Fleiri fréttir

Forseti og frú í opinbera heimsókn til Indlands

Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Indlands hófst í morgun, þriðjudaginn 12. janúar, í Mumbai en í heimsókninni fer forseti einnig til Delhi og Bangalore. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að forseti Íslands muni eiga fundi með forseta Indlands frú Patibha Patil og varaforseta landsins Mohammad Hamid Ansari sem og forsætisráðherranum Manmohan Singh, utanríkisráðherranum og fjölda annarra ráðamanna.

Baldur krefst þess að kyrrsetning eigna hans verði ógild

Kyrrsetning á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, er fordæmalaus, tilefnislaus, óvenjuleg og óvægin. Þetta segir lögmaður hans sem krafðist þess í héraðsdómi Reykjavíkur í dag að kyrrsetningin yrði ógild.

Nýr meirihluti myndaður í Borgarbyggð

Samkomulag hefur tekist með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki í Borgarbyggð um myndun nýs meirihluta sem starfar fram að sveitarstjórnarkosningum í vor. Samstarf allra flokka í sveitarfélaginu sprakk daginn fyrir gamlársdag vegna áhersluatriða við gerð fjárhagsáætlunar. Frá þessu er greint á fréttavefnum Skessuhorn.is

Dorrit er sextug í dag

Dorrit Moussaieff forsetafrú er sextug í dag, 12. janúar. Hún fæddist árið 1950 í Jerúsalem en foreldrar hennar Alisa og Shlomo eru frægir skartgripasalar. Þá segir á heimasíðu forsetaembættisins að faðir hennar sé á meðal fremstu forngripasafnara heims en hann sérhæfir sig í minjum sem tengjast Gamla testamentinu.

Varað við kraftaverkalausn

Varað er við kraftaverkalausninni MMS (e. Miracle Mineral Solution) sem ætlað er að lækna marga sjúkdóma allt frá alnæmi til berkla. Lausnin getur valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Það eru sóttvarnalæknir, Lyfjastofnun, Matvælastofun, Umhverfisstofnun og Eitrunarmiðstöð Landspítalans sem vara við efninu.

Byssuskortur hjá breskum bófum

Breska lögreglan hefur gengið svo hart fram við að gera upptæk ólögleg skotvopn að glæpagengi eru nú farin að deila með sér byssum. Jafnvel gengi sem eiga í innbyrðis átökum.

Dularfullur gasleki

Tveir slökkviliðsbílar með fimmtán slökkviliðsmönnum voru snarlega sendir á vettvang þegar mikinn gasfnyk lagði yfir bæinn Axedale í Ástralíu.

Saab úr sögunni

Saab hefur verið rekið með tapi í öll þau tíu ár sem verksmiðjurnar hafa verið í eigu General Motors. Fjármálakreppan varð svo til þess að endanlega var ákveðið að loka þeim, nema bærist tilboð sem teldist skárri kostur.

Konan sem faldi Önnu Frank er látin

Í tvö ár tók Miep Gies þátt í því ásamt öðrum að fela Frank fjölskylduna fyrir nazistum og færa henni mat, bækur og fréttir af því sem var að gerast í umheiminum.

2x13 í framboði hjá S og D

Þrettán manns gefa kost á sér til forvals Samfylkingarinnar í Kópavogi vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor, en framboðsfrestur rann út í gærkvöldi.

14 prósent útgjalda borgarinnar fer í húsnæði

Reykjavíkurborg greiddi 8,8 milljarða í húsnæðiskostnað á síðasta ári Húsnæðiskostnaður Reykjavíkurborgar var 8,8 milljarðar og 14 prósent af heildargjöldum borgarinnar árið 2009. Húsnæðiskostnaðurinn var 4,6 milljarðar og 10 prósent af gjöldum árið 2005. Að teknu tilliti til verðbólgu á tímabilinu er raunhækkunin 35 prósent.

Síldargöngur kalla til sín fugla

Talningar vetrarfugla á Snæfellsnesi sýna óvenju blómlegt fuglalíf líkt og í fyrravetur. Ástæðan er mikil síldargengd í Breiðafirði.

Skrifar bók um forræðisdeiluna

Lokadagur málflutnings í forræðisdeilu Borghildar Guðmundsdóttur við fyrrverandi eiginmann sinn verður á fimmtudag.

Varar við hryllilegum kjörum

Ekki er ljóst hvort efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur heimildir til að stöðva veitingu svokallaðra SMS-lána hér á landi. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ráðuneytið nú kanna hvort hægt sé að stöðva lánveitingarnar.

Mikill áhugi á orkuframleiðslu

Ríflega 130 manns hafa skráð sig á námskeiðið Orkubóndann sem haldið verður á Egilsstöðum í dag og er þetta metþátttaka í námskeiðinu sem er fyrir áhugafólk um orkuvirkjun.

Forstjóri hættir og fer í framboð

Hildur Dungal, sem hefur verið í leyfi frá störfum sínum sem forstjóri Útlendingastofnunar, hefur beðist lausnar á því starfi. „Ég baðst lausnar fyrir áramót, mér fannst bara kominn tími á að gera eitthvað nýtt eftir sjö ár hjá stofnuninni,“ segir Hildur sem hefur tilkynnt þátttöku sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem fram fer í febrúar.

Kínaforseti fylgist með Íslandi

Kristín Aðalbjörg Árnadóttir sendiherra afhenti í gær Hu Jintao, forseta Kína, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Kína, fjórum dögum eftir komu sína til landsins. Að afhendingu lokinni fundaði hún með forsetanum og fleirum.

Óvissa með nýjar virkjanir

Breytt lánshæfismat íslenska ríkisins í kjölfar synjunar forseta Íslands á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave gæti haft áhrif á lánsfjáraðgengi Landsvirkjunar, og setur þar með áform um nýjar virkjanir í uppnám, segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar.

Samkynhneigð ósátt við bann

Í San Francisco eru hafin fyrstu réttarhöldin í sögu Bandaríkjanna um það hvort bann við hjónaböndum samkynhneigðra brjóti í bága við stjórnarskrá landsins.

Ekki þrælar heldur launafólk

Nýfundnar grafir í Egyptalandi, meira en fjögur þúsund ára gamlar, þykja sýna fram á að píramídarnir hafi ekki verið byggðir af þrælum heldur launafólki.

Gæta fórnarlambsins bæði á nóttu og degi

Meint fórnarlamb sakborninganna í mansalsmálinu á Suðurnesjum hefur verið í 24 tíma gæslu og notið hámarksverndar hér á landi. Stúlkan, sem er litháísk, tæplega tvítug, er talin í stórhættu af hálfu sakborninga, eða manna sem þeir þekkja hér.

Mun minna af gulldeplu í ár

Gulldepluveiðin í upphafi árs er mun minni en í fyrra, segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE, skipi HB Granda. Hann segir að skipum hafi fjölgað frá því í fyrra og svæðið, sem er lítill blettur í Grindavíkurdýpinu, sem veitt er á þoli það illa. Alls eru skipin tíu sem stunda veiðarnar.

Íþróttafélög og skógrækt keppa

Skógrækt Reykjavíkur í samstarfi við Gámaþjónustuna býður nú Reykvíkingum að sækja til þeirra gömul jólatré fyrir 800 krónur stykkið, og gróðursetja eitt tré í Heiðmörk fyrir hvert tré sem þannig safnast.

Tveir til læknis eftir umferðarslys við Hvolsvöll

Ökumaður og farþegi voru fluttir til skoðunar hjá lækni eftir að bíll hafnaði utan vegar og hvolfdi vestan við Rauðalæk, í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli, um fimmleytið í dag. Talið er að meiðsl þeirra séu ekki alvarleg. Mikil hálka er í umdæminu að sögn lögreglunnar.

Aðstoðuðu konu í Húsavíkurfjalli

Björgunarsveitarmenn og lögregla á Húsavík eru á leið upp á Húsavíkurfjall til að aðstoða konu sem slasaðist í fjallinu í kvöld. Hvorki er vitað um tildrög slyssins né hvers eðlis meiðsl konunnar eru.

Grynnra niður á kviku undir vesturhluta Íslands

Glóandi kvika er mun grynnra undir vestanverðu landinu en áður hefur verið talið, að mati Hauks Jóhannessonar jarðfræðings. Hann segir borðleggjandi að bora eftir jarðhita mun víðar, eins og á Vestfjörðum og Húnavatnssýslum, en jafnframt verði að endurmeta jarðskjálftahættu á þessum svæðum.

Landsvirkjun þarf ekki endurlán á næsta ári

Lausafjárstaða Landsvirkjunar er mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og á fyrirtækið nú fimmtíu milljarða króna í lausu fé. Ástæðan er mikil tekjuaukning vegna fimmtíu prósenta hækkunar álverðs á nýliðnu ári, og segir Landsvirkjun í tilkynningu í dag að hún geti staðið við allar núverandi skuldbindingar til ársins 2012. Áður var gert ráð fyrir að taka þyrfti ný lán eftir þetta ár. Þá vekur athygli að lánshæfismat Landsvirkjunar hefur haldist óbreytt þrátt fyrir að eigandinn, ríkissjóður Íslands, sé kominn í ruslflokk.

Áformar 60 megavatta virkjun í Hverfisfljóti

Bóndinn á Dalshöfða í Vestur-Skaftafellssýslu áformar allt að sextíu megavatta stórvirkjun í Hverfisfljóti. Þetta yrði langstærsta virkjun hérlendis á vegum einkaaðila. Bóndinn segir að fólksfækkunin í Skaftafellssýslum sé orðin meiri en í Móðuharðindunum.

Ríkisstjórnin minnir á aðild Íslands að EES

Forsætisráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu þar sem minnt er á að Ísland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Í Silfri Egils í gær var talað við Evu Joly og Alain Lipietz, fulltrúa Græningja á Evrópuþinginu. Í máli þeirra komu fram miklar efasemdir um að Íslendingar, eða íslenski innstæðutryggingasjóðurinn, ættu að bera ábyrgð á innstæðum á Icesave reikningum Breta og Hollendinga. Að mati þeirra eiga viðkomandi lönd að bera ábyrgðina vegna þess að Ísland er utan Evrópubandalagsins.

Líf sækist eftir öðru sætinu hjá VG

Líf Magneudóttir gefur kost á sér í forval Vinstri grænna til borgarstjórnarkosninganna í vor og sækist hún eftir 2. sæti á lista. Í tilkynningu frá Líf segir að hún hafi verið flokksbundin frá árinu 2004 og stutt flokkinn frá upphafi.

Ræddi við Reinfelt og Stoltenberg

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í dag rætt við Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, um stöðu mála hér á landi í kjölfar synjunar forseta Íslands á Icesave lögunum.

Dómari féllst á lokað þinghald í mansalsmálinu

Mansalsmálið svokallaða var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag en fimm Litháar og einn íslenskur karlmaður eru ákærðir í málinu. Réttargæslumaður litháískrar stúlku sem talið er að átt hafi að þvinga í vændi hér á landi krafðist þess við upphaf þingfestingarinnar að þinghaldið yrði lokað og féllst dómarinn á það.

Stjórnarandstaðan boðuð í forsætisráðuneytið

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur boðað formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi til fundar við sig í forsætisráðuneytinu klukkan fjögur. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mun einnig sitja fundinn.

Þjófnaðurinn í sendiráðinu í Vín enn til rannsóknar

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur enn til rannsóknar mál konu sem gegndi starfi bókara í sendiráði Íslands í Vín og grunuð er um að hafa dregið sér rúmlega 50 milljónir króna. Helgi Magnús Gunnarsson yfirmaður deildarinnar á von á því að niðurstaða liggi fyrir eftir nokkrar vikur og þá verði tekin ákvörðun hvort að konan verði ákærð.

Nýbygging HR í Nauthólsvík tekin í notkun

Nýbygging Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík var formlega tekin í notkun í morgun. Um eitt þúsund nemendur gengu af því tilefni fylktu liði frá aðalbyggingu skólans við Ofanleiti að nýju skólabyggingunni.

VG eini flokkurinn sem hefur skilað ársreikningi

Vinstrihreyfingin grænt framboð er eini starfandi stjórnmálaflokkurinn sem hefur skilað inn ársreikning fyrir árið 2008 til Ríkisendurskoðunar. Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá stofnuninni, veit ekki til þess að von sé á gögnum frá öðrum flokkum.

Tveir handteknir í Angóla

Yfirvöld í Angóla hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa gert skotárás á rútu fótboltalandsliðs Tógó en þrír létust í árásinni. Mennirnir voru handteknir í Cabinda héraði þar sem árásin var gerð á föstudaginn var. Árásin hefur varpað skugga á Afríkukeppnina sem nú stendur yfir og hefur landslið Tógó dregið sig út úr keppninni og þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu. Aðskilnaðarsamtök í Cabinda héraði hafa lýst árásinni á hendur sér.

Sex árekstrar í borginni það sem af er degi

Nokkuð hefur verið um árekstra í dag vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið sem rekja má til lúmskrar hálku sem verið hefur á götum borgarinnar. Að sögn lögreglu hafa sex árekstrar orðið það sem af er degi. Harkalegasti áreksturinnvarð á gatnamótum Stórholts og Þverholts en þar þurfti að flytja ökumenn á slysadeild. Meiðsli þeirra munu þó hafa verið minniháttar.

Fréttastjóri á Mogganum blandar sér í oddvitaslag

Hlynur Sigurðsson, fréttastjóri MBL Sjónvarps, blandar sér í oddvitaslag sjálfstæðismanna í Hafnarfirði á Facebook. Þar er Hlynur einn af rúmlega 200 stuðningsmönnum Valdimars Svavarssonar, hagfræðings, sem gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri flokksins í bæjarfélaginu vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Auk Valdimars gefur Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi, kost á sér í fyrsta sætið.

Sjá næstu 50 fréttir