Skiptum ekki um stefnu eftir fréttum 25. nóvember 2009 01:45 Lent í borginni Fyrir síðustu kosningar voru uppi ýmsar hugmyndir um að flugvöllurinn yrði færður. Hólmsheiði og Löngusker voru nefnd sem kostir. Aðrir telja að færa ætti umferðina yfir á Keflavíkurflugvöll eða hafa flugvöllinn í miðbænum áfram.fréttablaðið/vilhlem
Samkomulag ríkis og borgar um samgöngumiðstöð er í fullu gildi og öll umræða síðustu daga um hugsanlegar breytingar á því er að frumkvæði samgönguráðuneytis. Borgin hefur á engan hátt breytt um stefnu í þeim efnum. Svo segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og oddviti Framsóknar. Hann segist ekki hafa svo mikið sem hugleitt að breyta aðalskipulagi borgarinnar í ljósi þessara nýju áherslna samgönguráðherra. „Við erum að vinna á fullu eftir þessu samkomulagi og það hefur ekki breyst. Ef ráðherra vill breyta þessu verður hann að gera það með formlegum hætti. Við skiptum ekki um stefnu bara eftir frétt á forsíðu Fréttablaðsins,“ segir Óskar. Í blaðinu hefur komið fram að samgönguráðherra og formanni skipulagsráðs líst báðum vel á að byggja litla flugstöð rétt hjá núverandi flugstöð, sem yrði rifin, í stað fyrirhugaðrar samgöngumiðstöðvar. Umferðarmiðstöðin stæði enn sem fyrr. Óskar segir ummæli Júlíusar Vífils Ingvarssonar, formanns skipulagsráðs, benda til að Júlíus taki vel á móti samgönguráðuneytinu eins og öðrum. „En mér finnst engin ástæða til að gera meira úr því en efni standa til. Þótt menn taki vel á móti fólki þýðir það ekki að það sé stefnubreyting hjá borginni.“ Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingar, hefur sagt að borgin sé í ár að eyða 450 milljónum vegna Hlíðarfótarlóðar, þar sem samgöngumiðstöð átti að vera. Um þetta segir Óskar: „Þessi ábending frá Degi um að borgin hafi lagt fé til framkvæmda við Hlíðarfót staðfestir að Reykjavíkurborg hefur verið að vinna samkvæmt þessu samkomulagi við samgönguyfirvöld. Þessi fjárfesting tengist fleiri þáttum en ég er ekki viss um að við hefðum ráðist í hana nema vegna þessa samkomulags.“ Spurður hvort slík stefnubreyting frá ráðherra væri ekki bagaleg á þessu stigi fyrir borgina endurtekur Óskar að enn hafi engin formleg beiðni borist frá Kristjáni L. Möller: „Við vinnum enn eftir minnisblaði sem við gerðum við þennan tiltekna samgönguráðherra í vor,“ segir formaður borgarráðs. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, er þeirrar skoðunar að sjálfsagt sé að skoða betur að endurbyggja núverandi flugstöð. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Sjá meira