Rafmagnsmál leikskóla víða í ólestri 25. nóvember 2009 05:30 Í leikskólanum Fram kemur í nýrri skýrslu að Brunamálastofnun hafi víða gert alvarlegar athugasemdir við raflagnir og rafbúnað í leikskólum landsins. Myndin tengist efni greinarinnar ekki að öðru leyti en því að hún er tekin í leikskóla.Fréttablaðið/Pjetur
Raflögnum og rafbúnaði í leikskólum er víða ábótavant samkvæmt úttekt Brunamálastofnunar. Örn Sölvi Halldórsson, sérfræðingur á rafmagnsöryggissviði stofnunarinnar, segir alvarlegustu athugasemdirnar snúa að merkingum í rafmagnstöflum og biluðum tenglum á svæðum þar sem börn eru. „Við reynum að fylgja eftir athugasemdum sem falla í þriðja flokk, en þær snúa að hlutum sem beinlínis geta verið lífshættulegir og á að vera búið að laga innan mánaðar," segir Örn Sölvi. Fram kemur í úttekt stofnunarinnar að 78 þriðja flokks athugasemdir hafi verið gerðar við rafmagnstöflur, en flestar snúa þær að mögulegri eldhættu. Þá var 41 slík athugasemd gerð við raflagnir og rafbúnað, en þar segir Örn oft um mögulega „snertihættu" að ræða, svo sem þar sem tenglar eru brotnir eða hlífar ekki í lagi. Úttekt Brunamálastofnunar nær til 156 leikskóla síðustu þrjú ár, en gerð var 1.131 athugasemd við frágang rafmagnstaflna og 687 við raflagnir og búnað. Örn Sölvi segir lagt mjög fast að þeim sem fái skýrsluna í hendur að laga þá hluti sem aflaga hafi farið og víða hafi þegar verið gerðar lagfæringar. „Stór hluti þessara athugasemda er reyndar frá því í vetur og vor." Gamall og bilaður rafbúnaður og aðgæsluleysi fólks er sagt vera meðal helstu orsaka rafmagnsbruna og því er mikilvægt að rafbúnaður á leikskólum sé ávallt valinn með tilliti til staðsetningar og notkunar. Rafbúnaður á borð við tengla og lampa var víða í ólagi, en það er í skýrslunni sagt áhyggjuefni vegna þess hve marga bruna megi einmitt rekja til þeirra hluta. Skýrslunni verður dreift til allra leikskóla og til löggiltra rafverktaka. Gerir Örn Sölvi sér von um að hún veki þar með þá athygli sem þurfi til að koma málum tengdum rafmagnsöryggi á leikskólum í lag. olikr@frettabladid.s
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Sjá meira