Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útlendingastofnun ekki að standa sig Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, heldur því fram að Útlendingastofnun sé ekki að beita þeim úrræðum sem hún hefur til að sporna gegn komu útlendra glæpamanna sem koma hingað gagngert til að fremja glæpi. Hann telur að þá eigi að senda umsvifalaust úr landi. Stefán var gestur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. 5.11.2009 10:08
Milljónir skoða myndband af Madeleine Fjórar milljónir manna skoða dag hvern einnar mínútu myndband af bresku telpunni Madeleine McCann, sem sett var á netið fyrr í vikunni. 5.11.2009 09:36
Ákvörðun Seðlabankans mjög jákvæð Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vera mjög jákvæða. Stýrivextir lækka í dag um eitt prósentustig og verða 11%. 5.11.2009 09:13
Jesú-kynskiptingur vekur bræði í Glasgow Leikrit sem nú er sýnt í Glasgow og sýnir Jesú sem kynskipting hefur vakið reiðiöldu. 5.11.2009 08:43
Magn geimrusls stefnir í óefni Vísindamenn hafa töluverðar áhyggjur af auknu magni alls konar rusls í geimnum og áhrifum þess á geimferðir framtíðarinnar. 5.11.2009 07:18
Hitabeltisstormurinn Ída geisar í Nicaragua Mikil rigning er nú í Nicaragua í Mið-Ameríku vegna hitabeltisstormsins Ídu sem þar geisar. Viðvörun hefur verið gefin út vegna hættu á aurskriðum og talin er nokkur hætta á að Ída þróist yfir í fellibyl á næstu 36 klukkustundum. 5.11.2009 07:16
SÞ flytja 600 manns tímabundið frá Afganistan Sameinuðu þjóðirnar hyggjast flytja hluta af starfsmönnum sínum í Afganistan, 600 í allt, frá landinu á meðan gerðar eru ráðstafanir til að auka öryggi á dvalarstöðum þeirra. 5.11.2009 07:13
Sviðsetti mannrán í kúgunarskyni Auðug húsmóðir í Flórída hefur verið ákærð fyrir að sviðsetja mannrán með það fyrir augum að kúga fé út úr vellauðugum eiginmanni sínum. 5.11.2009 07:11
Kom of seint í eigin jarðarför Ættingjum Brasilíumannsins Ademirs Jorge Goncalves brá í brún þegar hann mætti í sína eigin jarðarför - og það sprelllifandi. 5.11.2009 07:05
Íslensk kona eftirlýst í Bandaríkjunum Lögregla í borginni Plattsburgh í New York ríki í Bandaríkjunum leitaði í nótt að Lindu Björk Magnúsdóttur, íslenskri konu sem slapp úr varðhaldi lögreglu á meðan hún beið þess að vera leidd fyrir dómara. Lögreglumenn úr borginni og frá alríkislögreglunni FBI hafa leitað að konunni sem er fjörutíu og tveggja ára gömul. 5.11.2009 06:54
Eftirför lögreglu: Rústaði bíl foreldra sinna Lögregla veitti ökumanni eftirför í Vesturbæ Reykjavíkur í um klukkan hálfþrjú í nótt. Maðurinn hafði neitað að verða við beiðni lögreglu um að stöðva bílinn og ók hann þess í stað á fullri ferð í burtu. Lögreglumenn hófu þá eftirför sem lauk stuttu seinna með því að bíllinn fór útaf og hafnaði á tveimur ljósastaurum. 5.11.2009 06:38
Langþráður sigur repúblikana Demókratar töpuðu ríkisstjórakosningum í Virginíu og New Jersey, sem haldnar voru í gær. Robert Gibbs, fréttafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði þetta tap samt ekki segja neitt um stöðu Baracks Obama, því kosningarnar hefðu snúist að mestu um innanríkismálefni. 5.11.2009 06:00
Árni síðastur til að skrá sig Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tilkynnti Alþingi á þriðjudag að hann hefði enga fjárhagslega hagsmuni sem þyrfti að skrá á vef þingsins. 5.11.2009 06:00
Nærri fjörutíu frambjóðendur til Alþingis brjóta lög Alls 37 frambjóðendur til síðustu alþingiskosninga áttu enn eftir að skila upplýsingum um kostnað við framboð sitt til Ríkisendurskoðunar í gær. 5.11.2009 06:00
Lagt til að löggæsla verði flutt frá ríkislögreglustjóra Lögregluembættum verður fækkað úr fimmtán í níu, embætti ríkislögreglustjóra verður stjórnsýslustofnun og yfirmönnum í lögreglu verður fækkað verulega, nái tillögur starfshóps dómsmálaráðuneytisins fram að ganga. Þær miða að því að ná fram hagræðingu og sparnaði hjá lögreglunni í landinu. 5.11.2009 06:00
Reynir fyrst við Jón Ásgeir Nýja Kaupþing mun reyna í þaula að semja við eigendur 1998, eignarhaldsfélags Haga, um endurskipulagningu fyrirtækisins áður en leitað verður til annarra mögulegra fjárfesta. 5.11.2009 06:00
Nær 300 prósenta verðmunur á rauðum eplum Mestur munur er á verði á ávöxtum og grænmeti í nýrri verðkönnun ASÍ. Í þeim vöruflokki er verðmunur að meðaltali um eða yfir 100 prósent. Mestur var hann á rauðum eplum sem reyndust ódýrust í Nettó á 129 krónur kílóið en dýrust í 10-11 á 499 krónur kílóið, munurinn eru 287 prósent. 5.11.2009 06:00
Hrunið skilur eftir úrgang í þjóðgarði Gróður í friðlandi þjóðgarðsins við Þingvallavatn liggur undir skemmdum á sumarhúsalóð Ágústs Guðmundssonar við Þingvallavatn. Ágúst, sem kenndur er við fyrirtækið Bakkavör og eignarhaldsfélagið Existu, keypti lítið sumarhús úr timbri á Valhallarstíg í apríl 2006. 5.11.2009 06:00
Kærði ákvörðun um framsal Karlmaður frá Srí Lanka hefur kært ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um framsal til Þýskalands til héraðsdóms. Framsalið er til fullnustu refsidóms sem maðurinn hlaut í Þýskalandi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Hann er búinn að afplána hluta refsingar. Hann hefur dvalið hér á landi í sumar, en framsalsbeiðni kom fram undir haust. 5.11.2009 05:30
Börn fá gefins endurskinsvesti Í vikunni mun öllum grunnskólabörnum í fyrsta til þriðja bekk í Reykjavík verða færð endurskinsvesti að gjöf frá borginni. Um er að ræða stærsta umferðaröryggisátak sem ráðist hefur verið í í þágu skólabarna í borginni, að því er segir í tilkynningu. 5.11.2009 05:00
Vilja bæta samskipti þjóðanna Kurt Campell, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Myanmar í gær og ræddi við hana í tvær klukkustundir á hóteli þar í landi í gær. 5.11.2009 04:45
Styrkja félag karla með krabbamein Allur ágóði af af klippingu og litun renna til Framfarar, félags karla sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli á styrktardegi hárgreiðslustofunnar 101 hárhönnun sem haldinn verður á morgun. 5.11.2009 04:45
Jákvæð í fjórtán mánuði Vöruskipti voru hagstæð um 16,4 milljarða króna í október, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. 5.11.2009 04:30
Dæmdum nauðgara sleppt Karlmanni, sem dæmdur var í sumar fyrir hrottalega nauðgun, var sleppt að gengnum dómi Hæstaréttar í gær. Hæstiréttur sneri þar með við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem úrskurðað hafði manninn í gæsluvarðhald þar til dómur í máli hans gengi í Hæstarétti, ekki þó lengur en til 22. desember. 5.11.2009 04:00
Skoða sex mál tengd hruninu „Við erum að skoða mörg mál sem varða hugsanlega ríkisaðstoð. Þar á meðal eru mál tengd peningamarkaðssjóðum bankanna,“ segir Per Sanderud, forseti stjórnar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). 5.11.2009 03:45
