Fleiri fréttir

Tuttugu ár liðin frá sjálfstæðisyfirlýsingu Litháa

Eftir viku verða liðin 20 ár frá því að þingið í Litháen ákvað að lýsa yfir sjálfstæði. Af því tilefni hefur utanríkismálanefnd Alþingis lagt fram tillögu um að Alþingi Íslendinga sendi Litháum sérstakar heillaóskir. Ísland var fyrsta þjóðin sem viðurkenndi sjálfstæði Litháen.

Slökkviliðsmenn segja Flugstoðir stefna mannslífum í hættu

Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur sent frá sér harðorða ályktun varðandi viðbúnaðarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli. Þar segir meðal annars að Flugstoðir ehf. stefni mannslífum í hættu með því að gera einungis ráð fyrir tveimur slökkviliðsmönnum á vakt hverju sinni.

Telpan var ekki Madeleine

Lögreglan á Nýja Sjálandi hefur sannreynt að lítil telpa sem sást á öryggismyndavél í stórmarkaði þar í landi var ekki Madeleine McCann.

Landskjörstjórn kemur saman

Landskjörstjórn kemur saman seinnipartinn á morgun vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave á laugardaginn. Kjörstjórnin fundar aftur um miðjan dag á laugardag og aftur um kvöldið þegar talning atkvæða fer fram.

Neitar að upplýsa um ástæður þess að Venables var handtekinn

Jack Straw, dómsmálaráðherra Breta, segir að það þjóni ekki hagsmunum almennings að upplýst verði hvers vegna barnamorðinginn Jon Venables var handtekinn í fyrradag. Innanríkisráðherra Breta telur hins vegar að almenningur eigi rétt á að vita það.

Flaug Boeing 737 próflaus í 13 ár

Svíi á fimmtugsaldri var handtekinn á þriðjudaginn þegar að upp komst að hann hafði flogið Boeing 737 flugvélum á fölsku flugskirteini í þrettán ár.

Öflugir eftirskjálftar í Chile

Öflugir eftirskjálftar skóku Chile í gær á svipuðum slóðum og skjálfti upp á 8,8 á Richter reið yfir á laugardag.

Kanna hvort Guðbjarni hefur reynt að komast úr landi

Strokufanginn af Litla Hrauni, sem skilaði sér ekki úr bæjarleyfi á laugardag, er enn ófundinn. Lögregla hefur fengið margar vísvbendingar um ferðir hans, en eftirgrennslan hefur engan árangur borið. Nú er meðal annars verið að skoða upptökur úr öryggismyndavélum í Leifsstöð, til að athuga hvort hann hefur reynt að komast úr landi.-

Innbrotsþjófur fluttur á slysadeild

Brotist var inn í fyrirtæki við Ármúla í Reykjavík í nótt. Lögregla fann þjófinn nokkru síðar og var hann skorinn á höndum eftir glerbrot. Hann var fyrst fluttur á Slysadeild Landsspítalans, þar sem gert var að sárum hans, og síðan á lögreglustöðina til yfirheyrslu. Ekki liggur fyrir hverju hann stal.

Minnst sex skjálftar undir Eyjafjallajökli

Að minnstakosti sex jarðskjálftar urðu undir Eyjafjallajökli í nótt, en allir undir þremur á Richter. Töluvert hefur verið um smáskjálfta á þessum slóðum að undanförnu, en jarðvísindamenn telja það þó ekki vera gosóróa, þótt jarðskorpan virðist eitthvað vera að þenjast. Upptök skjálftanna eru á allt niður í tíu kílómetra dýpi.

Hætta á gjaldeyrisþurrð ef erlendu lánin berast ekki

Tafir á endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hafa valdið efnahagslegum búsifjum. Þetta segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta er samhljóma mati hagfræðinga Alþýðusambandsins sem kynnt var í síðustu viku.

Kyrrstaða í London

Ágreiningur um kostnað Breta og Hollendinga af fjármögnun vegna greiðslu lágmarkstrygginga reikningseigenda stendur í veginum fyrir samningum um lausn Icesave-málsins.

Kærir skólastjóra VÍ fyrir að reka soninn

„Ég á mjög bágt með að sætta mig við að skólastjórinn geti tekið sér þetta vald og farið svona með framtíð þessara ungmenna,“ segir Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, móðir pilts sem vikið var úr Verzlunarskóla Íslands.

Lítið um efndir ráðamanna

„Það sígur áfram á ógæfuhliðina. Mannvirkjagerðin er á hliðinni og fátt sem bendir til að sú skúta fari að rétta sig af.“

Tilfellin erfið þegar aflima þarf í rústum

Fulltrúar íslenskra stjórnvalda og fyrirtækja ferðast nú um Sichuan-fylki í suðvestur Kína til að fylgja eftir samstarfi Íslendinga og Kínverja við uppbyggingu á jarðskjálftasvæðum. Jarðskjálfti sem nam átta á Richter reið yfir í Kína í maíbyrjun 2008 með þeim afleiðingum að tugþúsundir létust og milljónir misstu heimili sín.

Skerðingin á starfsfé LSH er 18 milljarðar

„Ef framlag ríkisins hefði haldist óbreytt síðasta áratug, og við hefðum stækkað í takt við samfélagið, hefðum við um átján milljörðum meira úr að spila en nú er,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans.

Sami fjöldi starfsmanna og 2006

Ekki var hægt að bregðast við athugasemd Ríkisendurskoðunar frá haustinu 2006 og fjölga starfsmönnum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra (RLS) vegna niðurskurðar í kjölfar hrunsins haustið 2008.

Skuldar ríkinu 26 milljarða

Viðskipti Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið yfir rekstur VBS fjárfestingarbanka og skipað bankanum nýja stjórn til bráðabirgða að ósk stjórnar bankans.

Sveik út á greiðslukort sýslumanns

Tæplega fertug kona hefur verið ákærð fyrir Héraðsdómi Austurlands fyrir fjársvik. Hún notaði greiðslukortanúmer af Master Card greiðslukorti á nafni embættis sýslumannsins í Stykkishólmi og lét skuldfæra andvirði varnings á greiðslukortareikning sýslumannsembættisins. Hún mætti við þingfestingu málsins í héraðsdómi í fyrradag og játaði sök.

Skatttekjurnar lækkuðu um 30 milljarða

Tekjur ríkisins af sköttum og tryggingagjaldi námu 360 milljörðum króna á síðasta ári. Er það lækkun um 30 milljarða frá 2008 þegar tekjurnar námu 391 milljarði. Lækkunin nemur 7,8 prósentum að nafnvirði en 20 prósentum að raunvirði.

Undanþága þótt reglur séu brotnar

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur samþykkt að framlengja undanþágu til þess að hægt sé að nota Hegningarhúsið á Skólavörðustíg áfram til næstu áramóta.

Fluttu þakkir 27 þúsund Íslendinga

Kristján L. Möller samgönguráðherra tók í gær á móti þremur fulltrúum undirskriftasöfnunar vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar.

Kosið í skugga hryðjuverka

Að minnsta kosti þrjátíu fórust og 48 særðust í nokkrum sjálfsmorðssprengjuárásum í borginni Baquoba í Írak í gær. Einn vígamannanna var farþegi í sjúkrabíl sem var að flytja særða á sjúkrahús þegar hann sprengdi sig í loft upp.

Ný gildi Landsbankans - myndband

Nýtt kynningarmyndband sem Landsbankinn hefir gert fer nú eins og eldur um sinu um Internetið. Myndbandið er öllu hógværara en samskonar myndband sem Kaupþing gerði fyrir hrun.

Ríkislögreglustjóri ánægður með traustið

Ríkislögreglustjóri lýsir ánægju með að aldrei hafi fleiri lýst trausti til lögreglunnar í Þjóðarpúlsi Gallup. Í síðasta Þjóðarpúlsi segjast rúmlega 81 prósent bera mikið traust til lögreglunnar og hefur lögreglan aldrei mælsti svo hátt.

