Fleiri fréttir

Loðnukvóti líklegast gefinn út

Magn ungloðnu er mun meira en mælst hefur í mörg ár, samkvæmt mælingum Hafrannsóknarstofnunar. Þessar niðurstöður leiða líklega til þess að ráðlagður verði upphafskvóti fyrir vertíðina 2011/2012.

Háskóli Íslands varar nemendur við þráðlausa netinu

Háskóli Íslands varar nemendur við sem nota þráðlausa netið í skólanum og segja að opin þráðlaus net hafi alltaf verið óörugg. „Þetta hefur verið flókin aðgerð og því ekki mikið um misnotkun að ræða þar til nú."

Gagnrýna forgangsröðun meirihlutans

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og VG í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýna forgangsröðun í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár. Sóley Tómasdóttir, oddviti VG, fagnar fyrirhuguðum útsvarshækkunum, en Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sjálfstæðisflokki, hafnar algjörlega útsvars- og gjaldahækkunum í Reykjavík.

Hvetur launþega til að sækja rétt sinn

Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að ótti launþega um að sækja sín réttindi sé ekki eingöngu bundinn við hinn almenna vinnumarkað. Niðurskurðarkrafan í opinbera geiranum hafi valdið því að kjarasamningsbundnum réttindum launþega hafi í sumum tilvikum verið vikið til hliðar.

Metfjöldi doktorsvarna við HÍ

Alls fóru 32 doktorsvarnir fram við Háskóla Íslands í fyrra og hafa þær aldrei verið fleiri. Fjórtán varnir fóru fram hjá Heilbrigðisvísindasviði, fjórar frá Hugvísindasviði, fimm frá Félagsvísindasviði, ein frá Menntavísindasviði og átta frá Verkfræði- og náttúruvisindasviði.

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun og stendur til sunnudagsins 5. desember. Veiðar eru heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu. Samkvæmt frétt á vef Umhverfisstofnunar verður áfram friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti.

Mótmæla tillögum Mannréttindaráðs á Facebook

Hátt í sex hundruð manns hafa skráð sig í Facebook-hóp sem mótmælir tillögum Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um trúboð í skólum. Í lýsingu á síðunni segir einfaldlega:

Umdeild ráðning FME í nýja stöðu

Fjármálaeftirlitið hefur ráðið Ingibjörgu S. Stefánsdóttur sem sviðsstjóra rekstrarsviðs. Starfsfólki Fjármálaeftirlitsins var tilkynnt um þetta í fyrradag. Þann 11. október spurði blaðamaður Vísis Gunnar Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, hvort staðan hafi verið sérstaklega búin til fyrir Ingibjörgu. Svar Gunnars var: „Að sjálfsögðu ekki."

Ók án ökumanns frá Ítalíu til Kína

Mannlaus bíll setti á dögunum met þegar hann ók frá Ítalíu alla leið til Kína. Um heimsmet er að ræða en þetta er lengsta ökuferð ómannaðs ökutækis í sögunni. Það voru ítalskir sérfræðingar sem útbjuggu bílinn en hann er búinn fjarlægðarskynjurum og GPS staðsetningarbúnaði og getur keyrt án þess að ökumaður komi nokkuð þar að.

Hreyfingin vill nýja stjórn

Hreyfingin vill að hafin verði undirskriftasöfnun til að skora á forseta lýðveldisins að skipa starfhæfa ríkisstjórn í landinu svo fljótt sem verða má. Ályktun þessa efnis var samþykkt á opnum fundi Hreyfingarinnar í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hreyfingunni.

Ármann vill ekki sameinast Reykjavík

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Kópavogi, telur ekki heillavænlegt að Kópavogur og Reykjavík verði sameinuð. „Mér finnst alveg út í bláinn að sameina tvö af stærstu sveitarfélögum landsins þannig að úr verði um 150 þúsund manna sveitarfélag," segir Ármann. Honum finnst liggja mun beinna við að ef sameina eigi sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þá ætti að sameina þau smærri en halda Reykjavík sér. Þannig myndi skapast meira jafnvægi á milli sveitarfélaga en að búa til eitt svo stór að það teldi tæpan helming allra landsmanna.

Varað við stormi og stórhríð

Veðurstofan varar við stormi og stórhríð víða um land um helgina. Strax á morgun verður vaxandi austan- og norðaustanátt á öllu landinu og á laugardag er búist norðaustan hvassviðri eða stormi við austur- og norðurströndina með talsverðri snjókomu og enn hvassari vindi á hálendinu.

