Grynnra niður á kviku undir vesturhluta Íslands 11. janúar 2010 19:08
Glóandi kvika er mun grynnra undir vestanverðu landinu en áður hefur verið talið, að mati Hauks Jóhannessonar jarðfræðings. Hann segir borðleggjandi að bora eftir jarðhita mun víðar, eins og á Vestfjörðum og Húnavatnssýslum, en jafnframt verði að endurmeta jarðskjálftahættu á þessum svæðum.Þetta er sú mynd sem við höfum af gosbeltum Íslands, þarna undir sé grunnt á kviku, en svæðin þar utan hafa verið talin köld. Samt finnst jarðhiti víða á svokölluðum köldum svæðum, sem jarðfræðingar hafa átt erfitt með að útskýra, eins og til dæmis á Vestfjörðum. Í fyrirlestri sem Haukur Jóhannesson jarðfræðingur flutti nýlega hjá Íslenskum orkurannsóknum setti hann fram þá hugmynd að gosbeltaflutningar í jarðsögu Íslands hefðu ekki verið tveir heldur fimm eða sex.Haukur segir að átök í skorpunni þegar þetta gerist brjóti upp, -sérstaklega vesturflekann, á norðvesturhluta landsins, frá Borgarfirði norður um land að Eyjafirði og lengra til. Þetta telur hann skýra hversvegna miklu meiri lághiti finnist vestan gosbeltanna heldur en á Austfjörðum. Haukur segir óvenju mikið af helium-gasi streyma til yfirborðs á Vestfjörðum, sem aðrir vísindamenn segja að bendi til kviku. Jarðfræðilega sé þessi kvika tiltölulega grunnt í jarðskorpunni, á kannski 10-20 kílómetra dýpi.Út frá þessu ætti að vera grynnra í jarðhita en menn hafa talið víða, og nefnir Haukur bæði Vestfirði og Húnavatnssýslur. Það ætti að vera borðleggjandi á nokkrum þéttbýlisstöðum að ná í heitt vatn til húshitunar.En menn þurfa líka að endurmeta jarðskjálftahættu, en Haukur telur að stórir skjálftar geti líka orðið á Vestfjörðum, miðað við sprungur þar. Ef sumar þeirra hreyfðust í heilu lagi gætu komið þar skjálftar upp á 4, 5 eða jafnvel 6 á Richter, segir Haukur.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira