Herinn í Chile hjálpar loks til 5. mars 2010 00:15 hermenn í chile Koma færandi hendi til borgarinnar Concepcion á jarðskjálftasvæðinu í Chile.nordicphotos/AFP
Herinn í Chile er nú kominn á fulla ferð í björgunarstörf eftir að hafa varið fyrstu dögunum eftir jarðskjálftann í að stöðva gripdeildir og sjá til þess að friður ríki í borgum og bæjum jarðskjálftasvæðisins. „Loksins!" hrópar almenningur sem áður fyrr átti frekar því að venjast að sjá hermenn landsins í hlutverki ógnvalda sem af fullri grimmd vörðu einræðisstjórn Augusto Pinochets. Þau tuttugu ár sem lýðræði hefur ríkt í landinu hefur herinn ekki tekið að sér lögreglustörf, hvað þá hjálpar- og björgunarstörf. Nú ganga hermennirnir hins vegar stoltir til verka, ánægðir með öll brosin sem mæta þeim hvert sem þeir koma, með mat og vatn handa fólki í götum þar sem hús eru meira og minna hrunin. Sumir gagnrýndu þó að fyrsta gatan í borginni Concepcion sem hermennirnir fóru að sinna er gata þar sem fjölskyldur hermanna búa. „Öll þessi húsalengja tilheyrir hernum," segir Yanira Cifuentes, ein af íbúunum við götuna General Novoa Avenue. Hún segir eiginmann sinn herforingja. Hún segir að hjálpin sé sér kærkomin, en viðurkennir að íbúarnir þarna hafi ekki liðið hungur vegna þess að þeir hafi haft aðgang að mat hjá hernum. Herinn segir að stjórnvöld á hverjum stað ráði forgangsröðun í hjálparstarfinu, en íbúar létu sumir í ljós reiði gagnvart borgaryfirvöldum fyrir að láta auðugri hverfi ganga fyrir um matvælaaðstoð. „Hjálpin á fyrst að berast þeim sem ekkert hafa," sagði Louis Sarzosa, tæplega fimmtugur maður í Concepcion. „Þeir sem betur eru staddir fá alltaf allt fyrst en þeir sem hafa ekkert eru skildir út undan." Matvæli frá stjórnvöldum byrjuðu að berast til smærri byggðarlaga í nágrenni Concepcion á þriðjudag, og voru þyrlur notaðar til að dreifa þeim.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira