Innlent

Forseti lagadeildar sammála Jóni Steinari

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Róbert Spanó segir mögulegt að koma millidómsstigi upp um mitt næsta ár. Mynd/ Stefán.
Róbert Spanó segir mögulegt að koma millidómsstigi upp um mitt næsta ár. Mynd/ Stefán.
Forseti lagadeildar Háskóla Íslands tekur undir með Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara að tilefni sé til að stofna millidómsstig á Íslandi.

„Til þess standa margvísleg rök. Fyrri röksemdin sem má nefna er að fjöldi þeirra mála sem Hæstiréttur er að dæma gerir það að verkum að dómstóllinn þarf almennt að vera skipaður þremur dómurum af níu í hverju máli. Það dregur úr almennu fordæmishlutverki Hæstaréttar við að kveða upp dóma sem skýra réttarstöðuna með almennum hætti," segir Róbert Spanó, forseti lagadeildar HÍ.

Róbert segir að ef millidómsstig verði sett á laggirnar geti það haft þau áhrif að Hæstiréttur geti í ríkari mæli verið skipaður fimm eða sjö dómurum til að treysta í sessi almenn fordæmisáhrif úrlausna Hæstaréttar. „Í öðru lagi leiðir af skuldbindingum okkar samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu að það þarf í ríkari mæli að tryggja í sakamálum að endurskoðun héraðsdóma varðandi mat á sönnun sé raunveruleg," segir Róbert.

Hann segir að áfrýjunarréttturinn verði að geta endurmetið sönnunarfærslu í málum. Þetta sé erfiðleikum bundið í núverandi kerfi og millidómsstig myndi hjálpa verulega til þess ef réttarfarsreglur fyrir þeim dómstól væru í lagi. „Þannig að ég tek heilshugar undir þau sjónarmið hæstaréttardómarans að millidómsstig sé eitthvað sem eigi að stefna að og gera það sem allra fyrst," segir Róbert.

Róbert segir að það fari eftir því hvernig hugmyndin um millidómsstig yrði útfærð hversu langan tíma það tæki að koma slíku kerfi á fót. Ef farið yrði í að undirbúa slíkar tillögur á allra næstu vikum yrði raunhæft að koma slíku dómsstigi á um mitt næsta ár. „Það yrði auðveldara ef að í fyrstu atrennu yrði millidómsstig einungis í sakamálum en ég held hins vegar að almennt séð eigi að stefna að almennu millidómsstigi á Íslandi," segir Róbert.




Tengdar fréttir

Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×