Íslenskar löggur fræðast um smyglleiðir og framleiðslu fíkniefna 23. júní 2010 14:24 Anton Kohut, fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, og Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH.
Anton Kohut fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, DEA, heimsótti Ísland á dögunum og hélt fræðsluerindi í Lögregluskólanum. Hann fór ítarlega yfir stöðu og þróun mála í mjög áhugaverðu erindi og fjallaði meðal annars um framleiðslu kókaíns og einnig helstu smyglleiðir inn í Evrópu. Anton sagði að fíkniefni frá Suður-Ameríku færu til dæmis gjarnan um Vestur-Afríku á leið til Evrópu. Misjafnlega gengur að sporna við þessu og kemur margt til en sumstaðar er mikil spilling og þar eru bæði embættis- og stjórnmálamönnum mútað. Annars staðar er það skortur á eftirliti við landamæri sem gerir lögreglunni erfitt fyrir. Eystrasaltslöndin voru nefnd í því sambandi en Eistland, Lettland og Litháen eiga Schengen-landamæri að Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Og frá þessum stöðum berast fíkniefni til annarra Evrópulanda, þar með talið Ísland. Bæði lögreglumenn og tollverðir sóttu erindið en tilgangurinn með fræðslu sem þessari er að auka færni og þekkingu þeirra sem berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi en þar koma fíkniefni mjög við sögu. Það voru lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Lögregluskólinn sem stóðu að þessu erindi í sameiningu en þeim sem vinna við málaflokkinn var boðið sérstaklega að koma og hlýða á fulltrúa bandarísku fíkniefnalögreglunnar. Anton Kohut hefur komið alloft hingað til lands og er sérstakur tengiliður við íslensku lögregluna í þessum málaflokki.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira