Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Vegir manna á RÚV órannsakanlegir“ „Það er búið að tilkynna mér að það verður ekki framlengdur samningur við mig sem rennur út í lok ágúst," segir Kristinn Hrafnsson fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hann er nú staddur út í London að vinna að málum tengdum Wikileaks en það var í morgun sem honum var tilkynnt að samningurinn yrði ekki framlengdur. 27.7.2010 13:20
Ísraelsk herþyrla fórst í Rúmeníu Sjö menn létu lífið þegar ísraelsk herþyrla flaug á fjall í Rúmeníu í gær. Sex mannanna voru ísraelskir en sá sjöundi rúmenskur. 27.7.2010 13:18
Dómur mildaður vegna farsímanotkunar Breskur maður hefur fengið eins árs fangelsisdóm skilorðsbundinn vegna þess að ung kona sem hann keyrði á var að tala í farsíma sinn þegar slysið varð. 27.7.2010 12:30
Segir engan fylgjast með Actavis samfélaginu til tjóns Heimilislæknir í Reykjavík segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann leiðir líkum að því að fyrirtækið láti gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekkert um hagsmuni sjúklinga. 27.7.2010 12:15
Lærbraut fjögurra vikna gamlan son sinn Kona hefur verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás gegn fjögurra vikna gömlum syni sínum. Sannað þykir að konan, sem er talsvert misþroska, hafi lærbrotið son sinn. Óútskýrðir áverkar fundust einnig á eins árs gamallri dóttur konunnar. 27.7.2010 12:08
Umræðan villandi Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir það vera áhyggjuefni hversu umræðan á Íslandi um sambandið sé óupplýsandi og jafnvel villandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í morgun að lokinni ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins og Íslands. 27.7.2010 12:01
„Ég er bara á leiðinni upp í sendiráð aftur“ „Ég var handtekinn og keyrður upp á stöð og settur út úr bílnum og mátti fara. Ég er bara á leiðinni upp í sendiráð aftur. Ég er hérna efst á laugarveginum," segir Lárus Páll Birgisson sem var handtekinn fyrir stundu fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu er hann sat á stétt fyrir utan Bandaríska sendiráðið. Hann ætlar að fara aftur upp í sendiráð nú þegar hann er laus. 27.7.2010 11:43
Rýrt úran í skotfærum í Írak Varnarmálaráðherra Bretlands hefur staðfest að breskar hersveitir hafi notað skotfæri með rýrðu úrani í innrásinni í Írak árið 2003. 27.7.2010 11:29
Lárus Páll mótmælir fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna Mótmælandinn Lárus Páll Birgisson situr á stéttinni fyrir framan Bandaríska sendiráðið. Að sögn lögreglumanns sem er á vettvangi er verið að vísa honum af svæðinu. Hann situr sem fastast og er lögreglumaður að ræða við hann. „Þetta fer allt saman fram í rólegheitum," segir lögreglumaðurinn. 27.7.2010 11:21
Slapp tvisvar út af lokaðri deild sömu nóttina „Ég hef verulegar áhyggjur af því að fólk sem er í svona slæmu ástandi sé ekki undir meira eftirliti en það, að það geti farið út án þess að enginn taki eftir því,“ segir systir 24 ára gamals manns með geðklofa. 27.7.2010 10:40
Eldur kom upp í húsbíl á Akranesi Eldur kom upp í bifreið í bílskúr við Skagabraut á Akranesi á miðvikudag. Þegar að slökkvilið kom á staðinn var bifreiðin alelda en greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Bifreiðin er gjörónýt. 27.7.2010 10:13
Norskir bændur fækka nautgripum vegna þurrka Vegna mikilla þurrka í suðurhluta Noregs í sumar er fyrirsjáanlegt að bændur verða að slátra miklum fjölda nautgripa þar sem þeir ná ekki nægum heyforða fyrir veturinn. 27.7.2010 10:07
Pyntingastjóri í 19 ára fangelsi Helsti pyntingastjóri Rauðu kmeranna í Kambódíu hefur verið dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir hlut sinn í dauða að minnsta kosti 14000 manna í hinu illræmda Tuol Sleng fangelsi. 27.7.2010 09:32
Þreföldun orðið á útlánum AGS Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vill stækka útlánagetu sjóðsins í 1.000 milljarða dollara eða rúmlega 122 þúsund milljarða króna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur staðið í ströngu síðan fjármálakreppan skall á fyrir rúmum tveimur árum. Hann aðstoðar nú fjölmörg ríki víða um heiminn, þar á meðal Ísland. 27.7.2010 08:30
Vísindamenn CERN vilja byggja nýja Stóra hvells vél Vísindamenn sem vinna við sterkeindahraðal CERN undir fjöllunum á landamærum Sviss og Frakklands vilja nú byggja nýjan og stærri hraðal sem gengur undir nafninu Stóra hvells vélin. 27.7.2010 08:15
