Innlent

Reyndi að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni

Karlmaður reyndi að brjóta sér leið inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt með því að kasta steinum í stórann útstillingarglugga. Rúðan gaf sig ekki og var maðurinn horfinn þegar lögregla kom á vettvang.

Skemmdarvargur var líka á brott þegar lögregla kom að Olís stöðinni í Mosfellsbæ í nótt. Hann hafði brotið rúðu og gramsað í sælgæti, en litlu sem engu stolið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×