Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skotið úr riffli á sumarbústað Lögreglan á Selfossi rannsakar nú að skotið var á sumarbústað í landi Nesja. Þremur riffilskotum hefur verið skotið þar í gegnum glugga, en fólk var síðast í bústaðnum fyrir tveimur mánuðum. Engar vísbendingar eru um hver var þar að verki og eiganda bústaðarins hafa ekki borist neinar hótanir. 11.1.2010 10:52
Svínaflensufárið hneyksli aldarinnar Evrópuráðið hefur boðað til neyðarfundar síðar í þessum mánuði til þess að ræða um ferli svínaflensunnar og hvernig staðið var að vörnum gegn henni. 11.1.2010 10:50
22 frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Framboðsfrestur vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Hafnarfirði sem haldið verður dagana 28. til 30. janúar rann út í gær. Alls gefa 22 kost a sér, tíu konur og tólf karlar. Elsti frambjóðandinn er á 64 aldursári en sá yngsti á því nítjánda. Gunnar Svavarsson, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, gefur ekki kost á sér. 11.1.2010 10:26
Kreppan hefur ekki áhrif á geðheilsu barna Enn sem komið er hefur ekki orðið marktæk aukning í eftirspurn eftir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga hér á landi eftir bankahrunið. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir barna- og unglingageðlækninga á BUGL, segir þó of snemmt að fagna. Erlendar rannsóknir bendi til þess að efnahagskreppa hafi neikvæð áhrif á geðheilsu barna og unglinga. BUGL stendur fyrir ráðstefnu næstkomandi föstudag um málefni sem tengjast geðheilbrigði barna og unglinga. 11.1.2010 10:10
Vill uppbyggðan veg í Lakagíga Perlur Vatnajökulsþjóðgarðs eiga ekki bara að vera fyrir ríka jeppakarla. Byggja verður upp hálendisvegi svo þjóðgarðurinn verði aðgengilegur öllum, líka fólki í hjólastólum. Þetta segir hótelstjóri í Vestur-Skaftafellssýslu 11.1.2010 10:09
Vill að Hanna Birna víki Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, vill að Hanna Birna Kristjánsdóttir víki sem borgarstjóri. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Ólafar kallar eftir afsögn Hönnu Birnu. „Borgarstjóri sem er taglhnýtingur spilltasta auðvalds á Íslandi verður að víkja. Það eru almannahagsmunir,“ segir Ólafur í tilkynningu. 11.1.2010 09:59
Róleg helgi hjá löggunni Óvenju lítið var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn varðstjóra voru mun færri útköll en um venjulega helgi, og hvergi kom til stór vandræða. 11.1.2010 09:22
Bandarísk áætlun um loftárásir á Íran Yfirhershöfðingi Bandaríkjanna í Miðausturlöndum hefur staðfest að gerð hafi verið áætlun um loftárásir á Íran til þess að binda enda á kjarnorkuáætlun þarlendra. 11.1.2010 09:16
Flýja skattbreytingar með stofnun samlagsfélaga „Biðröðin hjá okkur var löng milli jóla og nýárs,“ segir Bergþóra Sigmundsdóttir, deildarstjóri hjá Sýslumanninum í Reykjavík. 41 nýtt samlags- og sameignarfélag var skráð þar þá tvo virku daga sem opið var á síðustu dögum nýliðins árs. Til samanburðar voru 63 ný félög skráð allt árið í Reykjavík í hittifyrra. Verið er að vinna í því að taka saman heildartölur um skráningu ársins í höfuðborginni. 11.1.2010 07:00
Almenn ánægja með störf forseta Íslands Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins telja að Ólafur Ragnar Grímsson hafi staðið sig vel í embætti forseta Íslands. 11.1.2010 07:00
Hafa ekkert rætt um aðkomu sáttasemjara Íslensk stjórnvöld hafa ekki ámálgað þá hugmynd við Breta og Hollendinga að fá erlendan sáttasemjara til að miðla málum í Icesave-deilunni. „Það er nú ekki hægt að segja að þessi samskipti hafi komist neitt á það stig,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. 11.1.2010 06:15
