Vill opinbera rannsókn á risaláni ríkisins til VBS Fjárfestingabankans 4. mars 2010 19:29
Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Magnússon, vill opinbera rannsókn á lánum ríkisins til VBS Fjárfestingabankans. Á bloggsíðu sinni skrifar Jón að eðlilegt sé að fram fari opinber rannsókn á því sem hann kallar milljarðafyrirgreiðslum Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. VBS Fjárfestingabankinn fékk 26 milljarða króna lán frá ríkinu í mars 2009. Í fjölmiðlum kom fram að lánið var veitt til að greiða skuld VBS við Seðlabanka Íslands vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta sem ríkið hefur yfirtekið. Með láninu vonaðist ríkið til þess að fá kröfur sínar að fullu greiddar. Þá fékk Saga Capital einnig lán frá ríkinu eða tæpa sjö milljarða í mars 2009. Jón er afar ósáttur við þennan gjörning ríkisins enda 26 milljarðar skattgreiðanda tapaðir eftir að FME skipaði bráðabirgðastjórn yfir bankanum. Jón skrifar svo: „Um var að ræða fjármálafyrirtæki sem skiptu engu máli varðandi fjármálastarfsemina almennt í landinu. Samt sem áður veitti Steingrímur þeim tuga milljarða fyrirgreiðslu á niðurgreiddum vöxtum allt í boði skattgreiðenda." Jón telur eðlilegt að einhver axli ábyrgð vegna málsins. Og hann spyr: „Hverjir eru það þá sem eiga að axla ábyrgð ef það er ekki Steingrímur J?" Að lokum skrifar Jón: „Rannsóknarskýrsla gæti verið tilbúin 1. maí á hátíðisdegi verkalýðsins til upplýsingar um það með hvaða hætti fjármálaráðherra "fólksins" misfer með fjármuni alþýðunnar í þeirri viðleitni sinni að standa við bakið á þeim kapítalistum sem honum eru hugnanlegir."
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira