Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sýknaður af kynferðisbroti Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir kynferðisbrot gegn átta ára gamalli frænku sinni. Stúlkan er dóttir systur mannsins en það var faðir stúlkunnar sem kærði. Þau stóðu í skilnaði á sama tíma. 23.6.2010 10:55
Makríllinn setur strandveiðimenn í bobba Strandveiðisjómenn eru komnir í þá klípu að mega hvorki hirða né henda þeim makríl, sem óhjákvæmilega slæðist á öngla þeirra við veiðar á öðrum tegundum. Þeir eru lögbrjótar, hvað sem þeir gera. 23.6.2010 10:50
Skattaflótti til Mónakó stöðvaður Norðurlöndin, auk sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands og Færeyja, undirrituðu samning í dag um skipti á upplýsingum við Mónakó. Samningurinn er árangur umfangsmikils starfs sem unnið er innan Norrænu ráðherranefndarinnar og felst í því að stöðva skattaundanskot. Hann mun veita norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla sem reyna að komast hjá því að greiða tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. 23.6.2010 10:39
ASÍ: Lítið bólar á verðlækkunum á matvöru Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum að sögn ASÍ. Í frétt á heimasíðu sambandsins segir að forsvarsmenn verslunarinnar hafi fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar og að það ráðist einkum af veltuhraða hversu hratt styrking á gengi krónunnar gæti í vöruverði. 23.6.2010 10:37
Skotveiðimenn mótmæla takmörkunum í þjóðgarði Íslenskir skotveiðimenn mótmæla því harðlega að takmarka eigi veiðar í Vatnajökulsþjóðgarði, eins og ert er ráð fyrir í verndaráætlun fyrir garðinn. 23.6.2010 07:37
Fátækt eykst í Evrópu Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segjast einn af hverjum sex íbúum sambandsins eiga í erfiðleikum með að láta enda ná saman um hver mánaðarmót. 23.6.2010 07:32
Bengal tígurinn og kameldýrin tvö fundin Búið er að finna Bengal tígurinn og kameldýrin tvö sem rænt var í síðustu viku í Kanada. 23.6.2010 07:30
Fíkniefnakóngurinn Dudus Coke handtekinn Lögreglan á Jamaíka hefur handtekið fíkniefnakónginn Christoper Dudus Coke. 23.6.2010 07:28
Kvótinn ekki innkallaður á næsta fiskveiðiári Ekkert verður úr þeirri fyrirætlan stjórnvalda að fara að innkalla fiskveiðikvóta í áföngum af kvótahöfum á næsta fiskveiðiári, sem hefst fyrsta september. 23.6.2010 07:25
Dani tekinn fyrir peningaþvætti fyrir Hells Angels Danskur viðskiptamaður hefur verið handtekinn sakaður um peningaþvætti fyrir mótorhjólagengið Hells Angels í Danmörku. 23.6.2010 07:23
Fjármálaráðherra líst vel á bankaskatt „Ég held að þetta sé að mörgu leyti rétt hugsun og mér fellur hún vel. Að til viðbótar innlánstryggingakerfi sem á að fjármagna sig sjálft með iðgjöldum innlánsstofnana, sé lagt í einhvern stöðugleikasjóð. Þannig er kerfið sjálft látið bera hluta kostnaðarins sem áföll í fjármálakerfinu hafa þegar valdið. Þannig að þetta verður örugglega skoðað hér, allavega stendur minn hugur til þess," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, spurður um hugmyndir sem settar hafa verið fram um sértækan tekjuskatt á banka. 23.6.2010 06:30
Litlar líkur á sátt í hvalveiðiráðinu Innbyrðis deilur andstæðinga hvalveiða á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins virðast ætla að koma í veg fyrir að samkomulag takist um málamiðlun, sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. Andrúmsloft innan ráðsins hefur þó batnað. 23.6.2010 06:00
Kveikti eld í íbúðarhúsnæði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir íkveikju. Manninum er gefið að sök að hafa í janúar á síðasta ári hellt bensíni inn í stigagang húss við Tryggvagötu í Reykjavík og kveikt síðan í. 23.6.2010 05:45
Mótmælir umfjöllun um laun lækna Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir í grein í Fréttablaðinu í dag neikvæðar og villandi upplýsingar einkenna umræðu um laun lækna í fjölmiðlum undanfarið. 23.6.2010 05:30
Koma til móts við atvinnulaus ungmenni Hitt húsið stendur fyrir þríliða sumardagskrá fyrir ungt fólk í júní og júlí með það að markmiði að virkja ungt fólk félagslega og þjálfa það í að setja sér markmið. 23.6.2010 05:30
Kýldu mann og brutu tennur Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákært tvo menn fyrir grófa líkamsárás. Þeim er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst 2009, á Þórshöfn, slegið mann hnefahöggum og sparkað í hann liggjandi. Tennur brotnuðu í fórnarlambinu, það fékk glóðarauga og áverka á hnakka. 23.6.2010 05:00
Nágrannavarsla í Reykjanesbæ Íbúar við Kjarrmóa í Reykjanesbæ hafa bundist samtökum um nágrannavörslu í samstarfi við bæjarfélagið. Munu íbúarnir fylgjast með húsum nágranna sinna þegar þeir eru að heiman og gæta eigna. 23.6.2010 04:45
Safna 15 milljónum fyrir barnaheimili Styrktarfélagið Sóley og félagar stendur um helgina fyrir sölu á tauboltum, en ágóðinn mun fara í byggingu nýs heimilis fyrir um 100 börn í Tógó. 23.6.2010 04:30
Hershöfðingi fær hugsanlega að fjúka vegna ummæla um Obama Stanley McChrystal, æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í Afganistan, var kallaður á teppið í Hvíta húsinu dag vegna ummæla sem hann lét falla um stjórn Barack Obama, Bandaríkjaforseta, í tímaritinu Rolling Stone. 22.6.2010 22:00
Ók ölvaður á kyrrstæðan bíl Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Á níunda tímanum barst tilkynning um að bifreið hefði verið ekið á kyrrstæða bifreið á Laugarnesvegi. Ökumaðurinn ók í burtu en lögreglumenn höfðu hendur í hári hans skömmu síðar. Ökumaðurinn er talinn hafa ekið undir áhrifum áfengis. 22.6.2010 22:48
Myrti félaga sinn eftir skeytasendingar á Facebook 16 ára gamall breskur drengur var í dag dæmdur í fangelsi fyrir að stinga 18 ára félaga sinn til bana. Drengirnir höfðu skipst á skeytasendingum á samskiptasíðunni Facebook þar sem sá eldri kallaði hinn yngri meðal annars aumingja. 22.6.2010 21:15
Kviknaði í grillinu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan sjö í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í gasgrilli á svölum í Búðagerði. Varðstjóri segir að húsráðendum hafi tekist að ráða niðurlögum eldsins áður en að slökkvilið kom á staðinn og því var dælubíl snúið við. Óverulegar skemmdir hlutust af eldinum. 22.6.2010 21:14
Um sextíu létust í lestarslysi Rúmlega sextíu létust í lestarslysi í suðurhluta Kongó í dag. Forsvarsmaður lestarfyrirtækisins segir að lestin hafi verið á leiðinni milli Bilinga og Tchitondi þegar hún fór út af sporinu. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að járnbrautateinarnir hafi verið lagðir á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar og að viðhaldi hafi ekki verið sinnt sem skyldi. 22.6.2010 20:40
Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins. Hann telur að Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefði þess í stað átt að líta til þeirra sem sóttu um stöðuna í mars. 22.6.2010 20:15
Karlarnir prjóna og drekka bjór Sænskur karlmaður, búsettur á Íslandi, hefur gefið út prjónabók en þar kemur fyrir nafnið á þriðja landinu því bókin heitir Rússneskt hekl á íslensku. 22.6.2010 19:34
Auðveldar neytendum verðsamanburð Fjarskiptamarkaðurinn er frumskógur í huga margra og hefur Póst og fjarskiptastofnun því hleypt af stokkunum reiknivél til að auðvelda neytendum verðsamanburð. 22.6.2010 19:29
Gylfi Magnússon: Best að stjórnvöld gefi ekki skipanir Tugir, ef ekki hundruð, lögfræðinga hafa skoðað gengislánin á síðustu níu árum án þess að sjá nokkurt athugavert við þau, segir forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann segir margt í uppnámi eftir myntkörfudóma Hæstaréttar. Viðskiptaráðherra vonast til að óvissunni linni á næstu dögum um hvernig eigi að greiða af gengislánum næstu mánuði. 22.6.2010 19:08
Kanna hugsanlega hvort styrkirnir hafi farið í einkaneyslu Til greina kemur að skattyfirvöld kanni hvort framboðsstyrkjum til stjórnmálamanna hafi verið varið í kosningabaráttu eða til eigin nota. Styrkirnir eru tekjuskattsskyldir hafi þeir runnið beint í vasa stjórnmálamannanna. 22.6.2010 18:38
Elstu myndir af postulunum uppgötvaðar Vísindamenn á Ítalíu hafa fundið málverk sem talin eru vera elstu myndir af lærisveinum Krists. Þegar verkin voru skoðuð með nýrri leysitækni í Róm mátti greina andlit postulanna Andrésar, Jóhannesar, Péturs og Páls, að því er fram kemur í frétt á vef BBC. 22.6.2010 17:44
Kókaínsmygl: Einum sleppt og öðrum haldið Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir manni sem grunaður er um aðild að innflutningi á 1,6 kílóum af kókaíni með flugi frá Alicante í apríl. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá þeim tíma. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júlí en Hæstiréttur stytti tímann um fjóra daga en þá verða liðnar tólf vikur frá því hann hóf vistina. 22.6.2010 16:58
Páll: Kom til greina að auglýsa starfið aftur Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að það hafi vel komið til greina að auglýsa starf dagskrástjóra aftur eftir að Erna Kettler, tiltölulega nýráðin sem dagskrástjóri sjónvarps, sagði starfi sínu lausu vegna heilsufarsástæðna í dag. 22.6.2010 16:30
Ferðamaðurinn kominn á spítala Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti um klukkan þrjú við Landspítalann í Fossvogi en þyrlan flutti slasaðan ferðamann sem hafði hlotið höfuðmeiðsl og bakmeiðsl. 22.6.2010 16:02
Svandís: Almenningur njóti vafans Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að við ákvörðun um leyfilegt magn brennisteinsvetnis í andrúmslofti hafi heilsa og hagsmunir almennings fengið að njóta vafans. Gústaf Adolf Skúlason aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að ákvörðunin hafi valdið vonbrigðum og benti hann á að reglur hér á landi séu orðnar þrefallt strangari en Alþjóða heilbrigðisstofnunin miðar við. 22.6.2010 15:50
Kvartað vegna utanvegaaksturs í Mosfellsbæ Nokkuð hefur borið á kvörtunum um utanvegaakstur í Mosfellsbæ að undanförnu og virðist umferð jeppa, fjórhjóla og torfæruhjóla utan merktra vegslóða í hlíðum fella í Mosfellsbæ, s.s. Úlfarsfells og Æsustaðafells, vera algengur. 22.6.2010 15:36
Fundu 1 kíló af hassi í bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í bifreið í Árbæ í Reykjavík um hádegisbil í gær. Um var að ræða um 1 kg af hassi. Umráðamaður bílsins, karl um þrítugt, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu en í henni fundust nokkrir tugir kannabisplantna. Á sama stað var einnig lagt hald á fáeina muni sem grunur leikur á að séu þýfi. 22.6.2010 15:35
Samorka: Reglugerð Svandísar veldur vonbrigðum Gústaf Adolf Skúlason - aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi segir að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um að setja ströng viðmið um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti valdi mönnum þar á bæ talsverðum vonbrigðum. Gústaf segir að ákvörðunin sé greinilega tekin á pólitískum forsendum en Samorkumenn töldu sig hafa unnið að málinu í góðu samstarfi við ráðuneytið og bjuggust menn við því að viðmiðin yrðu í samræmi við reglur alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar sem leyfa 150 míkrógrömm á rúmmetra. Nýja reglugerðin er hinsvegar mun strangari og leyfir aðeins 50 míkrógrömm á rúmmetra. 22.6.2010 14:56
J-listinn ætlar ekki að kæra úrskurð kjörnefndar J-listi ætlar ekki að kæra úrskurð kjörnefndar sýslumannsins á Akureyri um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð í endan maí síðastliðinn. Í tilkynningu sem framboðið sendi frá sér segir að það sé mat þeirra sem skipa listann að það séu hagsmunir sveitarfélagsins að óvissu ljúki sem fyrst og að bæjarstjórn með starfhæfan meirihluta taki til starfa svo fljótt sem verða má og vinni að þeim brýnu verkefnum sem fyrir liggja. 22.6.2010 14:50
Ákærður fyrir að marglemja mann með skiptilykli í fiskverkun Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að slá karlmann á þrítugsaldri í höfuðið með skiptilykli. Þá á maðurinn einnig að hafa lamið fórnarlambið í líkama margsinnis með skiptilyklinum. 22.6.2010 14:44
Nýráðin dagskrástjóri sjónvarps segir starfi sínu lausu Erna Kettler, nýráðin dagskrárstjóri sjónvarpsins, hefur sagt starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum. Þetta kemur fram á vef RÚV. 22.6.2010 14:40
Lentu þyrlu á fótboltavelli - sóttu ferðamann með höfuðáverka Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á fótboltavelli vestan við Dalbæ á Snæfjallaströnd rétt fyrir klukkan tvö í dag til þess að sækja tvo ferðamenn sem veltu bifreið sinni á svæðinu. 22.6.2010 14:34
Þyrlan kölluð út eftir bílslys á Snæfjallaströnd Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp vegna bílslyss sem var tilkynnt lögreglu klukkan hálf tólf. Samkvæmt lögreglunni á Ísafirði er ekki vitað um tildrög slyssins. Bíllinn valt og slösuðust útlent par sem var í bílnum. 22.6.2010 14:11
Körfuboltamaður ætlar að áfrýja nauðgunardómi Sigurður Á Þorvaldsson, landsliðsmaður í körfuknattleik og leikmaður Snæfells, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga 17 ára stúlku í samkvæmi í nóvember í fyrra. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætlar Sigurður að áfrýja dómnum. 22.6.2010 13:46
Barn hætt komið í verslun - lífshættulegar rúllugardínur Nýlega var ungt barn hætt komið þegar það vafði snúru úr rúllugardínu í kringum hálsinn á sér að sögn Herdísar L. Storgaard, Forstöðumans Forvarnarhússins. Hún segir að barnið hafi verið statt í verslun þegar slysið varð en foreldri þess leit af því eitt augnablik á meðan á afgreiðslu stóð. 22.6.2010 13:41
Ríkisstjórnin vill ekki ein samræmd tilmæli vegna gengisdóma Ríkisstjórnin ætlar ekki að bregðast við kalli bílalánafyrirtækjanna um ein samræmd tilmæli til þeirra allra um hvernig skuli bregðast við gengislánadómunum. 22.6.2010 12:20
Fjórir sóttu um hæstaréttardómara Fjórar umsóknir bárust um embætti hæstaréttardómara en umsóknarfrestur rann út 18. júní síðastliðinn. 22.6.2010 12:17