Grikkir herða enn sultarólina

Stjórnvöld í Grikklandi kynntu í dag nýjar aðhaldsaðgerðir í efnahagsmálum. Meðal annars á að frysta samstundis allar eftirlaunagreiðslur, opinberir starfsmenn verða lækkaðir enn meira í launum og tollar og virðisaukaskattur hækka til muna.

Landspítalinn kaupir nýtt tölvusneiðmyndatæki

Í dag var skrifað undir samning um kaup á nýju tölvusneiðmyndatæki fyrir Landspítala og verður það tekið í notkun í byrjun maímánaðar. Í tilkynningu frá spítalanum segir að tækið gefi þversniðs- og þrívíddarmyndir af líffærum og séu ein mikilvirkustu greiningartæki sem notuð eru í læknisfræði í dag.

Höfnuðu gegnumlýsingu á flugvelli

Tvær múslimakonur urðu fyrstu farþegarnir sem neituðu að fara í gegnumlýsingarvél sem komið hefur verið upp á flugvellinum í Manchester í Bretlandi.

Engan dónaskap hér góða

Conneran fjölskyldunni í New Jersey í Bandaríkjunum var nokkuð brugðið þegar lögreglan bankaði upp hjá henni og bað húsmóðurina að koma aðeins með út í garðinn.

Heimdallur spyr hvort netlögga VG sé að vakna til lífsins

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík gagnrýnir hugmyndir Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, sem þeir segja að boði umfangsmikla upplýsingasöfnun ríkisins um netnotkun landsmanna við fyrirhugaða endurskoðun höfundarréttarlaga. Ætlunin er að kortleggja umsvif ólöglegs niðurhals á netinu.

Dagur: Ómenguð frjálshyggjustefna í borginni

Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir greinilegt að pólitískar átakalínur séu farnar að skýrast í borginni. Hann segir þriggja ára áætlun meirihlutans um fjárhag og rekstur borgarinnar sem kynnt var í gær merki um eina ómenguðustu frjálshyggjustefnu í atvinnumálum sem kynnt hafi verið frá hruni. Dagur bendir á að samdráttur í framkvæmdum á vegum borgarinnar nemi um 70 prósentum og getur hann þess að árið 2008 hafi verið framkvæmt fyrir 10,3 milljarða en að áætlað sé að framkvæma fyrir 1,3 milljarða árið 2013.

Fá 208 milljóna króna sekt fyrir skattalagabrot

Tveir karlmenn, Karl Stefán Hannesson og Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson, hafa verið dæmdir í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 208 milljónir í sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot. Samkvæmt dómsorði þurfa mennirnir að sæta fangelsi í sex mánuði ef þeir greiða ekki sektina innan fjögurra vikna.

Össur farinn til Þýskalands

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hélt til Þýskalands í morgun til fundar við þarlenda ráðamenn. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu mun Össur meðal annars funda með Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, um Icesave, Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Össur snýr aftur heim á morgun.

Enn fundað í London

Samninganefnd Íslands í Icesave málinu fundar með Bretum í Lundúnum í dag. Stjórnarandstaðan kom í veg fyrir það í gær að nefndin legði fram nýtt tilboð í málinu.

Segir morðingja Bulgers eiga heima í fangelsi

Móðir James litla Bulgers, sem var aðeins tveggja ára gamall þegar að hann var myrtur í Liverpool árið 1993, segir að morðingi hans sé kominn á þann stað þar sem hann eigi helst heima.

Ætlaði að stökkva fram af brú

Kona á þrítugsaldri stillti sér upp á brú á mótum Miklubrautar og Hringbrautar í Reykjavík í morgun og hugðist kasta sér fram af.

Ramos kveður klakann á föstudag

Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos sem setið hefur í varðhaldi hér á landi frá því í ágúst á síðasta ári er loks á heimleið. Hann mun fljúga áleiðis til Brasilíu á föstudaginn kemur að sögn Smára Sigurðssonar hjá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Brasilískir lögreglumenn sem munu fylgja honum koma til landsins í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir