Fleiri fréttir

Og djöfullinn sagði ókei

Samkvæmt sögubókum unnu innfæddir Haiti búar sigur á frönskum nýlenduherrum sínum árið 1804 og lýstu yfir sjálfstæði.

Íslenskur sendifulltrúi til Haítí í dag

Hlín Baldvinsdóttir, með reyndustu sendifulltrúum Rauða kross Íslands, heldur til Haítí í dag. Hún mun gegna stöðu fjármálastjóra í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins sem meta mun þörf á aðstoð næstu vikna og mánaða að því er fram kemur í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands. Hlín hefur unnið að fjölmörgum verkefnum fyrir Rauða kross Íslands og Alþjóða Rauða krossinn frá árinu 1998, jafnt í þróunarstarfi sem neyðaraðgerðum í kjölfar hamfara.

Síminn tekur ekki gjald af símasöfnun fyrir Haítí

„Málið er að það urðu leiðindamistök,“ segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, en þeir sem hafa hringt í styrktarsíma Rauða Krossins í þeim tilgangi að styrkja björgunarstarf í Haítí, hafa orðið varir við að Síminn tilkynnir viðkomandi að 79 krónu gjald renni til símans.

Ármann býður sig fram gegn Gunnari

Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem haldið verður 20. febrúar. Áður hefur Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, lýst yfir framboði í leiðtogasætið.

Fögnuðu Ólafi og Dorrit með 21 fallbyssuskoti

Forseti Indlands, Pratibha Patil, og Manmohan Singh forsætisráðherra, tóku á móti forsetahjónunum Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff í Delí við hina sögufrægu forsetahöll Rastrapati Bhavan í gær. Við upphaf hátíðarmóttökunnar var hleypt af 21 fallbyssuskoti en síðan voru leiknir þjóðsöngvar landanna. Þá kannaði forseti Íslands heiðursvörð. Að lokinni athöfninni héldu forsetahjón að leiði Mahatma Gandhi og lögðu þar blómsveig frá íslensku þjóðinni.

Rústabjörgunarsveitin fær litla hvíld

Íslenska björgunarsveitin sem send var til Haítí fær litla hvíld en björgunarstarf hefst innan skamms. Liðsmenn sveitarinnar gátu lagst til hvílu á milli klukkan sex og sjö í morgun en til stóð að þeir myndu hefja undirbúning fyrir björgunarstörf klukkan rúmlega 10. Þetta segir Dagbjartur Brynjarsson, einn af stjórnendum sveitarinnar, sem staddur er í höfuðstöðvum Slysavarnafélagsins Landsbjargar hér á landi. Mikilvægt sé að nýta dagsbirtuna vel en fimm klukkustunda tímamismunur er á milli Haítí og Íslands.

Guðmundur Rúnar vill fyrsta sætið í Hafnarfirði

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarfulltrúi, gefur kost á sér í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Guðmundur Rúnar hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2002 og er formaður fjölskylduráðs og bæjarráðs.

Fljúgandi furðuhlutur framhjá jörðinni

Það voru tveir ítalskir vísindamenn við Remanzacco stjörnurannsóknarstöðina á Ítalíu sem fyrstir komu auga á þennan furðuhlut og tóku af honum myndir.

Alvöru hraðasekt

Svissneskur auðkýfingur hefur verið dæmdur í fjörutíu milljóna króna sekt fyrir að aka Ferrari Testarossa bíl sínum á yfir eitthundrað kílómetra í gegnum smábæ í Alpalandinu.

Vatnsleki í Vesturbæjarskóla - skólahaldi aflýst

Allri kennslu hefur verið aflýst í Vesturbæjarskóla í dag þar sem kalt vatn flæddi um ganga skólans í nótt. Lekinn uppgötvaðist um klukkan átta og hefur slökkviliðið unnið að dælingu síðan þá. Vatnið fór um stærsta hluta fyrstu hæðar skólans og er töluvert tjón í matsal skólans. Þá er skólinn vatnslaus enn sem komið er. Foreldrar eru því beðnir um að sækja börnin sín í skólann. Síðar í dag verður tilkynnt um hvort skólahald geti farið fram á morgun með eðlilegum hætti.

Íslenska björgunarsveitin hefst handa

Íslenska björgunarsveitin, sem send var til Haíti, er nú búin að koma sér upp búðum við alþjóðaflugvöllinn, eftir að hafa kannað ýmsa staði til þess inni í borginni.

Þjóðarskútan er farin í slipp

Safnbaukurinn þjóðarskútan sem Víkur­vagnar smíðuðu fyrir og gáfu Mæðrastyrksnefnd er komin í slipp hjá Víkurvögnum, að sögn Jóhannesar Valgeirs Reynissonar, starfsmanns Víkurvagna.

Löngu tímabært að breyta stjórnarskrá

Ekki er lengur ásættanlegt að vald til þess að skjóta lögum sem samþykkt hafa verið á Alþingi til þjóðaratkvæðagreiðslu liggi á herðum eins manns, þótt þjóðkjörinn sé, sagði Björg Thorarensen, forseti lagad

Íslendingarnir komu til Haítí í gærkvöldi

Þrjátíu og fimm björgunarsveitamenn flugu frá Íslandi í gærmorgun og voru lentir á Haítí innan við sólarhring eftir stóra skjálftann á þriðjudagskvöld. Íslenska björgunarsveitin var með þeim fyrstu á vettvang hamfaranna miklu.

Starfsemi bönnuð í Bretlandi

Breska stjórnin hefur bannað starfsemi samtakanna Islam4UK í Bretlandi, eftir að leiðtogi þeirra, Anjem Choudary, hótaði því að efna til fjölmennra mótmæla í litlu bæjarfélagi, Wootton Brasset, þar sem hefð er fyrir því að minnast fallinna breskra hermanna úr stríðinu í Írak.

Sænskur maður eftirlýstur

Lögreglan í Póllandi hefur lýst eftir sænskum manni, Andreas Högström, sem sagður er vera höfuðpaurinn í ráni á skiltinu alræmda sem stóð yfir hliði útrýmingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi.

Erum enn meðal ríkustu þjóða

„Við erum enn meðal ríkustu þjóða í heimi,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.

Löng leið að eilífu sumri

Lengi hafa menn horft til kríunnar með aðdáun fyrir þolgæði og hversu hatrammlega hún ver hreiður sitt og unga. Skiptir þá engu hvort á í hlut maður eða skepna. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að það sem við töldum okkur vita um hana virðist stórlega vanmetið.

Kuldinn í Evrópu hækkar bensínverð

Lítraverð á 95 oktana bensíni fór yfir 200 krónur með fullri þjónustu á stærri bensínstöðvum í fyrrakvöld þegar olíufélög hækkuðu verðið almennt um þrjár krónur. Hefur verðið aldrei áður verið eins hátt hérlendis.

Beðið eftir efnahagsbata

Þýska hagkerfið dróst saman um fimm prósent í fyrra, samkvæmt tölum hagstofunnar þar í landi sem birtar voru í gær. Samdráttur sem þessi hefur ekki sést í Þýskalandi síðan í seinni heimsstyrjöldinni á síðustu öld.

Bolungarvík að ná vopnum sínum á ný

Útsvarstekjur Bolungarvíkurkaupstaðar voru tæplega fjörutíu prósentum hærri árið 2009 en árið á undan. Þetta er stórt skref í viðsnúningi í fjármálum sveitarfélagsins, segir Elías Jónatansson bæjarstjóri. Á móti kemur að framlög Jöfnunarsjóðs lækkuðu um mikið á sama tíma og því nauðsynlegt að fara jafnframt í hagræðingu og sparnaðaraðgerðir.

Lánveitingar með veði í eigin hlutabréfum verða bannaðar

Fjármálafyrirtæki er óheimilt að veita lán sem eru tryggð með veði í hlutabréfum eða stofnfjárbréfum útgefnum af fyrirtækinu, samkvæmt frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki. Þá er fjármálafyrirtæki óheimilt að veita lán til stjórnarmanns, lykilstjórnanda eða þess sem á virkan eignarhlut í viðkomandi fyrirtæki nema með þröngum skilyrðum.

Kann að seinka áætlun AGS

Svo gæti farið að önnur endurskoðun á efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tefðist. Áformað var að hún færi fram síðar í þessum mánuði en að sögn Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, er alls óvíst að svo verði. Stjórnvöld vinni að því hörðum höndum að endurskoðunin fari fram á tilsettum tíma.

Nýting til 100 til 300 ára

Við mat á sjálfbærri nýtingu jarðhitasvæða er gengið út frá nýtingu til 100 til 300 ára.

Bílalánin fjötra fólk sem flytur úr landi

Fólk sem flyst úr landi getur ekki tekið bílinn með sér hvíli á honum lán. Talsmaður neytenda talar um átthagafjötra. Viðkomandi þurfa annaðhvort að rifta samningi, með tilheyrandi afföllum, eða borga af bíl hérlendis sem þau geta ekki notað.

Bíður milli vonar og ótta eftir fréttum

Elda Þórisson Faurelien talaði í síma við frænda sinn í Port-au-Prince klukkustund áður en jarðskjálftinn reið yfir í fyrrakvöld. Síðan hefur hún ekki heyrt af afdrifum hans, annars skyldfólks – þar á meðal bróður og fjölskyldu hans – né vina í borginni. Sama á við um starfsfólk og nemendur barnaskóla sem Elda stofnaði ásamt fleirum fyrir nokkrum árum. Látlausar tilraunir hennar í gær til að fá fréttir af sínu fólki báru ekki árangur.

Grikkland fast í skuldafeni

Fimm manna sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, kom til Grikklands í gær og mun dvelja þar í viku við að stýra landinu út úr efnahagskreppu.

