Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnendur Facebook gagnrýndir Stjórnendur samskiptasíðunnar Facebook eru harðlega gagnrýndir fyrir að tryggja ekki persónuvernd notenda sinna. Forstjóri Facebook boðar breytingarnar. 28.5.2010 07:57
Á sjötta tug látnir í Indlandi Að minnsta kosti 65 eru látnir eftir að tvær lestir rákust saman í norðausturhluta Indlands í nótt. Yfirvöld telja að skemmdaverk hafa verið unnin á lestarteinunum sem varð til þess lest með yfir 200 farþega og flutningalest lentu saman. 28.5.2010 07:03
Rafmagnstruflanir í Reykjavík Háspennubilun varð í aðveitustöð Orkuveitunnar við Meistaravelli í Reykjavík laust upp úr klukkan fimm í morgun og varð rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og frá Kaplaskjólsvegi að Umferðarmiðstöðinni. Bilunarinnar varð vart víða í borginni í formi rafmagnsflökts, en rafmagn komst á fyrrnefnd svæði innan hálftíma. Orkuveitan tilgreinir ekki orsakir bilunarinnar, í tilkynningu um málið. 28.5.2010 07:00
Eldgos í Guatemala Eldgos hófst í fjallinu Pacaya skammt frá höfuðborg Mið-Ameríkuríksins Guatemala í gærkvöldi. Mikið öskufall hefur orðið í höfuðborginni og hafa á annað þúsund íbúar þurft að flýja heimili sín. Þá hefur alþjóðaflugvellinum í borginni verið lokað. Eldfjallið er 25 kílómetra suður af höfuðborginni. 28.5.2010 06:56
Flutt inn í Downingstræti 10 David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og fjölskylda hans fluttu í gær formlega inn í embættisbústað ráðherrans í Downingstræti 10. Cameron greindi frá því í samtali við breska ríkisútvarpið að fjölskyldan muni sakna hússins í Notting Hill í vesturhluta Lundúna þar sem þau hafa búið undanfarin ár. Þeirra allra, og ekki síst barnanna sem eru sex og fjögurra ára gömul, bíði samt sem áður mikil ævintýri. 28.5.2010 06:53
Vonast eftir betri niðurstöðu í kosningunum „Þetta eru nú ákveðin vonbrigði. Ég stóð í þeirri trú að við myndum bæta við okkur jafnt og þétt. Ég hef stefnt að því allan tímann að ná hreinum meirihluta til að við getum staðið fyrir einhverjum alvöru breytingum í borginni,“ segir Jón Gnarr, efsti maður á lista Besta flokksins. 28.5.2010 06:45
D-listinn vinnur mann af Besta flokknum í borginni Stuðningur við Sjálfstæðis-flokkinn í Reykjavík hefur aukist síðustu vikuna, á meðan dregur úr fylgi Samfylkingarinnar og Besta flokksins, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. 28.5.2010 06:30
Frumvarp um stjórnarráð kemur eftir helgi Reyna á að leggja frumvarp um breytingar á stjórnarráði fyrir Alþingi eftir helgi. Frumvarpið var rætt í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær, en Vinstri græn frestuðu umræðunni fram á mánudag. Vonir standa til að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi og breytingarnar að veruleika um áramótin. 28.5.2010 05:30
Lagalegir fyrirvarar vefjast fyrir Bretum Bjartsýnustu menn bjuggust jafnvel við fundi um Icesave-deiluna fyrir helgi, en ljóst er að það gengur ekki eftir. Það var ekki síst vegna aðkomu Svía að málinu að þær vonir vöknuðu. Þeir hafa átt í óformlegum samskiptum við Breta og Hollendinga og vonuðust sjálfir til að þáttaskil yrðu fljótlega í málinu. Sama bjartsýni ríkir ekki í íslenska stjórnkerfinu. 28.5.2010 05:00
Stöðvuðu útflutning á sjö veikum hrossum Frá því að vart varð við smitandi hósta í hrossum í byrjun apríl hafa verið flutt út til Evrópu 59 hross í þeim mánuði og 57 hross í maí. 5. maí fóru ellefu hross til Mið-Evrópu, en 8. maí fóru 46 hestar til Norðurlandanna. Sjö hestar voru teknir úr þeim hópi við útflutningsskoðun vegna gruns um sýkingu. Þetta segir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis. 28.5.2010 03:30
Slátruðu nítján lömbum í gámi Tveir karlmenn og ein kona hafa verið sýknuð af ólögmætri sauðfjárslátrun með því að hafa slátrað lömbum í gámi. Héraðsdómur Vesturlands kvað upp dóminn. 28.5.2010 03:00
72 milljónir lítra lekið í flóann Mexíkó, ap Olíuslysið í Mexíkóflóa er það stærsta í sögu Bandaríkjanna. Samkvæmt varlegu mati vísindamanna hafa næstum 72 milljónir lítra af olíu lekið í sjóinn frá því að borpallur brann og sökk í apríl. Útreikningar vísindamanna gefa til kynna að á bilinu 1,9 og 3,8 milljónir lítra af olíu hafa lekið í sjóinn á hverjum degi frá því að slysið varð. 28.5.2010 02:00
Raðmorðingi vann að doktorsritgerð um morð Stephen Griffiths, fertugur karlmaður í Yorkshire á Englandi hefur verið ákærður fyrir morð á þremur vændiskonum. Eitt morðið náðist á öryggismyndavél en þar sést Griffiths skjóta ör úr lásboga í höfuð konunnar. Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi en margt þykir líkt með morðunum nú og þeim sem Peter Sutcliff framdi á sama svæði en hann var kallaður „The Yorkshire Ripper“ af fjölmiðlum. 27.5.2010 23:12
Þórunn vonar að aðrir hugsi sinn gang Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segist vonast til að afsögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur setji þrýsting á stjórnmálamenn í öðrum flokkum. 27.5.2010 22:08
Hermenn á Jamaica sakaðir um morð á óbreyttum borgurum Íbúar í Tivoli Gardens, fátækrahverfinu í Kingston á Jamaica sem hafa þurft að búa við kúlnaregn og ofbeldi síðustu daga fullyrða að hermenn og lögregla hafi myrt fjölda óbreyttra og óvopnaðra manna í hverfinu síðustu daga. 27.5.2010 21:31
Treysti á að fólk dæmi okkur af verkunum Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi segist treysta því að fólk dæmi flokkinn af verkum sínum á kjördag. Samkvæmt skoðannakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 er meirihluti Sjálfstæðisflokks og framsóknarmanna fallinn í bænum. 27.5.2010 20:06
Meirihlutinn fallinn í Kópavogi Meirihlutinn er fallinn í Kópavogi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Tvö ný framboð ná manni inn á kostnað Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. 27.5.2010 18:26
Öflugur skjálfti í Suður Kyrrahafi Öflugur jarðskjálfti reið yfir í Suður Kyrrahafi undir kvöld. Skjálftinn mældist 7,2 að stærð og var fljóðbylgjuviðvörun gefin út á Salómón eyjum, Vanúatú og í Nýju Kaledóníu. Viðvörunin var afturkölluð skömmu síðar. 27.5.2010 20:52
Mörður inn fyrir Steinunni Valdísi Mörður Árnason er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík norður og mun því taka sæti Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur sem sagði af sér þingmennsku í dag. 27.5.2010 19:38
Steinunn Valdís segir af sér þingmennsku Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja af sér sem þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík. 27.5.2010 17:34
Stefnt á að hefja hvalveiðar í kringum 17. júní Hvalur hf. undirbýr nú stórhvelaveiðar sumarsins og var hvalveiðibátur fyrirtækisins, Hvalur 8, tekinn upp í slipp í Reykjavíkurhöfn nú síðdegis til botnhreinsunar. 27.5.2010 19:16
Þurfum aðstoð ef Hera vinnur Tilfinningarnar eru blendnar. Þetta segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um þá velgengni sem íslenska lagið í Eurovisjón á að fagna í Evrópu. Hann bendir á að Norðmenn hafa varið meira fé til keppninnar en því sem RÚV veltir á ári. Ef Íslands sigraði í keppninni þyrfti að leita samstarfs við önnur lönd. 27.5.2010 19:00
Braut gegn dóttur sinni og vinkonu hennar Hæstiréttur staðfesti í dag 10 mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gangvart dóttur sinni og vinkonu hennar fyrir tveimur árum. Stúlkurnar voru þá 12 ára gamlar. 27.5.2010 16:41
Hreyfingin gagnrýnir Stöð 2 harðlega Þingmenn Hreyfingarinnar mótmæla harðlega vinnubrögðum Stöðvar 2 nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en stöðin hyggst gera upp á milli framboða í Reykjavík með því að bjóða aðeins sumum framboðum að koma fram í umræðuþætti annað kvöld. Þetta kom fram í tilkynningu frá Hreyfingunni sem hún sendi frá sér fyrr í dag. 27.5.2010 16:22
Embættismenn ræða Icesave en ekki samninganefndir Hollendingar og Bretar hafa verið ófáanlegir til þess að setjast við samningaborðið vegna Icesave en kosningar eru nýafstaðnar í báðum löndunum. Þó eru enn þá samskipti í gangi að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. 27.5.2010 16:19
Fréttablaðskössum og lausasölustöðum fjölgar Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Skilin verða skerpt, þannig að blaðinu er dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæði, en annars staðar verður blaðið selt á kr. 150 eintakið. 27.5.2010 16:01
Isavia semur við Félag flugmálastarfsmanna Félag flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkti kjarasamning við Isavia / SA sem undirritaður var 7. maí sl. Já sögðu 106 eða 63,10%, nei sögðu 53 eða 31,55% og 9 skiluðu auðu eða 5,36%. 27.5.2010 15:57
70 ár frá því litlu skipin björguðu Bretlandi Í maí árið 1940 hafði þýski herinn hrakið á undan sér um 400 þúsund breska hermenn í gegnum Belgíu og Frakkland. 27.5.2010 15:41
Oddviti L-listans: Bíðum róleg „Við erum róleg og vitum að að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar. Við bíðum því róleg eftir því hvað kemur upp úr kjörkössunum," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson sem skipar fyrsta sæti á framboðslista L-listans, lista fólksins, á Akureyri. 27.5.2010 15:36
Vegagerðin dregur stórlega úr þjónustu Þar sem fjármagn til viðhalds og þjónustu vegakerfisins verður töluvert minna en á síðustu árum er óhjákvæmilegt annað en að draga úr viðhaldi og sumarþjónustu í ár hjá Vegagerðinni. 27.5.2010 15:27
Lítið ber í milli í fráveitudeilu Hafnarfjarðar og Garðabæjar „Garðabær væntir þess að málinu ljúki með sanngjarnri niðurstöðu fyrir báða aðila eins og bærinn leitast jafnan við í samningum við sína viðskiptavini,“ segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar vegna deilunnar um fráveituna sem Garðbæingar nýta sér en Hafnfirðingar borga fyrir. 27.5.2010 15:01
Stefnir í stórsigur L-listans á Akureyri L-listinn, listi fólksins, vinnur stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri á laugardag og fær fimm bæjarfulltrúa af ellefu, samkvæmt könnun Capacent Gallup fyrir fréttamiðilinn Vikudag. Núverandi meirihlutaflokkar mælast með þrjá bæjarfulltrúa. 27.5.2010 14:43
Frestað að skipa í rannsóknarnefnd Reykjavíkur Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, sakar meirihluta borgarstjórnar, um að draga lappirnar í skipun rannsóknarnefndar Reykjavíkurborgar sem á að skoða mál borgarinnar líkt og rannsóknarnefnd Alþingis gerði. Skipa átti í nefndina í dag en þegar hafa 30 einstaklingar sótt um starfið að sögn Þorleifs. 27.5.2010 14:37
Fékk á sig brotsjó Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði og Suðurnes í Reykjanesbæ voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag þegar tilkynning barst um að bátur hefði fengið á sig brotsjó og væri að sökkva. Báturinn var þá staddur um þremur sjómílum suðvestur af Garðskaga. Einn maður var um borð. 27.5.2010 14:14
Noti grímur vegna öskufjúks Mikið öskufjúk hefur undanfarna daga verið víða í nágrenni Eyjafjallajökuls. Verst var ástandið undir Eyjafjöllum í gær þegar skyggni var um tíma innan við 100 metrar. 27.5.2010 14:08
Rauða kross námskeið fyrir talibana Alþjóða Rauði krossinn hefur varið þær gjörðir sínar að halda námskeið í hjálp í viðlögum fyrir talibana í Afganistan. Slík þriggja daga námskeið hafa verið haldin í fjögur ár. 27.5.2010 13:45
Vill færa réttarhöld nímenningana inn í leikhús „Við hvetjum bara fólk til þess að mæta og verða vitni af þessu áður en það fer í vinnuna,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um sérkennilegan tíma Héraðsdóms Reykjavíkur á þinghaldi yfir svokölluðum nímenningum sem hafa meðal annars verið ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi. 27.5.2010 13:43
Tilkynnt um reyk hjá Össuri Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst skömmu eftir klukkan eitt í dag tilkynning um brunalykt og reyk í húsnæði stoðtækjafyrirtækisins Össurar á Grjóthálsi 5. Dælu- og sjúkrabílar voru sendir á vettvang og slökkviliðsmenn ekki orðið vart við eld. 27.5.2010 13:09
Réðst á ungling vopnaður hafnaboltakylfu Fullorðinn karlmaður réðist á táningspilt vopnaður hafnaboltakylfu á leiksvæði á Egilsstöðum um helgina samkvæmt fréttavef Austurgluggans, agl.is. Þar segir að árásin hafi verið kærð til lögreglunnar. 27.5.2010 13:03
Losna úr farbanni á morgun Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Ingólfur Helgason og Steingrímur Kárason, fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi, losna allir úr farbanni á morgun. 27.5.2010 12:20
Best að ljúka Icesave málinu við samningaborðið Fjármálaráðherra segir að stjórnvöld muni taka til varna vegna áminningar ESA. Vænlegast sé þó að ljúka Icesave málinu við samningaborðið, ef ásættanleg niðurstaða fáist. Ákveðin áhætta felist í því ef málið fer fyrir EFTA dómstólinn. 27.5.2010 12:05
Jón birtir svörin á íslensku Svör sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við spurningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sjávarútvegsmál í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB hafa verið þýdd yfir á íslensku í samræmi við ákvörðun Jón Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 27.5.2010 11:39
Framboðsfundur í Hafnarfirði í kvöld Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði boða til sameiginlegs framboðsfundar í Hafnarborg í kvöld. Talsmenn flokkanna verða með framsögu og svara síðan fyrirspurnum áheyrenda í sal. 27.5.2010 11:34
Aðgerðir gegn akstri utan vega Umhverfisráðuneytið hefur unnið aðgerðaráætlun gegn akstri utan vega til þriggja ára, undir heitinu Ávallt á vegi. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kynnir áætlunina í dag. 27.5.2010 10:55
Samfylkingin auglýsir mest Mikill munur er á auglýsingakostnaði stjórnmálaflokkanna vegna sveitarstjórnarkosninganna næstkomandi laugardag. Samfylkingin ver mestu fé en Framsóknarflokkurinn minnstu. 27.5.2010 10:35