Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rafmagnsmál leikskóla víða í ólestri Raflögnum og rafbúnaði í leikskólum er víða ábótavant samkvæmt úttekt Brunamálastofnunar. Örn Sölvi Halldórsson, sérfræðingur á rafmagnsöryggissviði stofnunarinnar, segir alvarlegustu athugasemdirnar snúa að merkingum í rafmagnstöflum og biluðum tenglum á svæðum þar sem börn eru. 25.11.2009 05:30
Frestur til að höfða riftunarmál lengdur Slitastjórnir gömlu bankanna fá lengri frest en áður til að höfða mál til að fá óeðlilegum fjármálagjörningum rift, samkvæmt frumvarpi sem Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti í ríkisstjórn í gærmorgun. Slitastjórnirnar höfðu lýst áhyggjum af of skömmum fresti í bréfi til tveggja ráðuneyta. „Okkar mat var að það væri alveg rétt,“ segir Gylfi. 25.11.2009 05:00
Vilja göng til Dýrafjarðar Sama dag og lokasprengjan í Óshlíðargöngum verður sprengd er efnt til baráttufundar um önnur göng, Dýrafjarðargöngin. Fundurinn fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í hádeginu á laugardaginn. 25.11.2009 04:45
Haldið sofandi í öndunarvél Manninum sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað við Flúðir um síðustu helgi er enn haldið sofandi í öndunarvél, samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. 25.11.2009 04:30
Alnæmisfaraldur leggur færri að velli Undanfarin tvö ár hefur fjöldi HIV-smitaðra í heiminum staðið nokkurn veginn í stað, í rúmum 33 milljónum. Dauðsföllum af völdum alnæmisveirunnar hefur fækkað um tíu prósent undanfarin fimm ár. 25.11.2009 04:15
Engar tilraunir gerðar „Það er góð regla að gera ekki tilraunir á viðskiptavinum,“ segir Tómas Tómasson, stundum kenndur við Tommaborgara. Tommi hefur í fjögur og hálft ár rekið Hamborgarabúlluna og stefnir á að opna fjórða staðinn við Ofanleiti 14 í vikunni. 25.11.2009 04:00
Tóku kannabis fyrir 4,5 milljónir Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tók í fyrrakvöld marijúana, tilbúið til sölu, að andvirði um 4,5 milljónir króna í götusölu. 25.11.2009 03:45
Glókollur hefur numið land Glókollur, sem er minnsti fugl Evrópu og kallaður fuglakóngur í Skandinavíu, er einn af nýlegum landnemum á Íslandi. 25.11.2009 03:30
Vill frekari rök fyrir fækkun kennslustunda Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur beðið sveitarfélögin að rökstyðja nánar hugmyndir um að fækka lögbundnum kennslustundum í grunnskólum um þrjár til fjórar á viku. 25.11.2009 03:15
Beiðnin samþykkt vestra Dómstóll í Delaware í Bandaríkjunum féllst í gær á gjaldþrotabeiðni Decode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE). Beiðnin var send fyrir viku. 25.11.2009 03:00
Gegn ólöglegum fiskveiðum Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði alþjóðasamning um aðgerðir hafríkja gegn ólöglegum fiskveiðum í Róm. Jón var þar staddur á aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. 25.11.2009 02:30
Árni hefði ekki gert slíka kröfu Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra var ekki kunnugt um að ráðgjafi hans, Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur, hygðist gera kröfu upp á 230 milljónir í bú Landsbankans. 25.11.2009 02:00
Walesa í mál við Kaczinsky Lech Walesa, fyrrverandi forseti Póllands, er kominn í mál við Lech Kaczynski, núverandi forseta. Walesa krefst afsökunarbeiðni frá Kaczynski eða skaðabóta ella. 25.11.2009 02:00
Skiptum ekki um stefnu eftir fréttum Samkomulag ríkis og borgar um samgöngumiðstöð er í fullu gildi og öll umræða síðustu daga um hugsanlegar breytingar á því er að frumkvæði samgönguráðuneytis. 25.11.2009 01:45
Gefur fólki virkilega mikið að knúsa dýr „Það getur gefið fólki virkilega mikið að fá að knúsa dýr," segir Jóhanna Ósk Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur um þá nýbreytni sem hófst á líknardeild Landspítalans í gær að fá sérstakan hund í heimsókn á deildinni. 25.11.2009 01:30
Afstaða borgarinnar er skýr „Ég get lítið annað sagt um þetta mál en að fyrir liggur skýr afstaða borgaryfirvalda um að alhliða samgöngumiðstöð rísi við Hlíðarfótinn. Það kemur fram í minnisblaði sem Reykjavíkurborg og ríkisvaldið undirrituðu í apríl,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri um hugmyndir um að reist verði ný flugstöð í stað samgöngumiðstöðvar. 25.11.2009 01:00
Veittu 12.600 milljarða leynilán Seðlabanki Englands veitti tveimur bönkum 62 milljarða punda leynilegt lán þegar bankakreppan skall á haustið 2008. Þetta kom fram í máli Mervins King seðlabankastjóra sem í gær sat fyrir svörum breskrar þingnefndar. 25.11.2009 01:00
Tveir yfirmenn voru líflátnir Tveir menn voru líflátnir í Kína í gær vegna framleiðslu og sölu á eitruðu mjólkurdufti, sem kostaði að minnsta kosti sex börn lífið síðastliðið vor. Talið er að meira en 300 þúsund manns hafi veikst eftir að hafa neytt mjólkurduftsins. Í duftinu var efni sem getur valdið nýrnabilun og nýrnasteinum. Efninu var bætt út í til þess að leyna því að mjólkin hafði verið útþynnt með vatni. 25.11.2009 00:30
Sýknaður af morðákæru Tæplega sextugur Breti, Brian Thomas að nafni, var fyrir helgi sýknaður af morðákæru vegna dauða eiginkonu hans, þrátt fyrir að hafa orðið henni að bana í júlí 2008. 25.11.2009 00:15
Samfylkingin býður fram á Seltjarnarnesi Á aðalfundi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi, sem haldinn var mánudagskvöldið 23. nóvember, var samþykkt að flokkurinn bjóði fram í eigin nafni á Seltjarnarnesi í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 29. maí 2010. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 24.11.2009 20:10
Ráðherra hafnar því að veggjöld að sunnan fari norður Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að sú hugmynd að láta veggjöld af Suðurlandi niðurgreiða Vaðlaheiðargöng hafi ekki verið rædd við sig og komi ekki til greina. 24.11.2009 19:03
Aldraður ökumaður fundinn Bifreiðin ZFZ 36 sem lögreglan leitaði í dag er komin fram ásamt ökumanni hennar og ekkert amaði að honum. Bílnum ók 86 ára gamall maður sem ætlaði upp á Kjalarnes úr miðbænum klukkan hálftíu í morgun. 24.11.2009 17:36
Húsleitin snýr ekki að bankanum eða starfsmönnum Samkvæmt upplýsingum MP banka snýr húsleit embættis sérstaks saksóknara í bankanum í dag að ákveðnum viðskiptavinum bankans en ekki að bankanum sjálfum eða starfsmönnum hans. Bankinn hefur veitt allar umbeðnar upplýsingar og mun aðstoða embætti sérstaks saksóknara eftir föngum, að fram kemur í tilkynningu frá bankanum. 24.11.2009 17:01
Tugir manna yfirheyrðir í máli Baldurs Um tugur manna hefur verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara í máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, þar sem gagnrýni Karls Axelssonar, lögmanns Baldurs, er vísað á bug. 24.11.2009 15:53
Borgarís stefnir á Nýja Sjáland Hundruð risastórra borgarískaja frá Suðurskautinu stefna nú hraðbyri að Nýja Sjálandi. 24.11.2009 15:40
Lögregla lýsir eftir bíl og ökumanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bifreiðinni ZFZ-36 sem er Volkswagen Golf ljósgrár. Bílnum ekur 86 ára gamall maður sem ætlaði upp á Kjalarnes úr miðbænum klukkan hálftíu í morgun, en ekkert hefur spurst um hann síðan þá. 24.11.2009 15:23
Loksins fann hann pabba Matthew Roberts eyddi mörgum árum í að hafa upp á blóðföður sínum en hann var ættleiddur árið 1968. Roberts er nú fjörutíu og eins árs gamall og starfar sem plötusnúður í Los Angeles. 24.11.2009 15:19
Við skulum geyma tengdó yfir jólin Holiday Inn hótelkeðjan í Bretlandi býður fjölskyldum sérstakan afslátt fyrir tengdamæður yfir jól og áramót, til þess að fjölskyldumeðlimir geti fengið smá frí hver frá öðrum. 24.11.2009 14:53
Langamma setur met í heróínsmygli Sjötíu og tveggja ára gömul þýsk kona hefur verið ákærð fyrir að reyna að smygla ellefu kílóum af heróíni til Noregs. 24.11.2009 14:30
Árni Páll vissi ekki af 230 milljóna króna kröfu Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, vissi ekki að Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum sem nú starfar hjá félagsmálaráðuneytinu, myndi gera 230 milljóna króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Sjálfur sagðist hann í umræðum á Alþingi í dag mundi ekki hafa gert samskonar kröfu í sporum Yngva. 24.11.2009 14:28
Ummæli Jóhönnu mistúlkuð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á Alþingi í dag að ekki væri nein ástæða til að hafa áhyggjur af ummæli forsætisráðherra um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Orð hennar hafi verið mistúlkuð. 24.11.2009 13:55