„Þar sem einu sinni var fínt hótel…“

„Hann lét strax vita. Áður en við vissum af skjálftanum hringdi hann í konuna sína í Bandaríkjunum,“ sagði Alfa Ragnarsdóttir, móðir Halldórs Elíasar Guðmundssonar, sem var á Haítí þegar stóri skjálftinn reið yfir.

Össur gríðarlega stoltur af íslensku björgunarsveitamönnunum

„Ég er gríðarlega stoltur af því hversu vel þessi skipulagning hefur gengið, sem sýnir hvað vel þeir eru undirbúnir - og líka þessi göfuglynda fórnfýsi af þeim að rífa sig út í þessa óvissu,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um íslensku björgunarsveitina sem er komin til Haíti.

Tveir handteknir vegna hnífsstungu við Þórðarsveig

Tveir voru handteknir vegna hnífsstungu við Þórðarsveig í Grafarholti í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hlaut maðurinn, sem var stunginn, sár á hendi. Hann var sendur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Mennirnir sem handteknir voru eru núna í haldi lögreglunnar og verða yfirheyrðir.

Stunginn í Þórðarsveig

Karlmaður var stunginn í Þórðarsveig síðdegis í dag. Lögreglan hefur enn sem komið er ekki geta gefið nákvæmar lýsingar af atburðinum. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta blæddi hins vegar töluvert úr manninum, en ekki er vitað hversu alvarlega hann særðist.

Íslenska björgunarsveitin farin frá Boston

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin fór frá Boston um klukkan fimm í dag en þar var lent til að taka eldsneyti áður en haldið er til Haiti. Lending er áætluð þar um klukkan níu að íslenskum tíma, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Vill virkja fyrir rafmagnsbílaverksmiðju

Fimm virkjanir í þremur stórfljótum Suðausturlands eru í undirbúningi. Ráðamenn Skaftárhrepps taka vel í áformin og vonast til að orkuverin leiði til þess að iðnaður festi rætur í sveitinni. Sveitarstjórinn vill helst rafmagnsbílaverksmiðju.

Gunnar: Kúlulánadrotting Steingríms

Forstjóri Bankasýslu ríkisins er kúlulánadrotting Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, að mati Gunnars Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi. Hann segir siðaumvandanir vinstrimanna alltaf eiga við alla aðra en þá sjálfa.

Túlkur íslensku sveitarinnar missti húsið

Haítíbúinn sem kemur til með að aðstoða og túlka fyrir íslensku rústabjörgunarsveitina sem er á leið til Haítí missti húsið sitt í jarðskjálftanum í gærkvöldi. Hann komst ásamt eiginkonu sinni og mánaðargömlu barni út úr húsinu en missti flestar aðrar eigur sínar. Þetta hefur Pétur Guðjónsson eftir honum en Pétur hefur dvalið langdvölum í landinu undanfarin 15 ár við hjálpar- og uppbyggingarstarf. Hann hefur í morgun ítrekað reynt að ná sambandi við íbúa sem hann þekkir á eyjunni og er túlkurinn sá eini sem Pétur hefur náð í.

Fangar flýja á Haíti

Stærsta fangelsið í Port-au-Prince, höfuðborg Haíti, er hrunið eftir jarðskjálftann í gær og sumir fangar hafa flúið, að því er Sameinuðu þjóðirnar upplýsa. Ekki er vitað hversu margir fangar hafa flúið og hversu margir hafa farist í rústum fangelsisins.

LÍÚ samþykkti að sigla flotanum í land

Útvegsmenn hafa samþykkt að fiskiskipaflotanum verði siglt í land og hann bundinn við bryggju láti ríkisstjórnin ekki af áformum um fyrningu kvótans. Stjórnvöld hafa verið látin vita af þessum áformum.

Óttast að 100 þúsund hafi farist

Fjöldi látinna eftir jarðskjálftann í Haíti í gær gæti verið yfir 100 þúsund , að mati Jean-Max Bellerive, fyrrverandi forsætisráðherra.

Rústabjörgunarsveitin í Boston

Flugvél með íslenska alþjóðabjörgunarsveitina sem er á leið til Haítí millilenti í Bandaríkjunum á fimmta tímanum í dag til að taka eldsneyti. Áætlanir gera ráð fyrir að hún fari í loftið á nýjan leik skömmu eftir klukkan fimm.

Fréttalesari BBC tekin á teppið fyrir að verja málstað Íslendinga

Sally Magnusson, fréttalesari hjá BBC Scotland var á dögunum tekin á teppið af yfirboðurum sínum fyrir að brjóta reglur breska ríkisútvarpsins. Sally, sem er dóttir sjónvarpsmannsins víðfræga Magnúsar Magnússonar og þarafleiðandi hálf-íslensk, sendi inn lesendabréf til bresks dagblaðs þar sem hún gagnrýndi bresk yfirvöld fyrir óbilgirni í Icesave deilunni og spurði hvers vegna vextir á láninu væru ekki lægri en það sem samið var um, eða 5,5 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir