Hermann Maier á hundasleða uppi á Langjökli 29. október 2010 06:00 Hermann Maier tekur þátt í keppni milli Austurríkis og Þýskalands sem tengist Suðurskautslandinu. Hér er hann hins vegar í kröppum dansi uppi á Langjökli.
Austurríska skíðastjarnan Hermann Maier var á Langjökli um helgina. Þar var skíðamaðurinn að taka upp auglýsingu fyrir austurríska bankann Raiffeisen sem er sérstakur styrktaraðili Maiers í nýstárlegri keppni milli Þýskalands og Austurríkis. Keppnin snýst um að ganga yfir Suðurskautslandið á sex vikum og átti auglýsingin að fjalla um það á gamansaman hátt hvernig Maier farnast þar. Um var að ræða bæði kvikmyndatökur og venjulegar myndatökur. Að sögn Einars Sveins Þórðarsonar hjá kvikmyndafyrirtækinu Pegasusi sem þjónustaði tökuliðið gengu tökur ágætlega fyrir sig þó að snjóleysi á jöklinum hafi sett smá strik í reikninginn. "Við fengum hins vegar drauma-snjókomu á sunnudaginn og þá var hægt að klára þetta." Maier og félagar voru ferjaðir upp á jökulinn með þyrlum en yfir þrjátíu manns komu að gerð auglýsingarinnar. Leikstjóri hennar var þýskur en það var austurrískt fyrirtæki sem framleiddi hana. Einar Sveinn segir Maier hafa verið einstaklega ljúfan náunga og lausan við alla stjörnustæla. Kvikmyndagerðarmennirnir segja Maier vera ljúfan náunga. Maier er einn sigursælasti skíðakappi heims og aðeins Ingemar Stenmark hefur unnið fleiri heimsbikarsigra en hann. Maier sló eftirminnilega í gegn á Vetrarólympíuleikunum í Nagano árið 1998 þegar hann vann tvö gull, eitt silfur og eitt brons. Hins vegar virtist skíðaferill hans vera stefnt í hættu þegar hann slasaðist alvarlega í bifhjólaslysi árið 2001 en þá mátti litlu muna að hann missti framan af öðrum fæti sínum. Með stífri endurhæfingu og mikilli elju tókst Maier hins vegar að komast aftur á fætur og var mættur til keppni árið 2003. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Sjá meira