Engin sátt náðist um niðurskurð 23. nóvember 2011 01:00 Repúblikaninn Jeb Hensarling og demókratinn Patty Murray gegndu sameiginlegri formennsku í ofurnefndinni, sem hafði ekki erindi sem erfiði. nordicphotos/AFP
Repúblikönum og demókrötum á Bandaríkjaþingi hefur ekki tekist að ná samkomulagi um að draga úr fjárlagahalla og ríkisskuldum. Sjálfkrafa niðurskurður hefst engu að síður eftir næstu kosningar. Fáum í Bandaríkjunum virðist hafa komið á óvart að ofurnefndinni svonefndu, sem stofnuð var í sumar gagngert til þess að leggja fram málamiðlunartillögu um það hvernig draga eigi úr fjárlagahalla, hafi ekki tekist að komast að sameiginlegri niðurstöðu áður en frestur til þess rann út í gær. Áherslur repúblikana og demókrata á þingi eru það ólíkar og vilji til að gefa eftir af svo skornum skammti að fyrirfram virtust sáralitlar líkur á að málamiðlun tækist. „Lýðræðið okkar virkar ekki sem skyldi,“ hafði bandaríska dagblaðið New York Times eftir einum úr mótmælendahópnum Occupy Wall Street í New York. Þar með er ljóst að skattamálin verða eitt helsta kosningamálið fyrir þingkosningar og forsetakosningar, sem haldnar verða að venju fyrsta þriðjudag í nóvember á næsta ári. Ríkisskuldir Bandaríkjanna eru nú í fyrsta sinn orðnar meiri en landsframleiðsla Bandaríkjanna, eða ríflega 15.000 milljarðar dala. Ætlunin var að nefndin kæmist að niðurstöðu um að draga úr fjárlagahallanum um 1,5 billjónir dala næsta áratuginn. Demókratar vildu ná þessu að hluta með því að hækka skatta á auðjöfra, en repúblikanar vildu frekar lækka greiðslur úr ríkissjóði til fátækra og aldraðra. Hugmyndin var sú að nefndin, sem skipuð var sex þingmönnum úr hvorum flokki, myndi leggja fram málamiðlunartillögu fyrir 23. nóvember. Báðar deildir þingsins myndu síðan afgreiða frumvarp byggt á þessari málamiðlunartillögu fyrir 23. desember og Obama forseti gæti undirritað lögin 15. janúar. Úr því að nefndinni tókst ekki að ná samkomulagi þá tekur gildi sjálfkrafa niðurskurður á fjárlögum 1. október á næsta ári, fáeinum vikum eftir kosningar í Bandaríkjunum. Þessi sjálfkrafa niðurskurður mun skiptast jafnt milli varnarmála og innanríkismála, en flestum bótagreiðslum verður haldið óskertum á fjárlögum. Hvorki demókratar né repúblikanar eru sáttir við þennan sjálfkrafa niðurskurð. Obama segist hins vegar ætla að beita neitunarvaldi gegn öllum tilraunum til að breyta þessu nema í staðinn komi raunhæfar tillögur sem um muni. „Það verða engar auðveldar hjáleiðir í þessu máli. Við verðum að halda uppi þrýstingi á að málamiðlun takist, frekar en að létta af þrýstingnum,“ sagði Obama. „Eina leiðin til að koma í veg fyrir þennan niðurskurð er að þingið komi sér aftur að verki og samþykki skynsamlega áætlun um að draga úr fjárlagahallanum um að minnsta kosti 1,2 milljónir dala.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Fleiri fréttir Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Sjá meira