Innlent

Stöðvuðu útflutning á sjö veikum hrossum

Dýralæknar mæla með því að veik hross séu höfð sem mest úti ef veður er gott og þau eru hitalaus.
Dýralæknar mæla með því að veik hross séu höfð sem mest úti ef veður er gott og þau eru hitalaus.

Frá því að vart varð við smitandi hósta í hrossum í byrjun apríl hafa verið flutt út til Evrópu 59 hross í þeim mánuði og 57 hross í maí. 5. maí fóru ellefu hross til Mið-Evrópu, en 8. maí fóru 46 hestar til Norðurlandanna. Sjö hestar voru teknir úr þeim hópi við útflutningsskoðun vegna gruns um sýkingu. Þetta segir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis.

„Við höfum rætt við útflytjendurna eftir að hrossin fóru út og spurst fyrir um hvort þeir hafi frétt af veikum hestum, sem farið höfðu héðan og í ljós hefur komið að vitað er um eina hryssu sem fór til Belgíu, er virtist hafa veikst eftir að hún kom út. Íslenskum hrossum er oft haldið sér eftir að þau koma út, vegna smithættu þeirra í nýju umhverfi, og það hafði verið gert við þessa hryssu. Hún er á góðum batavegi og hefur ekki smitað önnur hross.

Spurður um það sem fram kom í Fréttablaðinu í fyrradag að útflutt hross hefði smitað hross á búgarði í Þýskalandi af hóstanum kveðst Gunnar Örn hafa kynnt sér málið í kjölfar fréttarinnar og rætt við umráðamann hestsins.

„Um var að ræða veturgamalt trippi sem hefur ekki fengið nein einkenni veikinnar, en virðist vera dauft. Við hliðina á því var óbólusettur þýskur hestur, sem heyrir til undantekninga því þeir eru yfirleitt allir bólusettir við öllum hugsanlegum sjúkdómum. Viku eftir að trippið kom veikist hesturinn af hósta. Af hverju vita menn ekki, né heldur hvort það er frá þessu nýinnflutta trippi komið. Það verður aldrei sannað. Aðrir hestar á búgarðinum hafa ekki veikst.“

Spurður um grunsemdir þess efnis að folöld séu að fæðast veik, eins og fram hafa komið í Fréttablaðinu, segir Gunnar Örn að þekkt sé að þegar móðir taki veiki myndi hún mótefni sem berst yfir til folaldsins. Það eigi því að vera varið af mótefni móðurinnar í allt að sex vikur.

„Til öryggis fékk ég að vita hvaðan folöldin væru sem grunur léki á að hefðu fæðst veik og hringdi í viðkomandi eigendur. Ég get alls ekki sagt að þau einkenni sem þessi folöld sýna bendi til þess að þarna sé um sama sjúkdóm að ræða og við erum að berjast við, sem betur fer.“

Spurður um hvort hugsanlegt sé að hross séu að endursmitast af hóstanum segir Gunnar Örn að þar sem bakteríusýking fylgi í kjölfar veirusýkingarinnar geti hún endursmitað hrossin ef þau verða fyrir síendurteknu smiti og einnig geti hrossunum slegið niður ef brúkun þeirra hefst áður en þau hafa náð fullum bata.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×