Innlent

Kristján nýr formaður

Kristján Guðmundsson.
Kristján Guðmundsson.
Á nýafstöðnum aðalfundi Vímulausrar æsku - Foreldrahúss var Kristján Guðmundsson kjörinn formaður aðalstjórnar samtakanna. Ólöf Ásta Farestveit, sem gegnt hefur formennsku í 4 ár, hætti í stjórn samtakanna.

„Starfsárið 2009 var afar viðburðaríkt hjá samtökunum og þrátt fyrir erfiðleika, bæði í atvinnulífi og hjá hinu opinbera, tókst Vímulausri æsku að standast þann mótbyr sem fjárhagslegt óöryggi liðins árs hafði í för með sér. Samtökin njóta trausts í samfélaginu og margir studdu dyggilega við bakið á starfseminni,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Þar kemur fram að starfsemi samtakanna hafi verið kynnt hjá öllum barnaverndarnefndum, félagsþjónustum og meðferðarheimilum. Tilgangurinn var fyrst og fremst að veita unglingum í vanda, alla þá þjónustu sem möguleg er.

Í stjórn voru auk Kristjáns kosin þau Ármann Kr. Ólafsson, Álfheiður Einarsdóttir, Halldóra Ingibergsdóttir, Jón Trausti Jónsson, Stefán H. Stefánsson og Jóna Hrönn Bolladóttir, sem kemur ný inn í stjórn samtakanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×