„Vaktmaður fjallsins“ fórst í gosinu

Að minnsta kosti þrjátíu og tveir létust þegar eldfjallið Merapi í Indónesíu gaus á þriðjudaginn var. Sú tala gæti hæglega hækkað að sögn björgunarmanna á svæðinu.

Ægir snýr aftur eftir sex mánaða fjarveru

Það voru fagnaðarfundir þegar varðskipið Ægir lagðist að bryggju í Reykjavík í gærkvöldi eftir sex mánaða fjarveru í leiguverkefni fyrir landamærastofnun Evrópusambandsins.

Rúmlega 300 látnir og óttast um fleiri

Fyrstu myndirnar eru nú teknar að berast frá Mentawai eyjunum í Indónesíu sem urðu fyrir flóðbylgju á mánudaginn var og sýna þær gríðarlega eyðileggingu.

Borgaði 300 milljónir fyrir Bond-bílinn

Bandarískur bílaáhugamaður borgaði í gær 2,6 milljónir bandaríkjadala, eða tæpar 300 milljónir íslenskra króna fyrir Aston Martin DB5 bílinn sem njósnari hennar hátignar, James Bond, þeyttist um á í fyrstu myndum sínum.

Ráðgert að Perlan dæli í dag

Ráðgert er að sanddæluskipið Perlan hefji dælingu úr Landeyjahöfn í dag, en ekkert hefur verið dælt úr höfninni síðan á sunnudag.

Mjög ósáttur vegna krufningar folalda

„Þetta eru ekkert annað en hamfarir fyrir mér í minni hrossarækt,“ segir Ríkharður Flemming Jensen hrossaræktandi. Hann missti nýverið tvö folöld af þremur, sem hann átti, úr hóstapestinni, að því er hann telur.

Aparnir hnerra í rigningunni

Vísindamenn á ferð um frumskóga Búrma hafa uppgötvað nýja apategund í norðurhluta landsins. Heimamenn hafa reyndar vitað af öpunum lengi, og því sérkennilega einkenni þeirra að hnerra þegar rignir.

Eftirlaunafrumvarp samþykkt

Franska þingið samþykkti í gær frumvarpið umdeilda sem felur í sér hækkun eftirlaunaaldurs í Frakklandi um tvö ár. Nánast stanslaus mótmæli gegn frumvarpinu vikum saman hafa sett þjóðlíf í Frakklandi úr skorðum.

Ísland aldrei mælst neðar á listanum

Ísland er fallið niður í ellefta sæti á lista alþjóðasamtakanna Transparency International, sem mæla spillingu í opinbera geiranum. Ísland hefur ekki áður mælst neðar á listanum, en fyrir hrun var Ísland jafnan í efstu sætunum og iðulega í því fyrsta.

Ríkisstjórnin ræðir netöryggi

Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ætlar að kynna tillögur um viðbrögð og vinnulag vegna net­öryggis á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag. Verið er að leggja lokahönd á málið í ráðuneytinu, samkvæmt upplýsingum þaðan.

Gefur lítið fyrir rökstuðning

Einn umsækjenda um starf skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins gefur lítið fyrir rökstuðning dómsmálaráðherra fyrir ráðningu fyrrum aðstoðarmanns ráðherra í starfið. „Mér finnst þessi rökstuðningur ekki merkilegur, og augljóst að þetta eru eftirárök,“ segir Geir Oddsson auðlindafræðingur.

Leit að fólki á tveimur hamfarasvæðum

Síðdegis í gær var vitað um rúmlega 270 manns sem látist höfðu af völdum flóðbylgjunnar sem lenti á Indónesíu. Eldgosið, sem hófst á þriðjudag annars staðar í eyjaklasanum, hafði kostað um þrjátíu manns lífið.

Veiði smábáta 76 þúsund tonn

Afli smábáta á síðasta fiskveiðiári var 75.966 tonn. Það er 2.500 tonna aukning á milli ára. Verðmæti upp úr sjó sló fyrri met, 19,1 milljarður króna sem jafngildir útflutningsverðmætum upp á rúma 38 milljarða, að því kemur fram á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Meira flutt inn af nautakjöti

Innflutningur á nautakjöti hefur aukist umtalsvert milli ára, um 27 prósent. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru flutt inn 95 tonn af kjöti en á sama tímabili í fyrra nam innflutningur 74 tonnum. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda.

Mistök voru að rukka konuna

Ung stúlka sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSV) í kjölfar nauðgunar í ágúst síðastliðnum fékk nýlega senda rukkun í pósti vegna aðstoðar sem hún hlaut í kjölfar nauðgunarinnar. Heilbrigðisstofnanir skulu ekki rukka einstaklinga sem leita eftir aðstoð vegna nauðgunar um komugjald.

Beitti felgulykli gegn lögreglu

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Kópavogi þar sem hann var að reyna að stela dekkjum undan bifreið í bænum.

Kostnaður reyndist hærri en spáð var

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,74 prósent á milli mánaða og mælist verðbólga nú 3,3 prósent samanborið við 3,7 prósent í september. Sé húsnæðisliður tekinn úr tölunum mælist verðbólga nú 4,6 prósent.

Borða þar sem Bill Clinton borðar

Bandaríska dagblaðið New York Times birti á mánudag frétt um matsölustaði sem slegið hafa í gegn í kjölfar þess að Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi borðað þar. Meðal staðanna sem teknir eru fyrir í fréttinni er Bæjarins bestu.

Þrír prestar til viðbótar sakaðir um kynferðisbrot

Þrjú ný mál hafa í síðasta mánuði komið inn á borð fag­ráðs þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot. Þrír einstaklingar hafa leitað til fag­ráðsins og eru ásakanirnar á hendur þremur prestum. Enginn prestanna hefur áður komið við sögu hjá fag­ráðinu.

150 þúsund eintök prentuð

Upplag Símaskrárinnar hefur dregist saman um 25 prósent á síðastliðnum fimm árum.Mest var prentað af skránni árið 2005, eða tvö hundruð þúsund eintök. Símaskráin kemur út í maí á næsta ári í 150 þúsund eintökum. Þetta er ein umfangsmesta bókaútgáfa landsins.

Ranghugmyndir um starfið

Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, skrifaði alþingismönnum bréf síðastliðinn föstudag þess efnis að ranghugmyndir væru meðal þingmanna um að Hraðbraut hafi gefið upp rangan fjölda nemenda til mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hann fullyrðir í bréfinu að ekkert slíkt hafi nokkru sinni gerst.

Aðildin gæti strandað á Mladic og Hadzic

Ráðamenn í Serbíu hafa fagnað ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um að hefja fyrsta stig undirbúnings aðildarviðræðna við Serbíu. Dragan Sutanovic, utanríkisráðherra Serbíu, sagði að nú geti ekkert lengur komið í veg fyrir aðild Serbíu að ESB.

Fimmtán Mexíkóar skotnir í meðferð

Fimmtán manns létust í skotáras á bílaþvottastöð nálægt borginni Tepic í Mexíkó í morgun. Að minnsta kosti tveir í viðbót eru slasaðir.

Dæmi um að fólk veikist í röðinni hjá Mæðrastyrksnefnd

Verkalýðshreyfingin þarf að standa í lappirnar fyrir fólkið í landinu og átta sig á stöðunni sem margir eru í, og stjórnvöld ekki síður. Þetta segir formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Nefndin býr sig og skjólstæðinga undir veturinn og hefur komið upp hituðu tjaldi við úthlutunina, en dæmi eru um að fólk hafi veikst í kuldanum meðan það hefur beðið eftir aðstoð.

Þöglir dómarar - aðeins tveir svara

Aðeins tveir dómarar við Hæstarétt Íslands eru tilbúnir að svara fyrirspurn fréttastofu um hvort þeir séu með gengistryggt lán. Þetta eru Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson, en hvorugur þeirra er með slíkt lán.

Sterar og stinningarlyf í fæðubótarefnum

Gæðaeftirliti með fæðurbótarefnum sem seld eru hér á landi er verulega ábótavant. Dæmi er um að sterum og stinnigarlyfjum sé blandað saman við fæðubótarefni og að þau séu í einhverjum tilfellum skaðleg.

Umfjöllun DV gæti haft áhrif á ákvörðun FME

Fjármálaeftirlitið hefur ekki gefið samþykki sitt fyrir því að hópur fjárfesta undir forystu Heiðars Más Guðjónssonar fái að kaupa Sjóvá og óvíst hvort slíkt samþykki verði veitt, en umfjöllun DV um Heiðar Má kann að hafa áhrif á ákvörðun Fjármálaeftirlitsins.

Útsvar hækkar í Reykjavík - varanlegar aðgerðir

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs segir viðbúið að útsvar hækki á næsta ári, en það dugi ekki eitt og sér. Hækka þurfi gjöld og skera niður. Borgarbúar verði að búa sig undir að þetta verði varanlegt.

Taka ekki veikindafrí af ótta við að missa vinnuna

Slæmt atvinnuástand hefur valdið því að fólk á hinum almenna vinnumarkaði nýtir ekki kjarasamningsbundin réttindi af ótta við að missa vinnuna. Dæmi eru um að fólk þori ekki að taka veikindafrí og sætti sig við laun langt undir taxta.

Sjá næstu 50 fréttir