Telur óeðlilega staðið að könnun í Kópavogi 15. janúar 2010 04:00 Ármann Kr. Ólafsson Forseti bæjarstjórnar í Kópavogi og fyrrverandi alþingismaður vill verða bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna. Ármann vill samvinnu og gagnsæi í bæjarstjórn. FRéttablaðið/GVA
Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi, býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí. Þar með fær Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri, keppinaut um leiðtogasætið á framboðslistanum. Eins og fram hefur komið telur Gunnar, sem lét af starfi bæjarstjóra í fyrrasumar og steig stuttu síðar einnig til hliðar sem bæjarfulltrúi, sig eiga góða möguleika í prófkjörinu. Vitnaði Gunnar þar í könnun sem Capacent gerði fyrir Sjálfstæðisfélagið í Kópavogi og sýnir 57 prósenta fylgi við hann meðal sjálfstæðismanna sem næsta bæjarstjóra. Gunnar segist fagna framboði Ármanns. „Þetta er einfaldlega lýðræðið,“ bendir Gunnar á. Hann metur möguleika sína enn góða þrátt fyrir framboð Ármanns og vísar þá sem fyrr í könnunina frá í desember. Þar hafi fylgi Ármanns sem bæjarstjóraefnis aðeins mælst sex prósent. „Þessi könnun hefur engin áhrif á mig og í raun tek ég ekkert mark á henni þar sem hún var gerð í byrjun desember,“ svarar Ármann spurður um fylgi sitt í könnuninni. Í desemberbyrjun hafi ekkert bent til þess að hann sæktist eftir forystusætinu. Hið pólitíska landslag hafi breyst mikið síðan og hann eigi raunhæfan möguleika á að ná markmiði sínu. „Þar fyrir utan finnst mér óeðlilegt að flokkurinn skyldi standa fyrir könnun um fylgi einstakra bæjarfulltrúa án þess að bæjarstjóri og oddviti flokksins í bæjarstjórn vissi af henni og ekki heldur aðrir bæjarfulltrúar. Þá er ég líka hugsi yfir því af hverju okkur var ekki sýnd könnunin í heild sinni heldur fengum aðeins að sjá útdrátt úr henni mánuði eftir að hún var gerð,“ segir Ármann. Í tilkynningu frá Ármanni segir að breyta þurfi vinnubrögðum í bæjarstjórn Kópavogs. Hann muni leggja áherslu á aukna samvinnu allra flokka. „Ég mun einnig beita mér fyrir skýrari reglum um opna og gagnsæja stjórnsýslu,“ segir í tilkynningunni. „Mikilvægt er að sjálfstæðismenn setji saman sigurstranglegan lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor skipaðan einstaklingum sem hafa til að bera reynslu og ríka samstarfshæfileika, en að jafnframt fari fram nauðsynleg endurnýjun.“ Ármann hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi í þrjú kjörtímabil. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira