Fundu stofna sem valda hóstaveikinni 29. október 2010 05:30 Eggert Gunnarsson, dýralæknir og bakteríufræðingur á Keldum, á ekki von á öðrum hóstafaraldri í hrossum, þótt bakterían sé komin til að vera.
Vísindamenn á Tilraunastöðinni á Keldum hafa fundið bakeríustofna sem taldir eru valdir að einkennum hóstaveikinnar í hrossum. Líkur benda til að þessir stofnar hafi borist hingað frá útlöndum. Það eru þeir Eggert Gunnarsson, dýralæknir og bakteríufræðingur, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur, og Ólöf Sigurðardóttir, dýralæknir og meinafræðingur, sem öll starfa á Keldum, sem unnið hafa að rannsóknum á hóstaveikinni. „Við höfum stofnagreint eina 25 bakteríustofna," útskýrir Eggert. „Fimmtán þeirra hafa samsvörun við stofn sem greindur hefur verið í tengslum við öndunarfærasýkingu í hrossum í nágrannalöndunum. Sex af þessum 25 stofnum eru með sýkingaþætti, eins konar eiturefni, sem koma í veg fyrir hefðbundin viðbrögð ónæmiskerfisins við sýkingu og hindra að hinn smitaði einstaklingur geti myndað verndandi mótefni, sem skýrir endursmitið í hrossunum. Mótefni myndast þó smátt og smátt og mótstaðan vex með aldrinum. Þessi fundur er stórt skref, ekki síst með tilliti til gerðar bóluefnis við veikinni því ef til vill eru þessir stofnar frumorsök sjúkdómsins." Eggert segir litla hættu á hóstafaraldri í hrossum eins og hann gerðist hvað verstur. Flest hross hafi sýkst og ekki verði sama uppmögnun á smitefninu aftur þar sem mörg hrossanna hafi þegar myndað eitthvert ónæmi. Veikin sé þó komin til að vera og verði í framtíðinni líklega fyrst og fremst vart í ungum hrossum og folöldum. Spurður um hvort hætt sé að taka við folöldum í krufningu á Keldum vegna rannsókna á hóstaveikinni, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu í gær, segir Eggert að ákveðið fjármagn liggi fyrir sem verja skuli til rannsókna af þessu tagi. „Tilgangurinn var ekki að greina hvað verður öllum folöldum sem drepast í landinu að fjörtjóni, heldur að ná í efnivið sem gæfi okkur einhverja mynd af því sem væri á ferðinni í tengslum við hóstaveikina. Krufning og úrvinnsla sýna krefst mikillar vinnu og þegar sautján folöld höfðu borist þá ákváðum við að nóg væri komið til þess að vinna með, bæði hvað varðaði efnivið og með hliðsjón af kostnaði." Eggert segir að hægt hafi verið að tengja dauða fjögurra folalda við hóstaveikina og hjá þremur folöldum hafi sýking sennilega verið meðvirkandi þáttur í dauða þeirra. Auk þess hafi svokallað fitudrep og hvítvöðvaveiki greinst í um helmingi folaldanna, sem sé vísbending um vöntun á e-vítamíni eða seleni. jss@frettabladid.is
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Sjá meira