Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekkert lát á skjálftahrinunni Mælir við rætur Eyjafjallsjökuls í landi Þorvaldseyrar, sýnir að land hefur hækkað um fimm sentímetra frá áramótum. Ekkert lát er á skjálftahrinunni í jöklinum, sem staðið hefur í hálfan annan sólarhring, og er skjálftatíðnin sú mesta sem mælst hefur til þessa. Viðbragðshópar Almannavarna sitja nú á fundi um málið. 5.3.2010 12:18
Formenn stjórnarflokkanna kjósa ekki Íslendingar hafa ekki efni á að það dragist á langinn að ná nýjum samningum um Icesave að mati formanna stjórnarflokkanna. Hvorugur þeirra ætlar að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni en segja að með því séu þau ekki að skora á fólk að mæta ekki á kjörstað. 5.3.2010 12:02
Flóahreppur stefnir Svandísi vegna Urriðafossvirkjunar Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að höfða mál gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra til að ógilda ákvörðun hennar um að hafna skipulagi Urriðafossvirkjunar. Sveitarstjórinn segir ráðherrann hafa vanvirt skipulagsvald sveitarfélaga. 5.3.2010 11:58
Samninganefndin kemur heim í dag Samninganefnd Íslands kemur heim frá London í dag, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. 5.3.2010 11:57
Lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðs verkfalls Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðra verkfallsaðgerða íslenskra flugumferðarstjóra. Ef verkfallsaðgerðir þessar koma til framkvæmda munu þær trufla alvarlega flug til og frá landinu með miklum skaða fyrir flugfélög og ferðaþjónustuna í heild, að mati samtakanna. 5.3.2010 11:02
Breytt viðmið við mat á umsóknum um dvalar- og búsetuleyfi Útlendingastofnun mun héðan í frá byggja mat á viðmiðum um trygga framfærslu umsækjenda um dvalar- og búsetuleyfi á heildartekjum fyrir staðgreiðslu. Þetta er niðurstaða á endurskoðun Útlendingastofnunar á reikniaðferð sinni 5.3.2010 10:58
Síbrotamenn fengu skilorð Tveir síbrotamenn voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir fjölmörg brot, meðal annars innbrot og þjófnað. 5.3.2010 10:51
Ný ríkisstjórn skrifuð í skýin Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, telur að komið sé að leiðarlokum hjá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra. Þau hafi framið pólitískt sjálfsmorð í Icesave málinu. Hann segir að ný ríkisstjórn sé skrifuð í skýin. 5.3.2010 10:32
Tyrkir æfir vegna atkvæðagreiðslu í Bandaríkjunum Tyrkir eru æfir af reiði yfir því að fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur ákveðið að ganga til atkvæðagreiðslu um hvort fjöldamorð Tyrkja á Armenum árið 1915 skuli skilgreint sem þjóðarmorð. 5.3.2010 10:30
Pálmi sér eftir mannorðinu - voru í typpakeppni Pálmi Haraldsson, fyrrverandi eigandi Fons, segist bera ábyrgð á efnahagshruninu en að stærsti sökudólgurinn sé hið opinbera. Hann viðurkennir að hafa tekið þátt í siðferðilega vafasömum viðskiptum en að hann hafi ekki framið nein lögbrot. Pálmi segist sjá eftir mannorði sínu. Þetta kemur fram í viðtali við hann í DV í dag. Hann segir að umsvifamiklir fjárfestar hafi verið í „typpakeppni.“ 5.3.2010 09:48
Stjórnvísi afhenti verðlaun Fjórir fengu afhent stjórnunarverðlaun Stjórnvísi sem veitt voru í fyrsta sinn í gær. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi hins almenna stjórnenda og hvetja hann til áframhaldandi faglegra vinnubragða og árangurs á öllum sviðum stjórnunar og rekstrar. 5.3.2010 09:17
Gerir grein fyrir stuðningi sínum við Íraksstríðið Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, mun í dag bera vitni vegna rannsóknar á aðdraganda á þætti Breta í innrásinni í Írak árið 2003. Vitni hafa þegar sagt að Brown hafi átt stóran þátt í ákvörðuninni. Sjálfur sagði Brown að ástæða þess að hann hafi stutt innrásina hefði ekki verið grunur um að Írakar byggju yfir efnavopnum. Ástæðan hafi frekar verið sú að Írak hafi hunsað samþykktir Sameinuðu þjóðanna. 5.3.2010 08:05
Hvergerðingar svipist um eftir Jónasi Björgunarsveitir fyrir austan fjall og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt eftir miðnætti í gærkvöld til leitar að karlmanni á sextugsaldri sem saknað er frá dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. 5.3.2010 07:34
Enn skelfur undir Eyjafjallajökli Jarðskjálfti upp á rúmlega þrjá á Richter varð undir Eyjafjallajökli á sjöunda tímanum í morgun, en hingað til hafa skjálftarnir verið undir tveimur á Richter í skjálftahrinunni sem staðið hefur í rúman sólarhring. Tíðni skjálftanna er sú mesta sem mælst hefur á þessum slóðum. 5.3.2010 07:10
Skotið á tvo lögreglumenn nærri Pentagon Skotið var á tvo lögreglumenn á neðanjarðarlestarstöð, nærri varnarmálaráðuneytinu í Pentagon. Lögreglumennirnir særðust í árásinni, en ekki er greint frá hversu alvarlega. Árásarmaðurinn, sem er karlmaður á fertugsaldri, særðist einnig i árásinni. 5.3.2010 07:06
Fjöldi skipa festist í Eystrasalti Um 50 skip hafa setið föst í ís í Eystrasalti frá því í gær. Fjögur skip hafa losnað með hjálp ísbrjóta. Sum þessara skipa sigldu í strand milli Stokkhólms og Álandseyja en önnur eru föst norðar, í Helsingjabotni. 5.3.2010 06:59
Sex verið teknir í stóru fíkniefnamáli Handtaka tæplega sjötugs burðardýrs fíkniefna á Keflavíkurflugvelli í febrúar hefur leitt til þess að fimm manns til viðbótar hafa verið handteknir. Lögregla telur málið tengjast umfangsmiklum fíkniefnainnflutningi og sölu fíkniefna, meðal annars á Akureyri. 5.3.2010 06:00
Samgöngumiðstöð af stað í sumar Gangi allt eftir geta framkvæmdir vegna samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri hafist í sumar. Hún mun standa við Hótel Loftleiðir. Möguleiki verður á tengingu á milli húsanna í framtíðinni. 5.3.2010 06:00
Hlutafélög hlífa fólki ekki við skattskyldu Skattskylda af niðurfellingum persónulegra ábyrgða fyrrverandi starfsfólks Kaupþings nær jafnt til þeirra sem tóku lán til hlutabréfakaupa í bankanum á eigin kennitölu og þeirra sem stofnuðu sérstakt einkahlutafélag utan um skuldina. Þetta er meðal niðurstaðna í áliti Ríkisskattstjóra sem sent var Arion banka í þarsíðustu viku. 5.3.2010 06:00
Jóhanna ætlar að sitja heima Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar ekki að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave á morgun. 5.3.2010 06:00
Skoðaði þátt fjölmiðla í efnahagshruninu Þrjú hundruð blaðsíðna skýrsla vinnuhóps sem leitaði svara við því hvort skýringar á falli íslensku bankanna mætti að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði er tilbúin og á leið í prentun. Vilhjálmur Árnason prófessor leiddi hópinn en hann flytur erindið Siðferðileg greining bankahrunsins í málstofunni Hrunið, skýrslan, siðferði og hugmyndafræði á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands. 5.3.2010 06:00
Tíu þúsund tonn af loðnu á dagparti Heimamenn í Vestmannaeyjum höfðu það á orði á miðvikudag að stemningin við höfnina „væri eins og í gamla daga“, þegar sjö loðnuskip komu þar til löndunar á fáeinum klukkutímum. Afli skipanna var áætlaður um tíu þúsund tonn og fór allur í hrognatöku fyrir Japansmarkað. 5.3.2010 05:30
Synjun styrkir samningsstöðuna Það er nauðsynlegt að fella Icesave-lögin frá því í desemberlok úr gildi í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Við það styrkist samningsstaða Íslands. 5.3.2010 04:15
Höfum gengið inn í hreinsunareldinn „Við Íslendingar höfum gengið inn í hreinsunareldinn,“ sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær. „Við höfum þegar gripið til harkalegs niðurskurðar og hækkað skatta til þess að rétta við skuldir ríkissjóðs. Við höfum gert upp gömlu bankana í sátt við lánardrottna þeirra og komið þeim í starfhæft form. Við erum að gera upp við orsakir bankahrunsins á vettvangi Alþingis og dómstóla.“ 5.3.2010 04:00
Fólk kjósi ef vill eða sitji heima ef vill „Við skulum láta fólkið í landinu hafa það eins og það vill. Kjósa ef það vill eða sitja heima ef það vill,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi í gær. Þar var hann krafinn svara um þjóðaratkvæðagreiðslu morgundagsins um Icesave-lögin. 5.3.2010 02:00
Vill atkvæðagreiðslu án tafar Barack Obama Bandaríkjaforseti berst enn við að koma endanlegri mynd á heilbrigðisfrumvarpið, sem á að tryggja nánast öllum Bandaríkjamönnum sjúkra- og slysatryggingar. 5.3.2010 00:45
Herinn í Chile hjálpar loks til Herinn í Chile er nú kominn á fulla ferð í björgunarstörf eftir að hafa varið fyrstu dögunum eftir jarðskjálftann í að stöðva gripdeildir og sjá til þess að friður ríki í borgum og bæjum jarðskjálftasvæðisins. 5.3.2010 00:15
85 ökumenn sektaðir á Sæbrautinni Brot 85 ökumanna voru mynduð af lögrelgunni á höfuðborgarsvæðinu á Sæbraut í Reykjavík í gær. 4.3.2010 20:37
Guðbjarni búinn að gefa sig fram Pólstjörnumaðurinn Guðbjarni Traustason gaf sig fram til lögreglunnar á Selfossi í kvöld. Hans hefur verið leitað síðan á laugardaginn en þá hafði hann verið í dagsleyfi og skilaði sér ekki til baka á Litla Hraun. Grunur lék á að hann hefði yfirgefið landið en svo virðist ekki vera. 4.3.2010 19:31
Vill opinbera rannsókn á risaláni ríkisins til VBS Fjárfestingabankans Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Magnússon, vill opinbera rannsókn á lánum ríkisins til VBS Fjárfestingabankans. Á bloggsíðu sinni skrifar Jón að eðlilegt sé að fram fari opinber rannsókn á því sem hann kallar milljarðafyrirgreiðslum Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. 4.3.2010 19:29
Sómalski herinn fær vestræna þjálfun Bandaríkin íhuga að aðstoða Evrópusambandið við að þjálfa nýjan her fyrir Sómalíu, sem á í hörðu stríði við islamska uppreisnarmenn. 4.3.2010 15:55
Borgarfulltrúar koma Sigrúnu Elsu til varnar Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar telja að umfjöllun fjölmiðla um ferðakostnað Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa flokksins, í janúar hafi verið ósanngjörn og tekinn úr öllu samhengi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá borgarfulltrúnum. 4.3.2010 15:42
Endurreisninni haldið í gíslingu Ungir jafnaðarmenn hvetja til lausnar Icesave málsins og benda á þann kostnað sem hlotist hefur af frestun málsins frá áramótum sem ekki sjái enn fyrir endann á. 4.3.2010 15:30
Silfurpeningar Alexanders mikla Yfir 250 silfurpeningar frá dögum Alexanders mikla hafa fundist í norðanverðu Sýrlandi. 4.3.2010 15:16
Ólafur F.: Ég náði að stöðva spillinguna „Þetta er mikill sigur fyrir mín sjónarmið í deilunni um lóð fyrir Ungmennafélag Íslands við Tryggvagötu, segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi. 4.3.2010 15:16
Kanna áhrif niðurskurðar á líðan lækna Allir starfandi læknar fengu í gær sendan spurningalista í tengslum við rannsókn á áhrifum niðurskurðar á líðan lækna hér á landi. Umfangsmikil langtímarannsókn í Noregi leiddi í ljós að þarlendir læknar eru óánægðari með lífið en aðrir starfshópar. Þeir eru einnig í mun meiri hættu á að fremja sjálfsvíg og misnota áfengi og lyf. 4.3.2010 14:57
Svona á ekki að gera þetta Framkvæmdastjóri NATO segir að aðgerðir bandalagsins í Afganistan geti þjónað sem módel fyrir hvernig á að bregðast við svipuðum átökum í framtíðinn. 4.3.2010 14:42
Máli vísað frá vegna vanhæfis sýslumanns Héraðsdómur Suðurlands hefur vísað frá máli konu sem ákærð var fyrir brot gegn valdstjórninni. Hún var ákærð fyrir að hafa slegið lögreglukonu við skyldustörf í andlitið með þeim afleiðingum að mar hlaust af. 4.3.2010 14:23
Góða ferð.........öll Könnun sem breska fyrirtækið Rentokil gerði í breskum járnbrautarlestum hefur leitt í ljós að farþegar sem ferðast með þeim eru mun fleiri en vitað var um. 4.3.2010 14:08
Hreyfingin með kosningavöku Hreyfingin stendur fyrir kosningavöku á Hótel Reykjavík Centrum næstkomandi laugardag í tilefni af fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni í sögu lýðveldisins, að fram kemur í tilkynningu. Á laugardaginn fer fram atkvæðagreiðsla um Icesave lögin sem Alþingi samþykkti í lok síðasta árs og forsetinni neitaði að staðfesta. 4.3.2010 13:57
Formaður Samtaka iðnaðarins vill þjóðstjórn Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, vill að mynduð verði þjóðstjórn. Þjóðina skorti leiðtoga sem geta gefið raunhæfa von. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Helga á Iðnþingi í dag. 4.3.2010 13:48
Birkir kallar eftir stýrivaxtalækkun Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, kallaði eftir stýrivaxtalækkun á Alþingi í dag. Birkir var málshefjandi í umræðum um peningastefnu Seðlabanka Íslands. 4.3.2010 13:43
Sumarhús Bakkabróður vekur athygli víða Hið vægast sagt glæsilega sumarhús Lýðs Guðmundssonar sem oft er kenndur við Bakkavör hefur vakið þónokkra athygli á heimasíðum og í blöðum sem helga sig hönnun. Húsið er í Fljótshlíðinni og er teiknað af Guðmundi Jónssyni arkitekt sem búsettur er í Noregi. 4.3.2010 13:27
Reynt til þrautar að ná samkomulagi Reynt verður til þrautar í dag að ná að samkomulagi í Icesave deilunni. Samninganefnd Íslands hefur verið í óformlegum samskiptum við Breta í morgun en engir formlegir fundir hafa enn verið boðaðir. Stjórnarandstaðan ætlar að stöðva allar tilraunir til að aflýsa þjóðaratkvæðagreiðslunni. 4.3.2010 12:05
Skora á landsmenn að kjósa á laugardaginn Samtök Fullveldissinna skora á landsmenn að neyta atkvæðisréttar síns og greiða atkvæði um Icesave lögin. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í morgun. 4.3.2010 11:55