manna sem bönkuðu upp á í húsi í bænum og kynntu sig sem starfsmenn vörslusviptingafyrirtækis. Erindi þeirra væri að sækja bifreið manns sem var í skuld með hana. 22.11.2011 10:30
Sameinuð Líbía mun falla segir sonur Gaddafi Saif Gaddafi, sonur fyrrverandi einræðisherra Líbíu, telur að átök muni brátt hefjast milli sameinaðra svæða landins. 22.11.2011 10:12
Afnema á launauppbót í leikskólum „Við höfum búist við þessu en þetta eru samt vonbrigði,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, um þá fyrirætlan borgaryfirvalda að afnema yfirborgun starfsmanna leikskóla. 22.11.2011 10:00
Apple opnar sína stærstu verslun Talið er að tölvurisinn Apple muni opna sína stærstu verslun í New York í dag. Staðsetningin gæti vart verið betri en búðin er staðsett í Grand Central Terminal. 22.11.2011 09:53
Atvinnulausir fá desemberuppbót Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Óskert desemberuppbót til þeirra sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verður 63.457 krónur. Heildarútgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna þessa eru áætluð 600-650 milljónir króna. Desemberuppbætur voru jafnframt greiddar úr Atvinnuleysistryggingasjóði í fyrra en slíkar uppbætur höfðu þá ekki verið greiddar úr sjóðnum frá því í desember 2005. 22.11.2011 09:50
Springsteen spilar í Evrópu á næsta ári Stórsöngvarinn og alþýðuhetjan Bruce Springsteen tilkynnti á vefsíðu sinni að hann myndi hefja tónleikaferðalag um Bandaríkin og Evrópu á næsta ári. 22.11.2011 09:31
Fiktaði við áfengi og tóbak Mitt Romney opinberar syndasamlegt líferni sitt sem unglingur - hann bragðaði eitt sinn á bjór og reykti sígarettu. 22.11.2011 09:21
Stórsköðuðu landa sinn í andliti Tveir Pólverjar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á laugardagskvöld vegna mjög alvarlegrar líkamsárásar á landa sinn. Gæsluvarðhaldið, sem er á grundvelli rannsóknarhagsmuna, rennur út á morgun. 22.11.2011 09:15
Borgum fyrir vatn og umbúðir Kílóverð á frosnum fiski í verslunum er einnig fyrir ís, vatn og umbúðir. Þegar frosinn fiskur er soðinn er þyngdin í sumum tilvikum einungis helmingurinn af því sem borgað var fyrir. Þetta er niðurstaða úttektar Neytendasamtakanna sem framkvæmd var af Matís á gæðum frosins fisks í stórmörkuðum. 22.11.2011 09:00