Innlent

LÍÚ: Berjumst gegn hugmyndum stjórnvalda

„Það er nauðsynlegt að rekja fyrir ykkur samskipti okkar við stjórnvöld nokkuð ítarlega. Aðeins þannig tel ég mér fært að leiða ykkur inn í þá veröld sem við búum við. Allt frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda hefur mikilvægasta verkefni okkar falist í því að berjast gegn illa ígrunduðum og óraunhæfum hugmyndum stjórnvalda.

Hugmyndum um upptöku og uppboð á aflaheimildum samkvæmt svokallaðri fyrningarleið sem settar voru fram án nokkurs mats á afleiðingum þeirra."

Þetta kom fram í ræðu Adolfs Guðmundssonar formanns LÍÚ á aðalfundi samtakanna í dag. Adolfs segir að íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður, hátæknivæddur þekkingariðnaður þar sem fjölmargir aðilar leggja hönd á plóg, bæði beint og óbeint.

„Við eigum í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi um sölu sjávarafurða og alla daga eru þúsundir manna og kvenna að vinna frábært starf í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum,"segir Adolf. Formaðurinn segir einnig: „Engu að síður er umræðan um sjávarútveginn hér heima fyrir oftast neikvæð og snýst langmest um kvótakerfið og hvernig því skuli breyta. Margir sem þar koma að vilja breyta reglum þannig að þeir geti veitt án þess kaupa eða vinna sér inn veiðiheimildir. Aðrir telja að með því að skattleggja sjávarútveginn sérstaklega verði hag þeirra betur borgið. Þeir hafa hinsvegar fæstir komið nærri sjávarútvegi eða látið sér detta það í hug. Margir þessara aðila kveðast drifnir áfram af sanngirni, jafnræði og mannréttindum. Að vísu er þar oft á tíðum lítið rúm fyrir mannréttindi þeirra starfa í atvinnugreininni."

Adolf segir sjávarútveginn vera mikilvæga atvinnugrein fyrir Íslendinga og munu verða það áfram. Því væri það nauðsynlegt að hér væri stundaður sjálfbær sjávarútvegur sem skilaði okkur öllum arði. „Það er hinsvegar ekkert sjálfgefið að svo sé og þannig hefur það ekki alltaf verið," bætir hann við.

Ræðuna í heild má finna á vefsíðu LÍÚ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×