Innlent

Læknar fái leyfi til að auglýsa

Læknar, tannlæknar og annað heilbrigðisstarfsfólk munu geta auglýst þjónustu sína verði frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra laga um heilbrigðis­starfsfólk að lögum.

Samkvæmt gildandi læknalögum, sem felld verða úr gildi ef hið nýja frumvarp verður samþykkt, er læknum einungis heimilt að auglýsa starfsemi sína „með efnislegum og látlausum auglýsingum þegar hann hefur störf eða breyting verður á aðsetri eða viðtalstíma", sem Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, líkir við dánarauglýsingar. Það sama á við um tannlækna.

„Hér er um að ræða mun þrengri heimildir til auglýsinga á starfsemi heilbrigðisstarfsmanna en annars staðar tíðkast," segir í greinargerð með frumvarpinu. „Lagt er til að heimila almenna kynningu og auglýsingar á starfsemi, enda sé gætt málefnalegra sjónarmiða, fyllstu ábyrgðar, nákvæmni og sanngirni." Ákvæðið sé byggt á norskum lögum og að ráðherra verði heimilt að kveða frekar á um takmarkanir við auglýsingunum í reglugerðum.

Birna segir að slík breyting yrði jákvæð þrátt fyrir að félagið sé almennt alfarið á móti upptöku heildstæðra laga um heilbrigðisstarfsmenn og aflagningu læknalaga.

„Í þessu upplýsingasamfélagi sem við lifum í dag og með þessa fjölbreytni sem er þá finnst okkur eðlilegt að fólk geti notað fleiri miðla en bara þrjár jarðarfarartilkynningar í blöðunum um starfsemi sína." segir hún. Það eigi að gilda jafnt í einkarekstri og opinberum stofnunum, sem einnig ættu að geta veitt fólki nánari upplýsingar um starfsmenn sína. Birna bendir þó á að ómögulegt sé að segja til um hvaða hömlur ráðherra myndi síðan setja í reglugerðum.

Í siðareglum lækna er þegar fjallað um auglýsingar. Samkvæmt þeim má læknir ekki „gefa fyrirheit um undralækningar né heldur gefa í skyn, að honum séu kunn lyf eða lækningaaðferðir, sem ekki séu á vitorði lækna almennt". Hann má heldur ekki „vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína yfir aðra lækna", né nota titil sinn til að auglýsa lyf. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×