Ráðherra hafnar því að veggjöld að sunnan fari norður 24. nóvember 2009 19:03 Kristján L. Möller, samgönguráðherra.
Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að sú hugmynd að láta veggjöld af Suðurlandi niðurgreiða Vaðlaheiðargöng hafi ekki verið rædd við sig og komi ekki til greina.Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að í viðræðum stjórnvalda og lífeyrissjóða, um fjármögnun framkvæmda, hefði verið ræddur sá möguleiki að veggjöld af stofnæðum út frá Reykjavík verði notuð til að niðurgreiða Vaðlaheiðargöng. Annars kynni einkaframkvæmd fyrir norðan að vera úr sögunni.Hugmyndin að grafa 7,6 kílómetra löng göng undir Vaðlaheiði til að stytta leiðina um 15,5 kílómetra, og greiða með veggjöldum, virðist tæplega ganga upp fjárhagslega. Upphafleg hugmynd gerði ráð fyrir að veggjöld stæðu undir helmingi kostnaðar og ríkið kæmi svo með helmings mótframlag. Ekki eru horfur á að ríkissjóður verði aflögufær með slíkt á næstu árum og því þurfa veggjöld að standa alfarið undir sjö til átta milljarða króna framkvæmdakostnaði.Innan stjórnkerfisins reiknast mönnum til að meðalveggjald þyrfti þá að vera í kringum 1.200 krónur á hvern bíl. Svo hátt gjald er hins vegar talið leiða til þess að stór hluti vegfarenda muni þá fremur kjósa að aka Víkurskarðið áfram.Til að ekki þurfi að afskrifa Vaðlaheiðargöng sem einkaframkvæmd hefur, samkvæmt heimildum fréttastofu, sú hugmynd verið rædd, í viðræðunefnd stjórnvalda og lífeyrissjóða, að búinn verði til einn pottur allra nýrra veggjalda. Það myndi í raun þýða að veggjöld sem rætt er um að innheimta af stofnbrautum úr Reykjavík, - Suðurlandsvegi, Vesturlandsvegi og Reykjanesbraut, - færu að hluta í að niðurgreiða Vaðlaheiðargöng.Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að sú hugmynd, að láta veggjöld af Suðurlandi niðurgreiða Vaðlaheiðargöng, hafi ekki verið rædd við sig og komi ekki til greina.Arnar Sigurmundsson, talsmaður lífeyrissjóðanna í þessum viðræðum, segist hafa heyrt af þessari hugmynd en segir hana ekki frá stjórnvöldum komna og hún hafi ekki verið rædd.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Sjá meira