Verð alfarið í höndum verslana Verð á kartöflum hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og vart haldist stöðugt í einn mánuð í senn. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur vísitala neysluverðs haldist nokkuð jöfn á undanförnum 15 árum, þótt hún hafi hækkað um tæp fimmtíu prósentustig síðan í desember 2007. Verð á kartöflum fylgir vísitölu neysluverðs upp að einhverju marki, en þó ekki meira en svo að það fer úr 132 krónum á kílóið í maí 2008 upp í 242 krónur á kílóið í ágúst sama ár. Þetta er um 83 prósenta hækkun á tæpum þremur mánuðum. 27.7.2010 08:00
Laxar á þurru landi Óvenju miklir þurrkar hafa verið á Vestfjörðum að undanförnu og er gróður víða orðinn mjög þurr. Þá er vatnsrennsli í laxveiðiánum við Ísafjarðardjúp orðið mjög lítið. 27.7.2010 07:36
Vegurinn inn í Herðubreiðarlindir lokaður Vegurinn inn í Herðubreiðarlindir lokaðist í gær vestan við Jökulsá á Fjöllum vegna vatnavaxta í Lindaá og er líklega enn lokaður. 27.7.2010 07:24
Moskvubúar glíma við hitabylgju og skógarelda Íbúar Moskvuborgar glíma nú við mestu hitabyglju í sögu borgarinnar.Miklir skógareldar í nágrenni borgarinnar gera illt verra. 27.7.2010 07:21
Afríkuríki ætla að fjölga friðargæsuliðum sínum í Sómalíu Samband Afríkuríkja hefur ákveðið að fjölga friðargæsluliðum sínum í Sómalíu á næstunni. Þett var ákveðið á fundi sambandsins í Úganda sem nú stendur yfir. 27.7.2010 07:17
Skeytingarleysi um líf almennings WikiLeaks birti um helgina yfir 90 þúsund leyniskjöl frá her bandamanna í Afganistan. Stærsti leki í sögu bandaríska hersins. Skjölin sýna skeytingarleysi gagnvart óbreyttum borgurum. Fjölda alvarlegra tilvika hefur verið haldið leyndum fyrir fjölmiðlum. 27.7.2010 07:15
Strandveiðimenn vilja ekki veiða makríl Sjómenn á litlu strandveiðibátunum virðast ekki hafa stokkið á nýlega heimild sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að þeir megi stunda makrílveiðar á línu og handfæri. 27.7.2010 07:13
Reyndi að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni Karlmaður reyndi að brjóta sér leið inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt með því að kasta steinum í stórann útstillingarglugga. Rúðan gaf sig ekki og var maðurinn horfinn þegar lögregla kom á vettvang. 27.7.2010 07:12
Segir ríkisstjórnina óstarfhæfa Ætli stjórnvöld sér að grípa inn í kaup Magma Energy á HS orku getur það bakað ríkinu skaðabótaskyldu. Það setur einnig slæmt fordæmi sem komið getur í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila hér á landi, segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. 27.7.2010 07:00
Sáu ríflega þúsund seli Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. 27.7.2010 06:45
Verða að sleppa til að bjarga stofninum Stórlaxi hefur fækkað gífurlega í ám landsins á undanförnum árum. Veiðimálastofnun hvatti veiðimenn til þess að hlífa stórlaxi í byrjun veiðitímabilsins sökum fækkunarinnar, en stofninn er enn í hættu. Fækkunina má rekja til erfiðra aðstæðna á uppeldisslóðum hans í hafinu og hefur þetta ástand varað í tvo áratugi. 27.7.2010 06:15
Ætla að opna fimm matvöruverslanir Ný verslunarkeðja ætlar sér að opna fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Auglýst var eftir húsnæði í helgarblaði Fréttablaðsins og herma heimildir blaðsins að viðbrögðin hafi verið góð. 27.7.2010 06:00
Ríkiskaup láta hefð ráða frekar en lestur Mikill meirihluti dagblaðaauglýsinga frá mörgum opinberum stofnunum birtist í Morgunblaðinu. Má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íbúðalánasjóð og Ríkiskaup. 27.7.2010 05:15
Áhersla á sérstöðu Íslands Aðildarviðræður Íslands við ESB hefjast formlega á ríkjaráðstefnu í Brussel í dag. Á fundinum verður lögð fram greinargerð um afstöðu ríkisstjórnarinnar til komandi viðræðna. Þar mun ESB einnig leggja fram greinargerð auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, taka til máls. 27.7.2010 05:00
Ferðalangar streyma til Eyja Ferðamönnum til Vestmannaeyja hefur snarfjölgað eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun fyrir viku síðan. Að sögn Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs, lætur nærri að fjöldi farþega hafi þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra. 27.7.2010 04:30
Trébátar sukku í höfninni Tveir bátar sukku í Reykjavíkurhöfn um helgina. Annar báturinn, Gæskur, var í smábátahöfninni sem er við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, en hinn var við Grandagarð og nefnist Ver. 27.7.2010 03:15
Aldrei fleiri í sundlaugunum Metaðsókn var í sundlaugar í Skagafirði í júní en um 11.500 manns sóttu þá laugarnar. Á sama tíma í fyrra voru sundlaugargestir í Skagafirði um 5.500. 27.7.2010 03:00
Kveikt í báti á Suðurnesjum Eldur kom upp í báti neðan við athafnasvæði Gámaþjónustunnar í Njarðvík í fyrradag. Minnstu munaði að eldurinn næði að teygja sig yfir í annan nærliggjandi bát en bensínstöð ÓB er um hundrað metra frá svæðinu þar sem eldurinn kom upp. 27.7.2010 02:00
Þurftu að hafa afskipti af unglingum fyrir utan 10-11 í Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að hafa afskipti af þremur til fjórum strákum á unglingsaldri fyrir utan 10-11 í Keflavík nú fyrir stundu. Að sögn lögreglumanns voru þeir eitthvað að „kýtast“ en þegar lögregla mætti á staðinn róuðust þeir. Enginn slasaðist. 26.7.2010 23:02
Tuttugu létust í bílasprengjum í Írak Að minnsta kosti tuttugu féllu þegar að tvær bílasprengjur sprungu í nágrenni við Karbala í Írak í dag. Árásirnar voru gerðar á þjóðvegi sem liggur til borgarinnar Najaf en margir sjíta pílagrímar fara leiðina. Auk þeirra sem létust særðust tugir manna. 26.7.2010 21:18
Greiddi ekki skuldir sem námu yfir 5 milljörðum Salt Properties, félag í eigu Róberts Wessman, greiddi ekki skuldir sem námu yfir fimm milljörðum króna, en þær voru á gjalddaga í ár. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis og Straumur munu væntanlega leysa til sín eignir félagsins, en það á meðal annars landareignir á Spáni og í Brasilíu. 26.7.2010 18:32
Unglingar í Vinnuskóla Kópavogs rændir á vinnutíma „Ég ætlaði að fara kíkja á símann minn þegar ég og strákur í hópnum hjá mér uppgötvum að það er búið að stela frá okkur," segir Snæfríður Halldórsdóttir flokksstjóri í Vinnuskóla Kópavogs. Hópurinn sem hún sér um og er skipaður 15 ára krökkum varð fyrir því óláni í dag að stolið var þremur farsímum og einum ipod af unglingunum þegar þau voru að vinna á Víghóli í Kópavogi í dag. 26.7.2010 17:21
Nýr bæjarstjóri í Grindavík Róbert Ragnarsson stjórnmálafræðingur er nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í dag samþykkti bæjarstjórnin samhljóða að ráða hann til næstu fjögurra ára. 26.7.2010 20:05
Undrast yfirlýsingar þingmanna Vinstri grænna Þrír þingmenn Vinstri grænna lýstu því yfir um helgina að þeir ætli ekki að styðja ríkisstjórnina áfram takist ekki að ógilda kaup Magma Energy á HS Orku. 26.7.2010 19:10
Of seint að stöðva kaupin en Magma opið fyrir forkaupsrétti Ráðherra getur ekki stöðvað kaup Magma Energy í HS Orku á grundvelli heimildar í lögum þar sem of langur tími er liðinn. Ef kaupsamningur verður samt ógiltur vegna þrýstings frá stjórnvöldum verður HS Orka áfram í eigu útlendinga. Forstjóri Magma á Íslandi segir fyrirtækið opið fyrir forkaupsrétti ríkisins á HS Orku. 26.7.2010 18:45
11 þúsund lífeyrisþegar þurfa að endurgreiða tryggingastofnun Um ellefu þúsund lífeyrisþegar hafa fengið ofgreitt frá Tryggingastofnun ríkisins, samkvæmt endurreikningi og uppgjöri bóta. Ofgreiðslur nema 4,3 milljörðum króna. Það þýðir að að jafnaði, að fólkið þurfi að endurgreiða um fjögur hundruð þúsund krónur. 26.7.2010 18:18
Klæddi sofandi stúlku úr nærbuxum og fróaði sér Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir að klæða sofandi stúlku úr nærbuxunum og fróa sér fyrir framan hana. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust. 26.7.2010 18:07
Love Parade: Öll skjöl skipuleggjenda gerð upptæk Rannsókn er hafin á aðdraganda harmleiksins á Love Parade-göngunni í Duisburg í Þýskalandi á laugardag. Öll skjöl aðstandenda göngunnar voru gerð upptæk í dag. Angela Merkel kanslari segir að rannsóknin verði mjög nákvæm. 26.7.2010 17:43
Rannsaka einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja Lögmæti kaupa Magma Energy á HS orku verður rannsakað af stjórnvöldum og líklegt er að einkavæðing á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja árið 2007, verði líka könnuð ofan í kjölinn. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. 26.7.2010 16:39
Össur fer utan Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heldur í dag til Brussel þar sem hann tekur á morgun þátt í ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins, sem markar upphaf aðildarviðræðna Íslands við sambandið. 26.7.2010 16:05
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent