Fleiri fréttir

Engar áhyggjur af ríkisstjórninni

Þingmaður Samfylkingarinnar segist ekki líta svo á að ríkisstjórnarsamstarfið sé í hættu þrátt fyrir yfirlýsingar nokkurra þingmanna vinstri grænna í Magma málinu. Samfylkingarmenn ætla að ræða Magma málið á óformlegum þingflokksfundi í dag.

Rafsegulsvið svipað og í Svíþjóð

Ný rannsókn á rafsegulsviði í íbúðarhúsnæði sýnir að meðaltal rafsegulsviðs á íbúðarhúsnæði er svipað og í Svíþjóð.

Pakistan leikur tveimur skjöldum í Afganistan

Leyniþjónusta Pakistan aðstoðar Talibana í stríði við Bandaríkjamenn í Afganistan þrátt fyrir að fá milljarð dollara árlega frá Bandaríkjastjórn og vera yfirlýstur bandamaður Bandaríkjanna. Þá virðast Talibanar í Afganistan sterkari en nokkru sinni þrátt fyrir níu ára stríðsrekstur Bandaríkjamanna í landinu. Þetta kemur fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem vefsíðan Wikileaks birti í gærkvöldi.

Pútín á þríhjóli

Forsætisráðherra Rússa, Vladimir Pútín, kom nokkuð á óvart þegar hann mætti á vígalegu Harley-þríhjóli á vélhjólahátíð í Úkraínu um helgina. Flestir hefðu talið að Pútín myndi velja rússneskt Ural-hjól af þessu tilefni.

Aðildarviðræður hefjast á morgun

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að hefja formlegar viðræður við Ísland um inngöngu í sambandið.

Andlit Jesú sést í hænsnafjöðrum Gloriu

Andlit Jesú Krists þykir sjá greinilega í fjöðrum hænunnar Gloriu en hún er meðal húsdýra á býli í ensku Miðlöndunum. Eigandi hænunnar tók eftir andlitnu þegar hann myndaði Gloriu nýlega í rykbaði.

Lítil sem engin lundaveiði í Eyjum

Nokkrir lundaveiðimenn héldu í gær út í úteyjar Vestmannaeyja til veiða, en þær eru heimilar frá og með gærdeginum fram á fimmtudag.

Hugo Chavez hótar olíubanni á Bandaríkin

Hugo Chavez hinn litríki forseti Venensúela hefur hótað því að stöðva alla olíuflutninga frá landinu til Bandaríkjanna ef Kólombíumenn ráðast á Venesúela.

Fordæma lekann hjá Wikileaks

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fordæmt birtingu leyniskjalanna sem Wikileaks vefsíðan hefur birt og jafnframt komið í hendur stórblaðanna New York Times, Der Spiegel og Guardian.

Þriðji hver Dani viðurkennir framhjáhald

Þriðji hver Dani viðurkennir að hafa haldið framhjá maka sínum. Svo virðist sem mikil veðurblíða í Danmörku undanfarnar vikur hafi aukið framhjáhald landsmanna.

Telur óvíst hvort stjórnin lifi

„Það verður bara að fá að koma í ljós,“ segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, spurð hvort hún telji að ríkisstjórnin muni lifa Magma-málið svokallaða af. Þrír þingmenn flokksins, Guðfríður Lilja, Atli Gíslason og Þuríður Backman, hafa um helgina kveðið svo fast að orði að þeir geti ekki – eða tæpast – stutt samstarfið við Samfylkinguna nema kaup Magma á HS orku verði stöðvuð.

Niðurskurður kallar kannski á lokanir

Mikill niðurskurður er yfirvofandi hjá Háskólanum á Akureyri (HA). Skólinn skar niður um 6,6 prósent á síðasta ári og nauðsynlegt er að auka niðurskurð um frekari 8 prósent, eða 105 milljónir króna.

Mikil þörf á góðri nýliðun

Mikil þörf ríkir nú á góðri nýliðun ef sandsílastofninn á ekki að gefa enn frekar eftir, að mati Hafrannsóknastofnunar, eftir fyrstu mælingar á stofninum.

Ráðist á svæði nærri landamærum Afganistans

Ómannaðar flugvélar Bandaríkja­hers skutu flugskeytum á hús á tveimur stöðum í Norðvestur-Pakistan í gær. Haft er eftir heimildarmönnum innan hersins að tólf hafi verið drepnir í árásunum. Þeir hafi verið herskáir andspyrnumenn.

Óánægja ekki nóg til að stöðva kaupin

Sú skoðun þingmanna Vinstri grænna að sala HS orku til Magma Energy sé stefnubreyting frá stjórnarsáttmálanum dugir ekki til þess að hægt sé að stöðva samninginn samkvæmt lögum um erlenda fjárfestingu. Auk þess hefði þurft að grípa inn í málið innan átta vikna frá því að

Talibanar bjóða lík fyrir fanga

Talibanar í Afganistan segjast hafa fellt bandarískan hermann og séu með annan í haldi. Hermannanna tveggja hefur verið saknað síðan á föstudag. Talibanar gáfu út yfirlýsingu í gær um þeir hefðu fellt annan í skotárás en að hinn væri á lífi í haldi þeirra.

Viðræðurnar hefjast formlega á morgun

Ísland mun formlega hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ríkjaráðstefnu ESB sem hefst á morgun á hádegi að íslenskum tíma. Í dag munu utanríkisráðherrar ríkja ESB, að öllum líkindum, samþykkja viðræðurnar.

Sætum í Herjólfi fjölgað um 100

Sætum í ferðum Herjólfs verður fjölgað um 100 í kringum þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í hverri ferð verða því 500 farþegar í stað 400.

Flogið til Nuuk tvisvar í viku

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að fljúga framvegis til Nuuk á Grænlandi allt árið. Flogið hefur verið þangað öll sumur frá árinu 2007 en nú verður flogið þangað tvisvar í viku.

Búist við brottrekstri forstjóra BP

Tony Hayward, forstjóri British Petroleum (BP), lætur af störfum á allra næstu dögum, að því er breskir fjölmiðlar greina frá. Stjórn BP staðfestir ekki orðróminn og hefur gefið frá sér tilkynningu í þá veru að Hayward njóti trausts fyrirtækisins.

Kjötfarsverð stöðugast af unnu kjöti

Miklar verðsveiflur hafa verið á unnum kjötvörum á síðustu árum. Verðbreytingar hafa þó verið misjafnar eftir vöruflokkum, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu frá Hagstofunni og DataMarket.

Foreldrar stúlku með hvítblæði ætla að kæra Orkuveituna

Foreldrar fimm ára stúlku sem greindist með hvítblæði skoða nú réttarstöðu sína og hyggjast kæra Orkuveitu Reykjavíkur, en mælingar leiddu í ljós að rafsegulsvið var langt yfir hættumörkum í húsi þeirra. Of hátt rafsegulsvið hefur mælst á heimilum þriggja barna sem glíma við hvítblæði.

Einn stærsti leki í sögu Bandaríkjahers

Wikileaks vefsíðan hefur birt meira en 90 þúsund skjöl frá bandaríska hernum sem innihalda upplýsingar um stríðið í Afganistan frá árunum 2004 til dagsins í dag. Þrjú stórblöð sem birt hafa upplýsingar úr skjölunum segja að þau hafi að geyma áður óbirtar heimildir um að óbreyttir afganskir borgarar hafi verið drepnir í stríðinu.

Blóðvatn á Eskifirði: Heilbrigðiseftirlitið átti að loka veitunni

Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð gagnrýnir heilbrigðiseftirlitið harðlega eftir að blóðvatn lak í vatnsveitubæjarins í byrjun mánaðarins. Hann segir að eftirlitið hafi gefið grænt ljós á vatnsveituna eftir að hafa bara tekið sýni á einum stað. Nokkrum dögum síðar hafi hundrað til tvö hundrað manns verið með niðurgang og fólk farið á spítala í kjölfarið.

Garðbæingar halda samstöðufund

Um 70 manns ætla að mæta í Aratún í Garðabæ í kvöld og sýna þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi frá nágrönnum sínum stuðning. Á Snjáldurskinnu segir að fundurinn verður haldinn fyrir utan hús þeirra sem fyrir ofbeldinu urðu til að sýna þeim stuðning. „Hann er ætlaður til að sýna það svart á hvítu að samfélagið sættir sig ekki við hegðun eins og þau urðu fyrir,“ segir á síðunni.

Prjónar 17 kílómetra trefil

Kona á Siglufirði fékk þá hugdettu að prjóna 17 kílómetra langan trefil sem næði milli miðbæjar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Hugmyndin varð að veruleika og nú þegar er trefillinn orðinn rúmlega 6 kílómetra langur.

Botni kreppunnar náð

Ýmsar hagtölur sem mæla lífsmörk hagkerfisins benda til þess að botni kreppunnar sé náð. Hagfræðiprófessor segist vona að svo sé, en þó eigi enn eftir að finna lausn á stórum vandamálum.

Ófriður á stjórnarheimilinu

Ríkisstjórnin gæti misst stuðning þingmeirihlutans ef kaupin á Magma Energy ganga í gegn, en þingmönnum sem neita að styðja ríkisstjórnina ef svo fer fjölgar. Stjórnmálafræðingur telur ekki ólíklegt að að boðað verði til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins.

Furða sig á niðurstöðu héraðsdóms

Hagsmunasamtök heimilanna furða sig á niðurstöðu héraðsdóms síðastliðinn föstudag að bæta skuli lögbrjóti upp forsendubrest sem varð til vegna lögbrota hans. Dómarinn fríi lögbrjótinn frá því að taka ábyrgð á lögbroti sínu og í reynd verðlaunar hann, ef dómurinn verður fordæmisgefandi fyrir gengistryggð húsnæðislán.

Umferð farin að þyngjast

Umferð í gegnum Borgarnes er farin að þyngjast samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Borgarnesi. Umferðin hefur verið jöfn og þétt í allan dag, en nú er orðið „frekar þröngt á milli bíla", eins og varðstjóri orðaði það. Þrír hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í dag.

Síðasta Love Parade gangan

Í ljós hörmunganna í Love Parade göngunni í Duisburg hafa skipuleggjendur hátíðarinnar ákveðið að halda gönguna ekki aftur. 19 létust og 340 slösuðust þegar múgæsing greip um sig í undirgöngum sem lágu að hátíðarsvæðinu.

Harmleikurinn í Duisburg - lögreglan varaði skipuleggjendur við

Að minnsta kosti 19 eru látnir og yfir 340 slasaðir eftir að stærsta danspartý í heimi breyttist í harmleik. Forseti Þýskalands hefur krafist rannsóknar á orsökum slyssins. Gestir á Love Parade eða Gleðgöngunni í Duisburg þurftu margir hverjir áfallahjálp eftir að hafa horft á fólk troðast undir og láta lífið.

Forstjóri BP stígur til hliðar

Forstjóri olíurisans BP, Tony Hayward, mun hætta hjá fyrirtækinu á næstunni að því er fréttavefur BBC greinir frá. Hayward og aðrir stjórnendur fyrirtækisins hafa verið gagnrýndir harðlega eftir að olíulekinn á Mexíkóflóa kom upp. Olíuslysið er talið eitt stærsta umhverfislys síðari ára og hafa björgunaraðgerðir kostað félagið stórfé. Olíusprengingin varð í byrjun sumars en hún kostaði þrettán manns lífið auk þess sem fjöldi særðist. Talið er að olía haldi áfram að leka frá borholunni og því sé ekki útséð með endanlegar afleiðingar þessa umhverfislyss.

Ölvun á bæjarhátíðum en ólæti lítil

Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur á hátíðinni Á góðri stundu á Grundarfirði þar sem yfir 2000 manns voru samankomnir. Að sögn lögreglu fór hátíðin vel fram og skein sólin blítt hátíðargesti á laugardaginn.

Sjá næstu 50 fréttir