Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Orkan sektuð fyrir auglýsingu Orkan hefur verið sektuð af Neytendastofu vegna auglýsinga fyrirtækisins. Alls þarf Orkan að greiða 600 þúsund krónur í stjórnvaldssekt. Neytendastofu barst kvörtun frá Olíuverslun Íslands vegna fullyrðinga í auglýsingum Bensínorkunnar sem rekur bensínstöðvar Orkunnar. 24.6.2010 09:42
Bensínbetlarinn náðist á eftirlitsmyndavél í Reykjanesbæ Svonefndur bensínbetlari hefur nú náðst á eftirlitsmyndavél bensínstöðvar í Reykjanesbæ. 24.6.2010 07:55
Um 40% námsmanna prófa hass í sumarfríum sinum Ný rannsókn í Bandaríkjunum leiðir í ljós að um 40% námsmanna undir tvítugu í Bandaríkjunum prófar að reykja hass í skólafríum sínum yfir sumartímann. 24.6.2010 07:26
Tveir þekktir innbrotsþjófar handteknir í Hlíðunum Tveir þekktir innbrotsþjófar voru handteknir í Hlíðahverfi í Reykjavík undir morgun. 24.6.2010 07:23
Kona í fyrsta sinn orðin forsætisráðherra Ástralíu Kona er orðin forsætisráðherra Ástralíu í fyrsta sinn í sögunni. Hún heitir Julia Gillard og tekur við embættinu af Kevin Rudd. 24.6.2010 07:21
Alvarlegt lestarslys á Spáni, 12 manns fórust Að minnsta kosti 12 manns fórust í alvarlegu lestarslysi suður af Barcelóna á Spáni um skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Nokkrir aðrir eru alvarlega slasaðir. 24.6.2010 07:16
Fundu nær meterslanga eðlu í garði á Selfossi Tæplega meters löng eðla, sem lögreglunni á Selfossi var vísað á í húsagarði í bænum í gærkvöldi, verður væntanlega aflífuð í dag. 24.6.2010 07:05
Hvetja fólk til að taka fjármuni sína út úr bönkunum Samtök lánþega hvetja innistæðueigendur í bönkunum til að taka fjármuni sína út úr bönkunum og koma þeim í betra og öruggara skjól. 24.6.2010 06:52
Vilja starfandi stjórnarformann Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík mun leggja til að Haraldur Flosi Tryggvason verði starfandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það þýðir að hann mun gegna formennsku í fullu starfi á hærri launum en fyrrum formenn. 24.6.2010 06:30
Fréttaskýring: Um hvað snúast fundahöld stjórnmálaflokka um helgina? Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um helgina, auk flokksráðsfunda Samfylkingarinnar og Samfylkingarinnar. Á fundunum verður meðal annars rætt um niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis og niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna, þar sem allir hefðbundir flokkar töpuðu fylgi frá kosningunum fyrir fjórum"arum. 24.6.2010 06:00
Kennslu í ritmáli ábótavant Tæpur þriðjungur nemenda í Háskóla Íslands (HÍ) telur sig vanbúinn að skrifa ritgerðir eða skýrslur þegar í HÍ er komið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem unnin var í HÍ. 24.6.2010 06:00
Fiskarnir synda á ný í Vesturbæjarlaug Hulunni var svipt af forláta fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar í gær. Mímir, vináttufélag Vesturbæjar, stóð fyrir söfnun meðal íbúa Vesturbæjar og í gær varð afraksturinn öllum ljós. 24.6.2010 06:00
Barði í höfuð með skiptilykli Ríkissaksóknari hefur ákært mann á fertugsaldri fyrir að berja annan mann með skiptilykli. 24.6.2010 06:00
Skólar búa námsfólk misvel undir háskóla Nemendur úr framhaldsskólum telja sig misvel búna undir háskólanám eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nokkrir skólar skera sig úr og nemendur þeirra virðast betur undirbúnir. 24.6.2010 06:00
Íslendingar til fyrirmyndar Þjóðarátakinu „Til fyrirmyndar“ verður hleypt af stokkunum í dag með opnun heimasíðunnar tilfyrirmyndar.is. 24.6.2010 05:15
Földu lyf og efni í bifreið Lögreglan á Selfossi handtók tvo karlmenn og eina konu síðastliðinn föstudag vegna gruns um tilraun til að smygla lyfjum og öðrum efnum inn í fangelsið á Litla-Hrauni. Aðferðin fólst í því að fela efnin í bifreið sem annar karlmannanna hafði ætlað að láta bóna og þrífa á Litla-Hrauni. 24.6.2010 05:00
Kosið aftur í Reykhólahreppi Kosið verður á ný í Reykhólahreppi laugardaginn 24. júlí. Kosningin fer fram í skrifstofum sveitarfélagsins að Reykhólum. 24.6.2010 04:45
Metfjöldi ungmenna fær vinnu Aldrei áður hafa jafnmörg ungmenni fengið vinnu við Jafningjafræðslu Hins hússins en alls fengu nítján ungmenni á aldrinum 17 til 21 árs vinnu í sumar. Þessi störf eru gríðarlega eftirsóknarverð hjá ungu fólki en árlega sækja um 400 til 500 ungmenni um störfin. 24.6.2010 04:15
Mikill áhugi á jurtalituninni Gríðarlegur áhugi er á jurtalitun um þessar mundir. „Það er algjör sprenging í jurtalitun. Við finnum fyrir gríðarlegum áhuga," segir Þorgerður Hlöðversdóttir textíllistakona. 24.6.2010 04:00
Bætt aðgengi að Gunnuhver Opnað var fyrir aðgengi ferðamanna að Gunnuhver í landi Grindavíkurbæjar í gær. Síðustu tvö ár hefur svæðið verið lokað. 24.6.2010 03:45
Staðan furðugóð miðað við samdrátt Almennt er staða á biðlistum eftir skurðaðgerðum á sjúkrahúsum og læknastofum góð ef miðað er við sama tímabil fyrir ári. Þó eru þar undantekningar á, svo sem vegna gerviliðaaðgerða á hné, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins. 23.6.2010 21:23
Petraeus tekur við í Afganistan Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur tilkynnt að hershöfðinginn David Petraeus verði eftirmaður Stanley McChrystal sem yfirmaður fjölþjóðahersins í Afganistan. Obama rak McChrystal í dag vegna gagnrýni hans á framgöngu ríkisstjórnar Obama í Afganistan. Í viðtali við Rolling Stone gagnrýndi hann Obama og ýmsa áhrifamenn. 23.6.2010 23:00
„Lánþegar hafa mátt þola nóg“ „Samræður aðila eru fyrsta skref í átt að lausn. Einhliða ákvarðanir stjórnvalda og þeirra sem Hæstiréttur dæmdi brotlega er hvorki lögleg leið, né réttlát eða leið til sátta,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Samtökum lánþega og talsmanni neytenda. 23.6.2010 21:14
Ræðir um hindurvitni og hnignun skynseminnar „James er þekktur fyrir að afhjúpa miðla og svikahrappa. Í erindi sínu mun hann fjalla um hindurvitni og hnignun skynseminnar," segir Sigurður Hólm Gunnarsson hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista á Íslandi, um heimsókn Bandaríkjamannsins James Randi til Íslands. 23.6.2010 20:41
Þór Saari: Þeir gengu alveg fram af mér „Þeir gengu alveg fram af mér og að ég held flestum fundarmönnum með afstöðu sinni til þessara dóma og með afstöðu sinni til almennings í landinu. Mér líst miklu verr á stöðuna eftir þennan fund þó hann hafi vissulega verið upplýsandi,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. 23.6.2010 20:08
Mokað undan brúnni yfir Svaðbælisá Byrjað var í dag að moka ösku undan brúnni yfir Svaðbælisá á hringveginum undir Eyjafjöllum en í aurflóðum vegna eldgossins fylltist farvegur hennar næstum undir brúargólf. 23.6.2010 19:10
Halldór hlaut Gaddakylfuna Ragna Árnadóttir dómsmáláráðherra afhent Halldóri E. Högurði rithöfundi Gaddakylfuna í dag fyrir bestu sakamálasöguna í glæpasmásögukeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags. 23.6.2010 19:09
Lítið bólar á verðlækkunum á innfluttum vörum Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar lítið á verðlækkunum á innfluttum vörum. Forsvarsmenn verslunarinnar fullyrða að þeir hafi tekið á sig afkomuskerðingu. Hagfræðingur ASÍ segir skerðinguna ekki vegna þess að vöruverð hafi ekki hækkað. Skýringar séu aðrar. 23.6.2010 19:04
Korn og gras virðist spretta betur í dökkri öskunni Askan úr Eyjafjallajökli virðist hafa þau áhrif að bæði korn og gras vaxa betur en áður. Bóndi við Pétursey segir að dökk askan valdi því að meiri hiti sé í jarðveginum. 23.6.2010 18:58
Náðu ekki samkomulagi um hvalveiðar Tilraunir til að ná samkomulagi um hvalveiðar á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem fram fór í Marokkó runnu út í sandinn. Reynt var að komast að samkomulagi um málamiðlun sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. Eftir tveggja daga fundarhöld sé ljóst að ekkert samkomulag mun nást. 23.6.2010 18:49
Skaftárhlaup í hámarki í dag Hlaupið í Skaftá, sem reynst hefur stærra en talið var í fyrstu, virðist hafa náð hámarki í dag. Verulegar líkur eru taldar á öðru hlaupi innan fárra mánaða. 23.6.2010 18:49
Helgi Hjörvar: Höfum ekki náð lokapunkti í að leysa skuldamálin Allt bendir til að margir lántakendur sem tóku erlend myntkörfulán sjái fram á lækkun á höfuðstól á næstunni. Hins vegar eru 75-80% lántakenda bankanna með venjuleg verðtryggð lán. En er von á lausn fyrir þann hóp? 23.6.2010 18:45
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í dag. Vinningurinn verður því tvöfaldur í næstu viku. Tölurnar voru 21, 24, 36, 38, 45 og 48. Bónustölurnar voru 12 og 37. Ofurtalan var 10. 23.6.2010 18:44
Frumvarp um gjaldþrotaskipti frestast Frumvörp um greiðsluaðlögun, tímabundin úrræði fyrir þá sem eiga tvær fasteignir og umboðsmann skuldara verða afgreidd á Alþingi á morgun, á síðasta þingfundi fyrir sumarfrí. Þá verður einnig afgreitt frumvarp um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda. 23.6.2010 18:05
Icelandair segir upp 54 flugmönnum Icelandair hefur sagt upp 54 flugmönnum í júní. Í byrjun mánaðarins fengu 26 flugmenn flugfélagsins uppsagnarbréf sem tekur gildi 1. september. Í dag var haldinn flugmannafundur hjá félaginu þar sem tilkynnt var um 28 uppsagnir í viðbót. 23.6.2010 17:55
Stjórnin hefur ekkert með ákvörðun Páls að gera Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að stjórn Ríkisútvarpsins muni væntanlega ræða þá ákvörðun hans að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur sem dagskrástjóra á fundi sínum á þriðjudag. Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið hefur stjórnin ekkert með, þá ákvörðun hans um að ráða Sigrúnu, að gera. 23.6.2010 16:52
Þorsteinn J.: Vill bara bestu sérfræðingana „Kjarni málsins er að ég, sem ritstjóri þáttarins, vill fá bestu sérfræðingana til þess að tala um leikina og mín skoðun er sú að Hjörvar, Pétur og Auðunn eru þeir bestu,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem sér um HM þættina á Ríkisútvarpinu en framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu, Kristín Ástgeirsdóttir, segir að á undanförnum dögum hafi borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður-Afríku. 23.6.2010 16:47
Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningu Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár. 23.6.2010 16:07
Ísland á öruggustu vatnsbirgðir jarðar Ný skýrsla leiðir í ljós að Ísland á öruggustu vatnsbirgðir heimsins. Sómalía er hinsvegar í mestum vandræðum og þar á eftir koma Afríkuríkin Mauritanía, Súdan og Níger. 23.6.2010 15:50
Tveir friðargæsluliðar til Kabúl Tveir friðargæsluliðar á vegum Íslensku friðargæslunnar, Þorbjörn Jónsson, sendiráðunautur í utanríkisþjónustunni, og Guðrún S. Þorgeirsdóttir, sérfræðingur frá Varnarmálastofun, eru í þann mund að hefja störf hjá fjölþjóðaliðinu (ISAF) í Kabúl í Afganistan. 23.6.2010 14:32
Íslenskar löggur fræðast um smyglleiðir og framleiðslu fíkniefna Anton Kohut fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, DEA, heimsótti Ísland á dögunum og hélt fræðsluerindi í Lögregluskólanum. Hann fór ítarlega yfir stöðu og þróun mála í mjög áhugaverðu erindi og fjallaði meðal annars um framleiðslu kókaíns og einnig helstu smyglleiðir inn í Evrópu. 23.6.2010 14:24
Strandveiðimönnum er heimilt að veiða makríl Strandveiðimönnum er heimilt að veiða makríl en í frétt á Vísi fyrr í dag var því haldið fram að þeir mættu ekki hirða fiskinn og ekki heldur henda honum. Ari Matthíasson, upplýsingafulltrúi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins, segir þetta ekki rétt. Strandveiðibátum er heimilt að veiða 650 þorskígildi í hverjum túr og gildir þá einu hvers kyns afla er um að ræða. Ari bendir á að stuðullinn fyrir makríl sé 0,13 og því gæti strandveiðibátur veitt fimm tonn af makríl ef ekkert annað kæmi á krókinn. 23.6.2010 14:21
53 sækja um starf bæjarstjóra á Akureyri Alls sóttu 53 um starf bæjarstjóra Akureyrar. L-listinn fékk hreinan meirihluta eftir kosningarnar í vor og var eitt af stefnumálum flokksins að ráða bæjarstjórann faglega. 23.6.2010 13:55
Prestar fá nýtt hjónavígsluform Nýtt hjónavígluform, sem tekur mið af nýjum hjúskaparlögum, verður sent til presta Þjóðkirkjunnar fyrir helgi. Verkefnisstjóra Biskupsstofu er kunnugt um að samkynhneigt par verði gift strax á sunnudag þegar lögin taka gildi á alþjóðlegum baráttudegi hinsegin fólks. 23.6.2010 12:32
Frumvörp um fyrningarfrest og hópmálsóknir enn í nefnd Allsherjarnefnd hittist á fundi fyrir hádegið í dag þar sem fjallað var um gjaldþrotaskipti og fyrningu kröfuréttar eð fyrningarfrest annarsvegar og meðferð einkamála, eða hópmálsókn, hins vegar. 23.6.2010 12:26