Segir Lipietz misskilja málið Svo virðist sem ekki standi steinn yfir steini í málflutningi franska Evrópuþingmannsins Alains Lipietz, sem tjáði sig um Icesave-málið í Silfri Egils í gær. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sem segir þann franska fara með rangt mál varðandi þrjú grundvallaratriði. Fyrir það fyrsta hafi Lipietz ekki samið tilskipunina um evrópska innstæðutryggingakerfið, eins og haldið hefur verið fram í fjölda fjölmiðla, enda hafi hann ekki tekið sæti á Evrópuþinginu fyrr en fimm árum eftir að sú tilskipun tók gildi. 11.1.2010 06:00
Umferð eykst eftir samdrátt Umferðin á sextán völdum talningarstöðum á hringveginum var 2,2 prósentum meiri á árinu 2009 en árinu 2008. Umferðin var hins vegar minni en hún var metárið 2007 þótt ekki muni miklu. 11.1.2010 06:00
HR flyst í nýja húsið í dag Háskólinn í Reykjavík (HR) flytur í nýja byggingu í Nauthólsvík í dag. Til að fagna tilefninu ætla nemendur og kennarar skólans að ganga fylktu liði frá aðalbyggingu skólans í Ofanleiti að nýju byggingunni. 11.1.2010 06:00
Mikið líf þrátt fyrir klórleka Nýr fiskteljari í Varmá við Hveragerði hefur gefið áhugaverðar niðurstöður um lífríki árinnar. Teljarinn var settur niður vegna klórleka í ána fyrir tveimur árum og er samstarfsverkefni Veiðimálastofnunar, Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. 11.1.2010 05:45
Mokuðu snjó af fótboltavelli Nokkrir drengir á Stöðvarfirði láta snjóþyngsli ekki stöðva fótboltaiðkun sína. Þeir eyddu stærstum hluta helgarinnar í að moka burt snjóinn á gervigrassparkvelli í bænum. 11.1.2010 05:15
Flekamönnum sleppt úr haldi Héraðsdómur hafnaði um helgina beiðni lögreglu um gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem reyndu að flýja land með því að lauma sér um borð í skipið Reykjafoss með aðstoð heimagerðs fleka. 11.1.2010 05:00
Fær 125 milljónir í styrk Rannsóknarstöð Hjartaverndar hefur nýverið fengið rannsóknastyrki frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) til rannsókna á sambandi æðakerfis og heila- og nýrnastarfsemi sem og til rannsókna á notkun beinamynda sem munu spá fyrir um líkur á beinbrotum. Styrkirnir nema 125 milljónum króna. 11.1.2010 05:00
Ofanvatn sagt ógna vatnasviði Nýr þjónustusamningur milli Siglingastofnunar Íslands og Neyðarlínunnar um rekstur Vaktstöðvar siglinga var undirritaður í gær. Eldri samningur hefur verið í gildi frá árinu 2004. Hlutverk aðila skiptast þannig að Siglingastofnun hefur með höndum fjárhagslegt og faglegt eftirlit með rekstrinum, sinnir samskiptum við stjórnvöld og samstarfi við alþjóðastofnanir um siglingamál. Neyðarlínan sér um fjármál og rekstur vaktstöðvarinnar og gerir samninga við verktaka þar um. 11.1.2010 05:00
Tvö skip voru kyrrsett í fyrra Siglingastofnun Íslands kyrrsetti tvö skip og gerði athugasemdir við ástand níutíu til viðbótar við hafnarríkiseftirlit árið 2009. 11.1.2010 04:30
Norðurlöndin undirbúa svar Steingrímur fundaði fyrir helgi með kollegum sínum á Norðurlöndum um það hvaða áhrif tafirnar í Icesave-málinu hafa á fyrirgreiðslu þaðan. 11.1.2010 04:30
Ekki greitt fyrir utanlandsferð stjórnarmanns síðan 2004 Stjórnarmenn Landsvirkjunar hafa ekki farið til útlanda á kostnað fyrirtækisins síðustu fimm ár, að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar. 11.1.2010 04:00
Ekki aðeins útvaldir fái afslátt „Lögfræðingur okkar segir að þetta hafi verið á gráu svæði svo við ætlum að breyta afsláttarfyrirkomulaginu," segir Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, sem rekur Breiðafjarðarferjuna Baldur. 11.1.2010 03:30
Íslensk hornsíli bæta skilning á þróun lífs Hornsíli í Vífilsstaðavatni gegna þýðingarmiklu hlutverki í nýrri rannsókn sem bendir til þess að þróun lífs á jörðinni verði frekar í stórum stökkum en í hægari skrefum. Um þetta hafa líffræðingar deilt síðan á tímum Darwins, segir Bjarni Jónsson, sviðstjóri þróunar- og nýsköpunarsviðs Veiðimálastofnunar (VMST), sem vann að rannsókninni. 11.1.2010 03:30
Skólastarf óbreytt enn um sinn Skólastarf heldur áfram óbreytt í grunnskóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum enda hafi ekki verið tekin ákvörðun um annað, að sögn Páls S. Brynjarssonar, sveitarstjóra í Borgarbyggð. 11.1.2010 03:30
Bakteríur ónæmar fyrir sótthreinsiefni Örverur geta orðið ónæmar fyrir sótthreinsandi efnum sem áttu að drepa þær, samkvæmt nýjustu rannsóknum. Þá hafa breyttu bakteríurnar meira þol við algengu breiðvirku sýklalyfi. 11.1.2010 03:00
Allt gengur hægar en vanalega „Ég get lítið sagt um ástandið í öðrum hlutum landsins, en hérna í Berlín tek ég fyrst og fremst eftir því að allt virðist ganga eðlilega fyrir sig en mun hægar en vanalega,“ segir Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, sem nemur sagnfræði í lýðháskóla í Berlín. 11.1.2010 02:00
Sigmundur Davíð: Núverandi samningar eru ekki viðunandi Núverandi samningur um Icesave er ekki viðunandi þótt ríkisstjórnin hafi haldið öðru fram, vegna þvingana af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlandanna. Þetta segir formaður Framsóknarflokksins. 10.1.2010 19:01
Hjartavernd fékk 125 milljónir í rannsóknarstyrk Hjartavernd hefur nýverið fengið rannsóknastyrki frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) til rannsókna á sambandi æðakerfis og heila- og nýrnastarfsemi sem og til rannsókna á notkun beinamynda sem munu spá fyrir um líkur á beinbrotum. Alls hlaut Hjartavernd 125 milljónir í styrki. 10.1.2010 17:50
Björk vill annað sætið Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og borgarfulltrúi, býður sig fram í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í prófkjöri flokksins sem haldið verður 30. janúar næstkomandi. Björk hefur átt sæti í borgarstjórn í átta ár þar sem hún hefur verið atkvæðamikil í velferðarmálum, auk þess að sitja í skipulagsráði og borgarráði. 10.1.2010 16:04
Björguðu tveimur mönnum á Haukdalsheiði - myndir Björgunarsveitirnar Ingunn og Biskup komu tveimur mönnum til bjargar á Haukadalsheiði í dag er þeir sátu fastir umflotnir vatni sem hafði myndast á veginum í leysingum. voru þeir komnir á pall bílsins og báru sig þokkalega þegar björgunarsveitirnar komu þeim til bjargar. 10.1.2010 15:51
Gagnrýna hækkun gjaldskrá Seltjarnarness harðlega Samfylkingin á Seltjarnarnesi gagnrýnir harkalega vinnubrögð við hækkun gjaldskrár bæjarfélagsins. Þeir segja hækkunin hafa í mörgum tilfellum leitt til 40-50% hækkunargjalda vegna dagvistunar barna á Seltjarnarnesi og halda því fram a leikskólagjöld séu nú allt að 266% hærri en í Reykjavík. 10.1.2010 15:25
Beittu piparúða á farþega bifreiðar Nokkuð var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt þó flest málin hafi verið minniháttar. 10.1.2010 14:11
Ekki fá allir andmælarétt í rannsóknarskýrslu Formaður rannsóknarnefndar Alþingis, Páll Hreinsson, segir misskilning að þeir sem fái andmælarétt verði sendar skýrsla rannsóknarnefndar til þess að gera athugasemdir við hana. Hann bendir á lög um rannsóknarnefndina en þar segir orðrétt: 10.1.2010 14:02
Gunnar Birgisson vill fyrsta sætið Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi rann út á hádegi í gær. Þrettán gefa kost á sér í prófkjörinu sem fer fram 20.febrúar. 10.1.2010 12:16
Kosningabarátta á kostnað skattgreiðenda Fjármálaráðherra segist ekki ætla að sitja aðgerðalaus hjá meðan stjórnarandstaðan talar niður Icesave-samningana. Hann segir óhjákvæmilegt að kostnaður vegna kynningar á kostum og göllum samninganna vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu greiðist úr ríkissjóði.Jafnframt verði kostnaður vegna rökstuðnings ríkisstjórnarinnar greiddur úr ríkissjóði, en Steingrímur segist ætla að reyna að tryggja að hann verði ríkissjóði ekki dýr á fóðrum. 10.1.2010 12:13
Neitaði að ræða við Jón Baldvin í miðju viðtali „Ég verð því miður að ræða þetta við Jón á öðrum nótum. Ég tek ekki þátt í svona umræðum um keypta sérhagsmunapotara,“ sagði Friðrik Arngrímsson, framkvæmdarstjóri LÍÚ en það sló í brýnu á milli hans og Jón Baldvins Hannibalssonar, fyrrum ráðherra, í viðtali í útvarpsþættinum Sprengisandi sem blaðamaðurinn Sigurjón M. Egilsson sér um. 10.1.2010 11:17
Vindsnúnir snjóboltar myndast einnig á Íslandi Vísir sagði frá hjónunum Ron Trevett og Aileen sem urðu steinhissa á dögunum þegar þau gengu út á akur nærri heimili sínu í Somerset í Englandi og sáu þar hundruð snjóbolta sem náttúran hafði búið til ein og óstudd. Um var að ræða einstaklega sjaldgæft fyrirbæri sem er þekktara á köldum slóðum Norður Ameríku. 10.1.2010 10:10
The Observer: Íslendingar verðskulda samúð Svo virðist sem samúð með Íslendingum í Bretlandi sé farin að aukast verulega eftir synjun forseta Íslands á staðfestingu laga um ríkisábyrgð á Icesave. Meðal annars skrifar Ruth Sunderland grein í The Observer, sem birtist einnig á vef Guardians, með yfirskriftinni: „Íslendingar verðskulda samúð.“ 10.1.2010 09:50
Skíðasvæði opin í Tindastól, Siglufirði og Dalvík Skíðasvæðið í Tindastól í Skagafirði er opið í dag og verður til klukkan fjögur. Þar er sunnan gola og 3 stiga hiti og veður með besta móti að sögn starfsmanna. 10.1.2010 09:33
Hálka á Norðaustur- og Austurlandi - aðrir vegir greiðfærir Á Suðurlandi, Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðurlandi eru helstu vegir greiðfærir. 10.1.2010 09:23
Sérsveitin handtók mann með platbyssu Sérsveit ríkislögreglustjórans var kölluð út í nótt eftir að lögreglan á Akranesi fékk tilkynningu um vopnaðan mann á skemmtistað á Akranesi. Viðbúnaður var mikill að sögn lögreglu. 10.1.2010 09:17
Upplýsingar um brjóstahaldara átak gegn brjóstakrabbameini Það hefur vakið athygli undanfarið að konur skrifi liti eins og rauður eða svartur, í svokallaða „statusa“ á samskiptavefnum Facebook. Margir hafa klórað sér í kollinum vegna uppátækisins, aðallega karlmenn þó, því litirnir sem konurnar skrifa tákna lit brjóstahaldarans sem þær eru klæddar í. Nú hefur komið í ljós að uppátækið er runnið undan rifjum grasrótahóps sem vill vekja athygli á brjóstakrabbameini. 10.1.2010 00:00
Furðulegir snjóboltar birtust á akri í Bretlandi Veturinn í Bretlandi hefur verið óvanalega harður í ár en honum fylgja líka skemmtilegar, jafnvel sérkennilega stundir. 9.1.2010 23:00
The One og Out Of Sight komust áfram Birgir Jóhann Birgisson sem samdi lagið The One auk Matthíasar Stefánssonar, sem samdi lagið Out Of Sight, komust áfram í Söngvakeppni Ríkisútvarpsins í kvöld. 9.1.2010 20:57