Innlent

Réðst á ungling vopnaður hafnaboltakylfu

Fullorðinn karlmaður réðist á táningspilt vopnaður hafnaboltakylfu á leiksvæði á Egilsstöðum um helgina samkvæmt fréttavef Austurgluggans, agl.is. Þar segir að árásin hafi verið kærð til lögreglunnar.

Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá sýslumanninum á Seyðisfirði, sagði í samtali við agl.is að maðurinn hefði sparkað í strákinn. Hann staðfesti að maðurinn hefði verið með hafnaboltakylfu meðferðis en ekki notað hana.

Samkvæmt heimildum agl.is hafði piltinum lent saman við son mannsins sem brást við á þennan hátt.

Formleg kæra var lögð fram í málinu í gær. Lögreglan rannsakar málið.

Frétt Austurgluggans má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×