25 vilja stýra menntamálaráðuneytinu Mennta- og menningarmálaráðuneytinu bárust 25 umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra í ráðuneytinu, en umsóknarfrestur rann út 20. nóvember. Þrettán konur og tólf karlar sótt um stöðuna. Baldur Guðlaugsson lét af embætti ráðuneytisstjóra 23. október. 24.11.2009 13:45
Sektaður fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára gamalli stúlku. Maðurinn var 19 ára þegar fyrstu brotin áttu sér stað. Hann hafði samræði við stúlkuna sex sinnum á árunum 1994 og 1995. 24.11.2009 13:14
Svandís hefur engar skýringar fengið frá Jóhönnu Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur ekki fengið skýringar frá forsætisráðherra á ummælum hennar um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Umhverfisráðherra á erfitt með að tjá sig um málið þar sem hún gæti átt eftir að úrskurða í því. 24.11.2009 13:00
Hentu Molotov kokteil í upplýsingaskilti fyrir ferðamenn Kveikt var í upplýsingaskilti fyrir ferðamenn við útsýnispallinn í hlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum síðastliðið sunnudagskvöld. Við rannsókn lögreglu bárust böndin fljótlega að þremur mönnum um tvítugt sem höfðu keypt bensín fyrr um kvöldið á bensínstöð í bæjarfélaginu. 24.11.2009 12:47
Rafbúnaði í leikskólum víða ábótavant Raflögnum og rafbúnaði í leikskólum er víða ábótavant samkvæmt úttekt sem Brunamálastofnun framkvæmdi á annað hundrað leikskólum. 24.11.2009 12:38
Nýjum aðilum veittur forkaupsréttur á 1998 Verið er að selja nýjum aðilum 1998 móðurfélag Haga og þeim veittur forkaupsréttur segir lögmaður Þjóðarhags. Hann segist hafa áhyggjur af því að bankarnir fari á hliðina á ný með svona vinnubrögðum. 24.11.2009 12:13
Svandís á erfitt með að tjá sig um Suðvesturlínu vegna stöðu sinnar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ekki fengið skýringar frá forsætisráðherra á ummælum hennar um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Umhverfisráðherra á erfitt með að tjá sig um málið þar sem hún gæti átt eftir að úrskurða í því. 24.11.2009 12:05
Björn: Jólagróðinn notaður til að borga Arion Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir eðlilegt að athygli fólks beinist að því hvort að Arion banki, áður Kaupþing, ætli að endurreisa Baugsveldið með samningum við 1998, móðurfélag Haga. Hann segir fyrirtækið geta nýtt fé úr jólavertíðinni í fjárhagslegri endurskipulagningu sinni. 24.11.2009 11:52
Fundu kíló af marijúana í gær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald rúmt kíló af marijúna í gær. Við húsleit í íbúð í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið fundust 700 grömm af marijúana og 20 kannabisplöntur. Af ummerkjum mátti ráða að nýbúið var að klippa ræktunina niður en megnið af fíkniefnunum voru í þurrkun. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. 24.11.2009 11:27
Passið ykkur á Obama Óteljandi vopnaðir lögreglumenn og öryggisverðir munu gæta Baracks Obama forseta Bandaríkjanna þegar hann kemur til Oslóar í desember til þess að taka við friðarverðlaunum Nóbels. 24.11.2009 11:22
Niðurskurður meirihlutans mun reynast kostnaðarsamur til framtíðar Engin merki eru um að aðrir geti náð hagræðingu sem borgin getur ekki án þess að það komi einhvers staðar niður. Þetta kemur fram í bókun Drífu Snædal, fulltrúa VG í velferðarráði Reykjavíkurborgar, um fjárhagsáætlun fyrir velferðarsvið. Hún telur að niðurskurður meirihlutans muni reynast kostnaðarsamur til framtíðar. 24.11.2009 11:20
Sjö óku undir áhrifum fíkniefna Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17 til 22 ára og tvær konur, 19 og 22 ára. Fjórir þessara ökumanna voru stöðvaðir í Hafnarfirði, tveir í Reykjavík og einn í Kópavogi. 24.11.2009 10:54
Umræðu um Icesave framhaldið Annarri umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans verður framhaldið á Alþingi í dag. Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á lögum og fyrirvörum sem samþykkt voru í sumar. 24.11.2009 10:30
Þrjúhundruð þúsund dýrum slátrað á trúarhátíð Dýravinir og samtök hafa fordæmt fórnarhátíð í Nepal þar sem yfir 300 þúsund dýrum verður slátrað til dýrðar gyðjunni Gadhimai. 24.11.2009 10:05