Innlent

Vilja öll gögn varðandi sölu Magma Energy

Jón Þórisson og Haraldur Hallgrímsson, aðstandendur undirskriftarsöfnunar gegn kaupum Magma Energy á HS Orku, hafa óskað eftir því við forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og iðnaðarráðherra, að fá afhent öll gögn sem varða samskipti ráðneytana við Magma Energy Sweden AB, Magma Energy Corp Canada, Ross Beaty, Geysir Green Energy, Ásgeir Margeirsson, HS Orku og tengdra aðila.

Í bréfi sem þeir sendu ráðherrunum óska þeir eftir því, með tilvísun til upplýsingalaga, að fá afrit af minnisblöðum af fundum ráðuneytisins með ofangreindum aðilum og afritum af minnisblöðum og greinargerðum embættismanna er varða Magma Energy, HS Orku, Geysir Green Energy og tengdra aðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×