Fleiri fréttir

Eyjafjallajökull er hvítur á ný

Eyjafjallajökull virðist nú búinn að ná sínum fyrri lit og blasti hvítur og tignarlegur við ljósmyndara Fréttablaðsins í Vestmannaeyjum.

„Þeir telja sig í raun eiga makrílstofninn“

„Sú ósanngjarna afstaða Noregs og Evrópusambandsins, sem endurspeglast í fáránlegri tillögu þeirra um 3,1 prósents hlutdeild Íslands í makrílveiðunum á næsta ári, veldur okkur miklum vonbrigðum. Tillagan er algjörlega óraunhæf og ekki til þess fallin að stuðla að lausn málsins,“ segir Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands. Viðræður strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Færeyja og Noregs, hófust í London á þriðjudag en þeim lauk síðdegis í gær.

Hermann Maier á hundasleða uppi á Langjökli

Austurríska skíðastjarnan Hermann Maier var á Langjökli um helgina. Þar var skíðamaðurinn að taka upp auglýsingu fyrir austurríska bankann Raiffeisen sem er sérstakur styrktaraðili Maiers í nýstárlegri keppni milli Þýskalands og Austurríkis.

Um 50 prestar og skólastjórar

Rúmlega fimmtíu skólastjórar og prestar funduðu um samstarf skóla og kirkjunnar í Neskirkju í gær. Tilefnið var tillaga mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um breytingar á starfinu.

Þurfa ekki að læra um kristni

Foreldrar hafa fullan rétt á því að fara fram á, án skýringa, að börn þeirra taki ekki þátt í kennslu eða athöfnum sem viðkomandi telur ekki samræmast eigin skoðunum eða trúarbrögðum. Kemur þetta fram í lögfræðiáliti um samstarf kirkju og skóla sem unnið var að beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Kennarar móta nýja stefnu í kynferðisbrotamálum

Nýlega skipað siðaráð Kennarasambands Íslands (KÍ) mótar nú nýjar verklagsreglur um viðbrögð sambandsins við kynferðisbrotamálum. Ekki hefur verið til skýr stefna um verkferli slíkra mála innan KÍ hingað til. Atli Vilhelm Harðarson, fyrsti formaður siðaráðs KÍ, segir sitt fyrsta verk hafa verið að efna til samstarfs innan þeirra mörgu stofnana sem séu innan sambandsins.

Fundu stofna sem valda hóstaveikinni

Vísindamenn á Tilraunastöðinni á Keldum hafa fundið bakeríustofna sem taldir eru valdir að einkennum hóstaveikinnar í hrossum. Líkur benda til að þessir stofnar hafi borist hingað frá útlöndum.

Tífalda verðlaunafé fyrir Mladic

Ríkisstjórn Serbíu hefur lagt meira fé til höfuðs Bosníuserbanum og stríðsglæpamanninum Ratko Mladic. Upphæðin var tífölduð, fór úr einni í tíu milljónir evra.

Notkun orðsins þykir særandi

Bleiki hnefinn – aðgerðahópur róttækra kynvillinga skorar á Ríkisútvarpið (RÚV) að taka upp orðið transfólk í stað orðsins kynskiptingur. Þetta á við þegar fjallað er um þá einstaklinga sem falla ekki að hefðbundnum hugmyndum um tvískiptingu kynjanna.

Sigurður Elvar ráðinn til starfa

Sigurður Elvar Þórólfsson hefur verið ráðinn fréttastjóri íþrótta hjá 365 miðlum. Hann mun hafa yfirumsjón með íþróttafréttum á Vísi, í Fréttablaðinu og í fréttatímum Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Íþróttafréttamenn allra þessara miðla munu heyra undir hann.

Tæplega 350 manns hafa látist í Indónesíu

Tala látinna á Mentawai-eyjum í vesturhluta Indónesíu var í gær komin í 343 eftir leit björgunarsveita. Stjórnvöld telja að hundruð manna sem enn er saknað kunni að hafa borist á haf út með flóðbylgjunni sem þar reið yfir 25. október. Eldgos í fjallinu Merapi á eyjunni Jövu hófst stuttu eftir jarðskjálftann sem hratt flóðbylgjunni af stað.

Segja lög brjóta gegn EES-samningi

Héraðsdómari í Ósló hefur vísað máli, sem tóbaksframleiðandinn Philip Morris höfðaði gegn norska ríkinu, til EFTA-dómstólsins í Lúxemborg.

Vændiskona í mat í lystihúsi

Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu segir „fjölmiðlaþvætting“ að vændiskona undir lögaldri hafi verið á heimili hans fyrir tilstilli tveggja starfsmanna sjónvarpsstöðvar í hans eigu.

Spáð í flekki framan í Pútín

Litarhaft og heilsufar Vladimírs Pútíns forsætisráðherra Rússlands var til umfjöllunar í fjölda rússneskra og úrkraínskra fjölmiðla í gær. Á fundi Pútíns með ráðamönnum í Kænugarði á miðvikudag var eftir því tekið að þrátt fyrir mikla andlitsmálningu mátti greina dökka flekki undir augum Pútíns. Hann þótti þreytulegur og leyfði ekki spurningar.

Jonathan Motzfeldt fallinn frá

Jonathan Motzfeldt, fyrrverandi formaður grænlenska Siumut-flokksins, féll frá í gær, 72 ára að aldri. Motzfeldt hafði glímt við krabbamein, en var í gær lagður inn á sjúkrahús með lungnabólgu. Þar lést hann af völdum heilablæðingar, að því er fram kemur á fréttavefnum Sermitsiaq.

Friðarviðræður strand meðan byggt er

Umleitanir bandarískra stjórnvalda til að koma friðarviðræðum milli Ísraels og Palestínu af stað á ný hafa enn sem komið er ekki skilað árangri. Þetta hefur fréttastofa AP eftir Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egyptalands, í gær

Vilja fá verkamannabústaði

Endurvekja ætti verkamannabústaðakerfið og raunhæft kaupleigukerfi fyrir almennt launafólk að mati ASÍ. Í ályktun ársfundar sambandsins er þess krafist að gripið verði tafarlaust til aðgerða til að taka á „yfirþyrmandi skulda- og greiðsluvanda heimilanna“. Koma verði til móts við lántakendur vegna mikilla hækkana á höfuðstóli lána frá bankahruninu haustið 2008.

Mótmæla breyttri kjarnorkuáætlun

Grænfriðungar létu sig í gær síga ofan af höfuðstöðvum flokks Angelu Merkel Þýskalandskanslara með borða þar sem kjarnorku er mótmælt. Aðgerðirnar eru meðal fjölda annarra þar sem fyrirætlunum stjórnar Merkel um að framlengja líf kjarnorkuvera í Þýskalandi er mótmælt.

Yfir 170 verða í fyrsta hópnum

Fyrsti hópur flóttafólks frá Kongó sem býr í Búrúndí snýr aftur heim í þessari viku, að því er fram kemur í tilkynningu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Sex skotnir í Mexíkóborg

Sex ungir menn voru skotnir til bana í Mexíkóborg aðfaranótt fimmtudags. Í viðtali við sjónvarpsstöðina Televisa sagði saksóknari að til harðra orðaskipta hafi komið milli ungu mannanna, sem allir voru um og rétt yfir tvítugu, og byssumannanna sem borið hafði að áður en þeir síðarnefndu hófu skothríð.

Þrengt að íslenskri tungu

„Ef þessi þróun heldur áfram næstu áratugi og námskeiðum og heilum námsbrautum á ensku fjölgar blasir við að verulega mun þá þrengt að íslenskri tungu í háskólasamfélaginu á Íslandi. Svo gæti farið að íslenska yrði ekki lengur gjaldgeng í íslenskum háskólum og yrði að víkja þar fyrir ensku. Við það myndi staða íslenskrar tungu í íslensku samfélagi veikjast,“ segir í ályktun Íslenskrar málnefndar.

Stjórnlagaþing tryggi sjálfstæði dómstóla

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, vill að stjórnlagaþingið sem tekur til starfa í febrúar á næsta ári tryggi sjálfstæði dómstóla þegar stjórnarskráin verður endurskoðuð. Einnig sé brýnt að stjórnarskráin sé rýmri þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslum.

Lýst eftir 14 ára pilti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gabríel Brown Björnssyni sem er fæddur 4. nóvember árið 1995. Hann er með gifs á hægri hendi og m.a. sykursjúkur.

„Þeir þurfa mömmu litlu greyin“

Þeir eru nýfæddir og krúttlegir en þá vantar fósturmömmu, hvolpana í Mosfellsbæ. Eigendurnir gripu til þess ráðs að auglýsa á Facebook. Bella, sem var Cavalier tík, gaut fimm hvolpum á þriðjudag en aðeins tveir lifðu. Bella dó í nótt og hvolparnir tveir því munaðarlausir.

Hvar stendur íslenska umhverfismerkið í sjávarútvegi?

Icelandic Group tilkynnti í gær að fyrirtækið hefði hafið vottunarferli í öllum þorsk- og ýsuveiðum við Ísland samkvæmt vottunarferli Marine Stewardship Council (MSC). Icelandic Group er stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi og því er þetta stórt skref.

Sparnaðarinn hverfur með auknum flutningskostnaði

Áformaður niðurskurður hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða skilar litlu en skaðar mikið því stór hluti sparnaðar hverfur með auknum flutningskostnaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt sem gerð hefur verið á efnahags- og samfélagslegum áhrifum fyrirhugaðs niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða en hún var kynnt á borgarafundi í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði sem hófst klukkan 18. Það voru þau Dóra Hlín Gísladóttir, verkfræðingur, og Kristinn Hermannsson, hagfræðingur, sem unnu skýrsluna fyrir svokallað Heimavarnarlið, sem eru grasrótarsamtök sem vilja standa vörð um heilbrigðisþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum.

Hækkanir framundan í Reykjavík

Álögur á venjulega fjögurra manna fjölskyldu í Reykjavík gætu hækkað um 75 og upp í 450 þúsund á ári hækki gjöld og skattar í höfuðborginni til samræmis við það sem tíðkast í sumum nágrannasveitarfélögum.

Gas finnst í borkjörnum af Drekasvæðinu

Vottur af gasi hefur fundist í borkjörnum sem teknir voru í sumar á botni Drekasvæðisins. Sendinefnd íslenskra stjórnvalda hefur undanfarna tvo daga fundað í Osló með norskum stjórnvöldum, meðal annars um skattalöggjöf, til að undirbúa næsta olíuútboð Íslendinga.

Engin sátt grafi fyrirtæki undan réttindum launafólks

Það verður engin sátt á vinnumarkaði ef fyrirtæki ætla að nýta sér slæmt atvinnuástand til að grafa undan réttindum launafólks. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir að það fari vaxandi að atvinnurekendur brjóti gegn kjarasamningum.

„Þetta er eins og einhverskonar geðveikrahæli“

„Það gengur ekki að hafa tugþúsundir manna niðri á Austurvelli öskrandi á Alþingishúsið og kastandi drasli í það. Þetta er ekki siðmenntað stjórnarfar. Þetta er eins og einhverskonar geðveikrahæli,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Hann á von á því borinn verði fram vantrautstillaga á ríkisstjórnina innan skamms. „Við sjáum furðulegar uppákomu eins og þegar maður gengur inn í Landsbankann með gjallarhorn og stendur uppi á borði og heimtar að fá að tala við bankastjórann. Svona hlutir eru orðnir daglegt brauð á Íslandi. Það er meira en lítið að hérna.“

Lenti heilu og höldnu

Tveggja hreyfla Dornier flugvél lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli á fimm tímanum í dag. Um borð voru tveir menn en flugvélin var að koma frá Kanada. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að lágmarksviðbúnaður hafi verið á flugvellinum og að um svokallaða öryggislendingu hafi verið ræða.

Biskupsstofa: Kynferðisbrot ekki liðin innan kirkjunnar

„Kynferðisbrot eru ekki liðin í starfi kirkjunnar og hún harmar það þegar slík mál koma upp,“ segir í tilkynningu frá Biskupsstofu vegna umræðu í fjölmiðlum að undanförnu um mál sem eru til umfjöllunar hjá fagráði þjóðkirkjunnar. Biskupsstofa bendir á að fagráðið starfi sjálfstætt og án afskipta starfsfólks í söfnuðum eða yfirstjórn kirkjunnar.

Hefndi sín á vitlausum manni

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm yfir karlmanni sem var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að slá karlmann í höfuðið með flösku. Hinn dæmdi var sjálfur sleginn með flösku í höfuðið umrætt kvöld en atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Nasa í september 2008.

Starfsmaður meðferðarheimilis í 2 ára fangelsi

Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir fyrrverandi starfsmanni á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal. Hæstarétti þótti sannað að maðurinn hefði brotið gróflega gegn stúlku sem vistuð var á heimilinu í byrjun árs 2008. Hún var sextán ára þegar að brotin voru framin.

Rannsóknarnefnd skoðar lífeyrissjóðina

Landssamtök lífeyrissjóða minna á að Ríkissáttasemjari hefur skipað rannsóknarnefnd að ósk samtakanna til þess að rannsaka og kanna fjárfestingarstefnu, ákvarðanir og lagalegt umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins.

Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna Dornier vélar

Viðbúnaður er á þessari stundu á Keflavíkurflugvelli vegna Dornier flugvélar sem gert er ráð fyrir að muni lenda á Keflavíkurflugvelli um hálffimmleytið. Annar hreyfill vélarinnar er óvirkur. Tveir menn eru um borð í vélinni. Samkvæmt upplýsingum frá upplýsingafulltrúa Isavia hefur viðbúnaðarstig verið sett á „Hættustig lítið“.

Handtekinn með afsagaða haglabyssu og fimm mótorhjól

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær karlmann á þrítugsaldri eftir að nokkuð magn af þýfi og fíkniefnum fundust í hans vörslu. Má þar meðal annars nefna afsagaða haglabyssu, fimm mótorhjól og rúmlega 250 grömm af amfetamíni. Maðurinn er enn í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

LÍÚ: Berjumst gegn hugmyndum stjórnvalda

„Það er nauðsynlegt að rekja fyrir ykkur samskipti okkar við stjórnvöld nokkuð ítarlega. Aðeins þannig tel ég mér fært að leiða ykkur inn í þá veröld sem við búum við. Allt frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda hefur mikilvægasta verkefni okkar falist í því að berjast gegn illa ígrunduðum og óraunhæfum hugmyndum stjórnvalda.

Hannes Þór á ársgamlan son - Afi býður hann velkominn

„Þetta er óvænt ljós í myrkrinu,“ sagði Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við Góu, í viðtali við Pressuna.is en þar segir frá því að sonur hans, Hannes Þór, sem var myrtur í ágúst síðastliðnum, eigi ársgamlan son.

Íslendingafélagið í Árósum lagt niður

Það var ákveðið eftir aðalfund Íslendingafélagsins í Árósum í gær (ÍSFÁN) að leggja félagið niður. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu félagsins mætti aðeins einn aðili á fundinn.

Sólheimar hugsanlega úr sögunni

Grundvöllur fyrir starfi Sólheima í Grímsnesi að málefnum fatlaðra gæti verið brostinn, segir í samþykkt fulltrúaráðs Sólheima frá því í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir