Fleiri fréttir

Kergja vegna frímiða útvalinna í sólarferð

Fimmtíu nemendur við Menntaskólann á Akureyri rituðu nafn sitt á undirskriftalista til að mótmæla því að útvaldir nemendur við skólann fái útskriftarferð sína og uppihald þar ókeypis. Auk nemendanna fá tveir kennarar og makar þeirra frítt í ferðina.

Um 90 prósent nema munu ekki fá vinnu

Gífurleg aðsókn er í nám til flugumferðarstjóra á þessu ári. Tveir skólar þjálfa til starfsins, Keilir og Flugskóli Íslands. Umsækjendur um námið í Keili voru um 70 í ár, en einungis 30 verða teknir inn í bóknámið, sem varir í þrjá til fjóra mánuði og kostar 540 þúsund krónur.

Átján milljónir vegna nýs kerfis

Kaup á ílátum fyrir lífrænt sorp kosta Akureyrarbæ um 18 milljónir króna. Frá því er greint á fréttamiðlinum vikudagur.is að bærinn hafi samið við Promens Dalvík um kaup á tæplega sex þúsund ílátum, en það sé gert vegna nýrra samninga um sorphirðu í Akureyrarbæ þa

Læknar fái leyfi til að auglýsa

Læknar, tannlæknar og annað heilbrigðisstarfsfólk munu geta auglýst þjónustu sína verði frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra laga um heilbrigðis­starfsfólk að lögum.

Líðan kvennanna stöðug

Líðan kvennanna tveggja sem slösuðust illa í rútuslysi sem varð í Reykjadal í Þingeyjarsýslu í fyrrakvöld er stöðug. Þær eru komnar á almenna deild.

Öllum umsækjendum hafnað

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fól í gær bæjarráði að ganga til viðræðna við Pál Björgvin Guðmundsson, útibússtjóra Íslandsbanka á Reyðarfirði og fyrrum fjármálastjóra bæjarins, um að verða næsti bæjarstjóri sveitarfélagsins. Alls höfðu 23 sótt um starfið en af þeim höfðu fimm dregið umsókn sína til baka. Öllum átján umsækjendunum sem eftir stóðu var því hafnað.

Óheppilegt að hún rannsaki

Það væri óheppilegt að fá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, til að leiða rannsókn á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á meintum mannréttindabrotum Ísraels, að mati Grétars Mars Jónssonar, fyrrverandi þingmanns Frjálslynda flokksins.

Nær köfnuð í beinni útsendingu

Fréttakona á Taiwan var nær köfnuð í astmakasti þegar moskítófluga flaug upp í hana og ofan í háls þar sem hún var að tala í beinni útsendingu.

Ráðist á barnabörn Mandela

Ráðist var á tvö barnabörn Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta Suður - Afríku og reynt að ræna þau þegar að þau voru á leið úr afmælisveislu hans um helgina.

Reykjavíkurborg krefst hugsanlega endurgreiðslu frá GR

Borgarráð telur rétt að fallið verði frá fyrirhugaðri byggingu vélageymslu á svæði GR og að golfklúbburinn endurgreiði Reykjavíkurborg þá fjárhæð sem hann hefur þegar fengið úr borgarsjóði og ætluð var sem greiðsla vegna þeirrar framkvæmdar. Þetta kemur fram í tillögu að bókun sem lögð var fram

Þorleifur ítrekar tillögu um að rannsóknarnefnd taki til starfa

Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi VG, lagði til í borgarráði í dag að skipuð yrði nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Tillagan var upphaflega lögð fram 6. maí síðastliðinn en var tekin á dagskrá í dag og þá var jafnframt samþykkt að skipa nefndina en síðan þá hefur ekkert gerst í málinu.

Sjúkraflutningar á Suðurlandi með óbreyttum hætti

Sjúkraflutningar á Suðurlandi verða með óbreyttum hætti þrátt fyrir boðaðar verkfallsaðgerðir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Heilbrigðisstofnun Suðurlands annast sjúkraflutninga í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu. Í fréttatilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands kemur fram að verkfallið nái ekki til sjúkraflutninga sem stofnunin annast.

Tveir fangar fluttir frá Guantanamo

Bandarísk stjórnvöld hafa flutt tvo fanga úr Guantanamo búðunum til Lettlands og Spánar, samkvæmt upplýsingum sem Danmarks Radio hefur frá

Himinn og haf skilur að slökkviliðsmenn og vinnuveitendur

Himinn og haf skilur að kröfur slökkviliðs og sjúkraflutningamanna og það sem sveitarfélögin eru tilbúin að bjóða þeim, en verkfallsaðgerðir þeirra hefjast í fyrramálið. Áætlanaflug til Akureyrar raskast vegna aðgerðanna.

Rútan var nýlega skoðuð

Rútubifreiðin sem valt í Reykjadal í Þingeyjarsýslu í gær var nýlega skoðuð og með öll tilskilin leyfi, segir í yfirlýsingu frá Ferðakompaníinu til fjölmiðla. Farþegar sem lentu í slysinu voru á vegum Ferðakompaníisins. Í

Óviðkomandi umferð bönnuð um Landeyjarhöfn

Siglingastofnun hefur ákveðið að banna umferð annarra skipa og báta en Herjólfs á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Í tilkynningu frá Siglingastofnun kemur jafnframt fram að nauðsynlegt er að takmarka siglingar út frá slysahættu, þar sem að svæðið er ófrágengið og framkvæmdir ennþá í gangi.

Þyrlan sótti konu sem datt af hestbaki

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti slasaða konu sem datt af hestbaki við Leggjarbrjót á milli Þingvalla og Hvalfjarðar um fjögur leytið í dag.

Gefur út reglugerð um úthlutun á þorski og ýsu

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um úthlutun á 1100 tonnum af þorski og 800 tonnum af ýsu sem áður hafði verið ráðstafað til línuívilnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.

Hafið hundana í taumi - sumir eru hræddir við þá

Undanfarið hefur borist talsvert af kvörtunum til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna lausagöngu hunda í borginni. Samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavík er hundaeigendum skylt að hafa hunda sína í taumi víðast hvar í borgarlandinu og skapa brot á því óþægindi fyrir alla borgarbúa.

Björk hefur safnað tíu þúsund undirskriftum

Tíu þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að koma í veg fyrir söluna á HS-Orku til Magma Energy. Í áskoruninni er einnig skorað á stjórnvöld að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um eignarhald á orkuauðlindum landsins.

Frekar flókin nauðgun

Þrítugur Arabi hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi í Jerúsalem fyrir nauðgun. Samfarirnar voru þó með fullu samþykki konunnar.

Vilja öll gögn varðandi sölu Magma Energy

Jón Þórisson og Haraldur Hallgrímsson, aðstandendur undirskriftarsöfnunar gegn kaupum Magma Energy á HS Orku, hafa óskað eftir því við forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og iðnaðarráðherra, að fá afhent öll gögn sem varða samskipti ráðneytana við Magma Energy Sweden AB, Magma Energy Corp Canada, Ross Beaty, Geysir Green Energy, Ásgeir Margeirsson, HS Orku og tengdra aðila.

Bretadrottning dró heimboð til baka

Nick Griffin leiðtoga Breska þjóðarflokksins hefur verið meinaður aðgangur að garðveislu Elísabetar drottningar í eftirmiðdaginn.

60 ára og eldri geta átt rétt á endurgreiðslu

Vinnumálastofnun vekur athygli á því að þeir sem eru orðnir sextíu ára og eldri, og hafi fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna séreignarlífeyris, geti átt rétt á endurgreiðslu frá sjóðnum.

Hafa fengið frest til að skila greinagerð vegna Icesave

Íslensk stjórnvöld hafa sótt um og fengið frest til að skila greinargerð til Eftirlitsstofnunar EFTA, eða ESA vegna úrskurðar sjóðsins um að íslenska ríkinu beri að ábyrgjast lágmarksgreiðslur vegna Icesave innistæðna spárifjáreigenda hjá gamla Landsbankanum.

Hringdi heim til Spánar eftir hjálp

Spænskur ferðamaður hringdi heim til Spánar eftir hjálp því hann taldi að hann væri týndur í Seyðisfirði síðustu helgi. Nærstaddir ferðalangar höfðuð boðið honum aðstoð en hann afþakkaði hana og hringdi þess í stað til Spánar.

15 ára bankaræningjar

Tveir fimmtán ára piltar hafa verið handteknir í Kristianssand Noregi fyrir fjögur vopnuð bankarán. Þeir eru einnig grunaðir um fleiri rán.

Búið að finna bílinn sem var stolið á Kársnesi

„Lögreglan er búin að finna bílinn, það var búið að hreinsa allt út úr honum,“ segir Kristrún Júlíusdóttir íbúi á Kársnesi í Kópavogi. Við sögðum frá því 14. júlí síðastliðinn að bílnum hennar var stolið þegar að hún hleypti kettinum sínum út. Þjófurinn fór inn í húsið og tók bíllyklana eftir að Kristrún skyldi eftir litla rifu á útidyrahurðinni. Bíllinn hefur verið týndur síðan en er nú kominn í leitirnar.

Hagkaup í Skeifunni rýmd vegna freon leka

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að verslun Hagkaupa í Skeifunni í gærkvöldi eftir að skynjarar gáfu til kynna að þar væri eiturefnaleki.

Bosníubúi talinn óheppnasti maður heimsins

Hinn fimmtugi Bosníubúi Radivoke Laijc er nú talinn óheppnasti maður í heimi. Sex sinnum hafa loftsteinar hrapað niður á hús hans í bænum Gornji Lajici frá árinu 2007 og skemmt það.

Grafalvarleg staða á flóðasvæðunum í Kína

Kínverjar búa sig nú undir að staðan á flóðasvæðunum í suðurhluta landsins muni versna að mun seinna í dag þegar hitabeltisstormurinn Chanthu skellur á suðurströnd landsins.

Sjá næstu 50 fréttir