Sex verið teknir í stóru fíkniefnamáli 5. mars 2010 06:00 flugstöðin Handtaka nær sjötugs burðardýrs á Keflavíkurflugvelli kom lögreglu á spor umfangsmikils fíkniefnainnflutnings.
Handtaka tæplega sjötugs burðardýrs fíkniefna á Keflavíkurflugvelli í febrúar hefur leitt til þess að fimm manns til viðbótar hafa verið handteknir. Lögregla telur málið tengjast umfangsmiklum fíkniefnainnflutningi og sölu fíkniefna, meðal annars á Akureyri. Það var 11. febrúar sem tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði 69 ára Íslending við komu hans frá Kaupmannahöfn. Við leit í farangri hans fannst eitt kíló af kókaíni vandlega falið innan við falskar hliðar í ferðatöskum hans. Í framhaldinu var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald sem hann losnaði úr í fyrradag. Rannsókn lögreglu leiddi til þess að fimm karlmenn, Íslendingar á þrítugsaldri, hafa verið handteknir, auk burðardýrsins. Þeir voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir þeirra til dagsins í dag. Í fyrradag voru svo tveir menn handteknir á Akureyri. Öðrum var sleppt að loknum yfirheyrslum en gæsluvarðhalds krafist í gær yfir hinum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur rannsakað þetta mál í nánu samstarfi við lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, auk tollgæslunnar. Óvenjumikið hefur verið um smygltilraunir á Suðurnesjum það sem af er árinu og fjölmörg mál komið upp.- jss
Mest lesið „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Holskefla í kortunum Innlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Erlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Erlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Fleiri fréttir Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Sjá meira