Fleiri fréttir Hver fræðir um orkumálin? Fulltrúar minnihluta sjálfstæðismanna og VG í borgarráði vilja svör um möguleg viðbrögð Reykjavíkurborgar við því að fræðslu- og ferðaþjónustuverkefni Orkuveitu Reykjavíkur hafi verið aflögð. Mikill safnkostur liggi undir skemmdum ef ekkert verði aðhafst. 30.10.2010 03:30 Fyrrverandi þingmenn vilja á stjórnlagaþing Fimm fyrrverandi þingmenn og ráðherrar gefa kost á sér til stjórnlagaþings. Fyrr í dag var birtur listi með nöfnum frambjóðenda til stjórnlagaþings en kosið verður laugardaginn 27. nóvember. 29.10.2010 21:44 Ronnie Wood: Keith skilur mig Rolling Stones-goðsögnin Keith Richards er hættur að láta heilsusamlegri lífsstíl félaganna í hljómsveitinni fara í taugarnar á sér. Þetta segir Ronnie Wood, gítarleikari Rolling Stones, sem hefur verið edrú í rúmlega sex mánuði en hann var á góðri leið með að drekka sig í heil. 29.10.2010 22:31 Kynntu áherslur ASÍ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna áttu í dag fund með forystu ASÍ þar sem forsvarsmenn sambandsins kynntu áherslur og ályktanir ársfundar ASÍ. 29.10.2010 21:51 Obama: Sprengjuefni í pökkunum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að sprengjuefni hafi verið í pökkunum sem sendir voru frá Jemen til Bandaríkjanna. Pakkarnir voru stílaðir á tvö bænahús gyðinga í Chicago. Talið er að hryðjuverkasamtökin al Kaída beri ábyrgð á pökkunum. Þetta kom fram í máli forsetans á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í kvöld. 29.10.2010 20:58 Skjálftarnir höfðu ekki áhrif á stíflur við Blöndulón Undanfarna daga hafa orðið nokkrir jarðskjálftar á Norðvesturlandi, sá stærsti að styrkleika 3,7 á Richter. Skjálftarnir eiga upptök sín undir sunnanverðu Blöndulóni og sunnan við lónið samkvæmt staðsetningu Veðurstofu. Stærsti skjálftinn átti sér stað nú í morgun. 29.10.2010 21:00 Listi frambjóðenda liggur fyrir 29.10.2010 20:05
Sjá næstu 50 fréttir
Hver fræðir um orkumálin? Fulltrúar minnihluta sjálfstæðismanna og VG í borgarráði vilja svör um möguleg viðbrögð Reykjavíkurborgar við því að fræðslu- og ferðaþjónustuverkefni Orkuveitu Reykjavíkur hafi verið aflögð. Mikill safnkostur liggi undir skemmdum ef ekkert verði aðhafst. 30.10.2010 03:30
Fyrrverandi þingmenn vilja á stjórnlagaþing Fimm fyrrverandi þingmenn og ráðherrar gefa kost á sér til stjórnlagaþings. Fyrr í dag var birtur listi með nöfnum frambjóðenda til stjórnlagaþings en kosið verður laugardaginn 27. nóvember. 29.10.2010 21:44
Ronnie Wood: Keith skilur mig Rolling Stones-goðsögnin Keith Richards er hættur að láta heilsusamlegri lífsstíl félaganna í hljómsveitinni fara í taugarnar á sér. Þetta segir Ronnie Wood, gítarleikari Rolling Stones, sem hefur verið edrú í rúmlega sex mánuði en hann var á góðri leið með að drekka sig í heil. 29.10.2010 22:31
Kynntu áherslur ASÍ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna áttu í dag fund með forystu ASÍ þar sem forsvarsmenn sambandsins kynntu áherslur og ályktanir ársfundar ASÍ. 29.10.2010 21:51
Obama: Sprengjuefni í pökkunum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að sprengjuefni hafi verið í pökkunum sem sendir voru frá Jemen til Bandaríkjanna. Pakkarnir voru stílaðir á tvö bænahús gyðinga í Chicago. Talið er að hryðjuverkasamtökin al Kaída beri ábyrgð á pökkunum. Þetta kom fram í máli forsetans á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í kvöld. 29.10.2010 20:58
Skjálftarnir höfðu ekki áhrif á stíflur við Blöndulón Undanfarna daga hafa orðið nokkrir jarðskjálftar á Norðvesturlandi, sá stærsti að styrkleika 3,7 á Richter. Skjálftarnir eiga upptök sín undir sunnanverðu Blöndulóni og sunnan við lónið samkvæmt staðsetningu Veðurstofu. Stærsti skjálftinn átti sér stað nú í morgun. 29.10.2010 21:00
Bátur bilaði norður af Engey Björgunarsveitirnar Ársæll úr Reykjavík og Hjálparsveit skáta Kópavogi voru kallaðar út rétt fyrir klukkan 18:30 í kvöld vegna vélarvana báts sem staddur var um 3-4 mílur norður af Engey. 29.10.2010 20:01
Kristján nýr formaður Á nýafstöðnum aðalfundi Vímulausrar æsku - Foreldrahúss var Kristján Guðmundsson kjörinn formaður aðalstjórnar samtakanna. Ólöf Ásta Farestveit, sem gegnt hefur formennsku í 4 ár, hætti í stjórn samtakanna. 29.10.2010 19:52
Trukkarnir koma á Búðarháls Ístak flutti í dag fyrstu tæki sín að Búðarhálsi. Óvissa ríkir þó áfram um hvenær virkjunarframkvæmdir þar komast á fullt skrið því verksamningurinn er háður því að Landsvirkjun fái lán á hagstæðum kjörum. 29.10.2010 19:17
Óheppilegt að halda í Halldór Ásgrímsson Forsætisráðherra telur óheppilegt að ráðningarsamningur var endurnýjaður við Halldór Ásgrímsson í embætti framkvæmdastjóra norrænu ráðherranefndarinnar. 29.10.2010 19:11
Vildu að Íslandsbanki þvingaði starfsmenn í yfirheyrslur Lögmaður slitastjórnar Glitnis lagði að stjórnendum Íslandsbanka að grípa til aðgerða vegna starfsmanns bankans sem neitaði að koma í skýrslutöku hjá slitastjórn í tengslum við hundruð milljarða skaðabótamál. Fréttastofa hefur tölvupósta sem staðfesta þetta undir höndum. 29.10.2010 19:05
Telja ný gjaldþrotalög engu breyta Frumvarp til gjaldþrotalaga breytir litlu fyrir gjaldþrota heimili að mati lögmanna. Fjármálaráðherra segir að frumvarpið verða betrumbætt í meðförum þingsins. 29.10.2010 18:58
Of lág laun grafa undan vinnusiðferði Of lág laun eru að grafa undan vinnusiðferði í landinu og hvetja fólk til að vera fremur á atvinnuleysis- og örorkubótum. Þetta sagði formaður Vinnumálastofnunar á ársfundi hennar í dag og sagði nauðsynlegt að hækka lægstu laun. 29.10.2010 18:57
Al Kaída að æfa sig? Mikill viðbúnaður var á flugvöllum í Bretlandi og Bandaríkjunum í dag eftir að tortryggilegar pakkar fundust um borð í flutningaflugvél sem millilenti í Bretlandi á leið til Bandaríkjanna frá Jemen. Ekki var um sprengju að ræða að sögn, bresku lögreglunnar. Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu segir að bandarísk yfirvöld hafi grípið til viðunandi aðgerða og leitað í nokkrum flutningaflugvélum á flugvöllum í New Jersey og Pennsylvaníu. Á sama tíma var leitað í bílum flutningafyrirtækja. Bandarísk stjórnvöld rannsaka nú hvort að hryðjuverkasamtökin al-Kaída í Jemen beri ábyrgð á pökkunum en talið er að um æfingu hafi verið að ræða. 29.10.2010 18:22
Ljóst hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings Birtur hefur verið listi með nöfnum frambjóðenda til stjórnlagaþings. Landskjörstjórn lauk yfirferð sinni yfir framkomin framboð í vikunni. Frambjóðendum hefur verið raðað í starfrófsröð en fyrsta nafn í röðinni var valið að handahófi í viðurvist sýslumannsins í Reykjavík. Enn fremur var frambjóðendum úthlutað auðkennistölu í viðurvist sýslumanns í Reykjavík, sem kjósendur færa á kjörseðil í kosningunum. Á listanum koma fram upplýsingar um nöfn frambjóðenda og auðkennistölu, svo og starfsheiti þeirra og sveitarfélag þar sem þeir eru búsettir. 29.10.2010 17:02
Dæmd fyrir að flytja inn sýru Kona á fimmtugsaldri var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi í dag fyrir innflutning á fíkniefnum. Konan, sem var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur, játaði brot sín skýlaust. 29.10.2010 16:30
Sprengja í flugvél í Lundúnum Flugvél frá Yemen var stöðvuð í Lundúnum í dag þegar sprengja fannst um borð. Sprengjan var í fragtrými og hafði verið dulbúin sem blekhylki fyrir prentara. Í kjölfarið hefur verið fyrirskipuð nákvæm leit í flugvélum sem eru í ferðum til og frá Bandaríkjunum. Þessi frétt var að berast og nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. 29.10.2010 15:38
Ögmundur og Jón Steinar sammála Dómsmálaráðherra er sammála Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara og Róbert Spanó, deildarforseta lagadeildar Háskóla Íslands, um að setja skuli á fót millidómstól og draga þannig úr álagi á Hæstarétt. Hann bendir á að þau viðhorf sem Jón Steinar hafi reifað virðist vera samdóma álit úr stétt lögmanna og dómara. Það hafi hann fengið staðfest á málþingi sem hann sótti á dögunum. 29.10.2010 15:34
Veðurstofan varar við stormi Veðurstofa Íslands varar við stormi austantil á landinu og á Miðhálendinu í nótt og fram eftir morgundegi. Ferðafólki sem hyggur á ferðalag á milli landshluta, einkum norðan- og austanlands, síðdegis og á morgun er bent á fylgjast grannt með fréttum af veðri og færð. 29.10.2010 15:10
Sólheimar í stöðugum árekstrum við kerfið Áhyggjur stjórnar og fulltrúaráðs Sólheima í Grímsnesi af rekstrargrundvelli heimilisins eru meðal annars tilkomnar vegna þess sem þeir telja vera stöðuga tregðu og árekstra í kerfinu. Til dæmis segja þeir að Sólheimar hafi ekki fengið endurmat á þjónustuþörf fatlaðra íbúa í átta ár. Þó séu skýr ákvæði í lögum um að slíkt mat eigi að gera árlega. 29.10.2010 15:10
Hópuppsögn á Flateyri: „Staðan er skelfileg“ „Það lá fyrir þegar við keyptum eignirnar af Kambi að þetta yrði gríðarlega erfitt,“ segir Kristján Erlingsson, stjórnarmaður og einn af aðaleigendum Eyrarodda á Flateyri, en fjörtíu og tveimur starfsmönnum fiskvinnslunnar var sagt upp í dag. 29.10.2010 14:20
New York Times fjallar um Bæjarins bestu Bandaríska stórblaðið New York Times fjallaði hinn 25. þessa mánaðar um einstæðan áhrifamátt Clintons fyrrverandi forseta. Hann nær jafnvel til veitingastaða. Ef Clinton borðar á einhverjum matsölustað kemur fólk þangað í kippum og biður um það sama og forsetinn borðaði. 29.10.2010 14:17
Gríðarlegur kostnaður vegna tafa í dómskerfinu Afar brýnt er að uppgjöri þeirra mála sem komið hafa til kasta dómstólanna í kölfar hruns íslenska efnahagskerfisins verði hraðað. 29.10.2010 14:15
Kínverjar ráðast á Thorbjörn Jagland Kínverskir ríkisfjölmiðlar gera persónulegar árásir á Thorbjörn Jagland, formann norsku nóbelnefndarinnar. Kínverjar eru í mikilli geðshræringu yfir því að andófsmaðurinn Liu Xiaobo fékk friðarverðlaun Nóbels í ár. 29.10.2010 14:09
Vífilfell: Engin hættuleg litarefni í Powerade Vegna frétta um litarefni í Powerade íþróttadrykkjum hefur Vífilfell, dreifingaraðili drykkjanna, sent frá yfirlýsingu þar sem því er vísað á bug að í bláum Powerade drykkjum séu asó-litarefni. Þá er því einnig hafnað að litarefnið sem er í bláum Powerade sé bannað í fjölda Evrópulanda, þvert á móti sé drykkurinn seldur í öllum löndum Evrópu. 29.10.2010 13:57
100 prósent verðmunur í efnalaugum Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á hreinsun og þvotti í þvottahúsum og efnalaugum á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 27. október samkvæmt tilkynningu á síðu þeirra. 29.10.2010 13:43
Kvennalið Gerplu fær þrjár milljónir frá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja kvennalið Gerplu, nýkrýnda Evrópumeistara í hópfimleikum, um þrjár milljónir króna. Kvennalið Gerplu í fimleikum náði þeim einstaka árangri að vinna til gullverðlauna á Evrópumótinu í hópfimleikum, sem fram fór í Malmö í Svíþjóð í október 2010. Ríkisstjórnin fagnar þessum frábæra árangri liðsins og samþykkti í tilefni af honum að veita liðinu þrjár milljónir króna til undirbúnings fyrir þátttöku þess í Norðurlandamóti sem fram fer í Noregi árið 2011. 29.10.2010 13:34
Nánast enginn munur á lægstu launum og bótum Eitt af þeim vandamálum sem ráðgjafar og vinnumiðlarar Vinnumálastofnunar standa frammi fyrir er að lítill eða enginn munur er á lægstu launum og atvinnuleysisbótum, segir Runólfur Ágústsson, formaður stjórnar Vinnumálastofnunar. Ársfundur Vinnumálastofnunar er haldinn í 29.10.2010 13:30
Vill að liðkað verði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að hann fylgdist vel með þjóðmálaumræðunni og þeirri ólgu sem verið hafi í samfélaginu að undanförnu. Hann hefði hins vegar ekki og myndi ekki tjá sig um mál sem væru til umfjöllunar og afgreiðslu á vettvangi Alþingis. 29.10.2010 12:12
Forseti lagadeildar sammála Jóni Steinari Forseti lagadeildar Háskóla Íslands tekur undir með Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara að tilefni sé til að stofna millidómsstig á Íslandi. 29.10.2010 11:30
Fjölskylduhjálpin opnar á Akureyri: Vonandi kemur enginn Fjölskylduhjálp Íslands opnar nýja starfsstöð á Akureyri um miðjan nóvember. Gerður Jónsdóttir verkefnisstjóri vonast til að sem fæstir mæti enda væri það til marks um að þörfin væri ekki til staðar. „Vonandi kemur enginn,“ segir hún. Fjölskylduhjálpin hefur fengið húsnæði að Freyjunesi 4 á Akureyri og óskar eftir sjálfboðaliðum. „Ég er bara ein enn sem komið er,“ segir Gerður. 29.10.2010 11:26
Stakk ekki blóðugum fingri í munn lögregluþjóns Karlmaður var sýknaður í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa stungið blóðugum fingri í munn lögregluþjóns. Maðurinn sem var ákærður fyrir hættulegt brot á sóttvarnarlögum, reyndist vera smitaður af lifrabólgu C. 29.10.2010 11:25
Íslendingar í Árósum berjast fyrir félagslífinu sínu Íslendingar í Árósum í Danmörku virðast tilbúnir til þess að berjast fyrir lífi Íslendingafélagsins þar í borg en Vísir greindi frá því í gær að til stæði að leggja félagið niður. Aðeins einn maður mætti á aðalfund félagsins fyrr í vikunni og því tókst ekki að mynda nýja stjórn. 29.10.2010 10:38
Gátlisti rjúpnaveiðimannsins Undanfarin ár hafa björgunarsveitir ítrekað verið kallaðar út til að leita að rjúpnaveiðimönnum. Slysavarnafélagið Landsbjörg vekja athygli á að veðurspá helgarinnar er afleit, sérstaklega á Austur- og Suðausturlandi og vill því koma á framfæri nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina. 29.10.2010 10:08
Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji. 29.10.2010 09:36
Íslendingafélög í útrýmingarhættu Starf Íslendingafélaga í Danmörku er í mikilli lægð ef marka má dræma mætingu á aðalfundi þeirra. Aðeins tíu manns mættu á aðalfund Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn sem haldinn var í gær. „Það er betri mæting á fundi prjónafélagsins," segir Sigurður Einarsson, formaður félagsins, heldur vonsvikinn. 29.10.2010 09:22
Hvalurinn í Vejle-firði var 140 ára gamall Langreyður ein stór og mikil sem synti á land í Vejle firði í Danmörku í sumar hefur nú verið aldursgreind og í ljós kom að dýrið var á bilinu 135 til 140 ára gamalt. Vísindamenn frá danska náttúrufræðisafninu komust að þessu en í nýútkominni hvalabók eftir þá Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson segir að elsta dýr af þessari tegund sem vitað sé um hafi náð 114 ára aldri. 29.10.2010 08:54
Niðurskurður skilar litlum sparnaði Raunsparnaður af 185 milljóna króna niðurskurði á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða , yrði aðeins 28 milljónir króna, þegar búið væri að taka tillit til sjúkraflutningakostnaðar, tilfærslu verkefna og tekjumissi ríkissjóðs vegna uppsagna. 29.10.2010 08:49
Níu lögreglumenn myrtir í Mexíkó Níu lögreglumenn voru skotnir til bana í fyrirsát í vesturhluta Mexíkó í gær. Eins er saknað. 20 lögreglumenn voru í leiðangri í Jalisco héraði í gær þegar þeir voru bornir ofurliði af glæpagengi sem umkringdi þá á lúxusjeppabifreiðum og hófu skothríð. Lögreglumennirnir tíu sem lifðu árásina af börðust við gengið í rúma klukkustund. Margir þeirra eru sárir, að sögn mexíkóskra fjölmiðla. Árásarmennirnir voru þungvopnaðir og notuðu handsprengjur og hríðskotariffla. 29.10.2010 08:36
Pilturinn fundinn Pilturinn sem lögregla lýsti eftir í gærkvöldi er kominn í leitirnar og var hann heill á húfi. Lögrreglan þakkar veitta aðstoð og segir að fjölmargar ábendingar hafi borist til lögreglu eftir að lýst var eftir drengnum í fjölmiðlum. 29.10.2010 08:04
Veðrið kemur rjúpunni til bjargar í bili Rjúpnaveiðitíminn hófst á miðnætti og má skjóta rjúpur á föstudögum, laugardögum og sunnudögum þar til 18 dögum er náð. 29.10.2010 07:40
Reykspólandi á átta gata kagga Lögreglan á Selfossi stóð ungan ökumann óvænt að verki þegar hann var að reykspóla á átta gata amerískum kagga á Austurveginum, við mjólkurbúið í gærkvöldi, en Austurvegurinn er þjóðvegurinn í gegnum bæinn. 29.10.2010 07:29
Dregur úr skjálftavirkni undir Blöndulóni Eftir tvo snarpa skjálfta, sem víðar varð vart í gærkvöldi, hefur dregið töluvert úr skjálftavirkni undir Blöndulóni, norðvestur af Hveravöllum. 29.10.2010 07:24
Tekin með vasa fulla af kardimommudropum Kona í annarlegu ástandi brást ókvæða við þegar starfsmaður í sólarhringsverslun í Hafnarfirði hafði afskipti af henni upp úr miðnætti, þar sem hann grunaði að hún hafi verið að hnupla. 29.10.2010 07:22