Frakkar kjósa í mars á næsta ári Sveitarstjórnarkosningar fara fram í Frakklandi 14. og 21 mars næstkomandi. Kosningarnar eru sagðar fyrsti prófsteinninn á stöðu UMP, flokks Nicolas Sarkozy, frá kjöri hans til forseta árið 2007. Vinstriflokkar höfðu yfirburðasigur árið 2004, með meirihluta í 20 af 22 kjördæmum. 5.11.2009 03:45
Internet og hiti í strætóskýli Strætóskýlið hjá Þjóðminjasafninu og Háskóla Íslands við Hringbraut hefur nú verið upphitað og upplýst. 5.11.2009 03:30
Forseti Alþingis fundar í Brussel Forseti Alþingis, þingmenn og starfsmenn Alþingis funduðu í gær með fulltrúum Evrópusambandsins í Brussel í Belgíu. 5.11.2009 03:00
Hefur sóað kröftum og lífi hersveita Hamid Karzai mun ekki takast að hemja spillingu í Afganistan. Ríkisstjórn hans hefur sóað kröftum og lífi hersveita bandalagsríkjanna undanfarin ár og mistekist að koma á fót stofnunum sem geta sinnt þörfum afgönsku þjóðarinnar. 5.11.2009 02:30
Tólf milljóna króna afgangur á rekstri Endurskoðuð fjárhagsáætlun Dalabyggðar gerir ráð fyrir 12,1 milljónar króna afgangi á rekstri sveitarfélagsins í ár. Um 49 milljóna króna viðsnúningur hefur orðið á rekstrinum frá því fjárhagsáætlun var samþykkt með 37 milljóna króna halla. 5.11.2009 02:30
Skattalegar ástæður „Þessi fyrirtæki eru hér af skattalegum ástæðum, þau greiða minni skatta en ef þau væru í Bretlandi,“ segir Baldvin Björn Haraldsson, hdl., sem á sæti í stjórnum DMG Lending og DMG Investments á Íslandi. Hann segir að starfsemi DMG fyrirtækjanna á Íslandi snúist um lánveitingar milli fyrirtækja innan DMG-samstæðunnar. 5.11.2009 02:15
Framkvæmd fyrir fimmtíu milljarða Fulltrúar tuttugu lífeyrissjóða skrifuðu undir viljayfirlýsingu við heilbrigðisráðuneytið, fyrir hönd ríkisvaldsins, í gær, um nýjan Landspítala. Hún felur í sér að sjóðirnir koma að fjármögnun og undirbúningi við byggingu nýs spítala. Sjóðirnir tuttugu eru með 83,22 prósent af heildareignum íslenskra lífeyrissjóða. 5.11.2009 02:00
Ráðinn til þingflokks VG Bergur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hann hóf störf um mánaðamótin. Bergur er umhverfisefnafræðingur frá Háskólanum í Osló og hefur síðastliðin þrjú ár starfað sem framkvæmdastjóri Landverndar. Þar áður starfaði hann við heilbrigðiseftirlit á Suðurnesjum. 5.11.2009 02:00
Loftslagsviðræður á síðasta snúningi Fulltrúar Afríkuríkja vilja að auðug ríki útskýri hvernig þau hugsi sér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, náist um það bindandi samkomulag á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í næsta mánuði. Óttast er að ekkert verði úr slíku samkomulagi. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær engar líkur á því að fyrir áramót næðist neitt samkomulag sem fæli í sér lagalega skuldbindingu, eins og Evrópuríki hafa barist fyrir. 5.11.2009 01:45
Hafði áður hlotið dóma Karlmaður sem dæmdur var í héraðsdómi í fyrradag í fimmtán mánaða fangelsi og til að greiða 93 milljónir króna í sekt vegna skattsvika hefur áður hlotið aðra dóma, meðal annars vegna brota á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. 5.11.2009 01:30
Úttektirnar námu á annað hundrað milljónum króna Úttektir á erlend greiðslukort hér á landi, sem nú eru til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra vegna skattsvika, nema samtals á annað hundrað milljónum króna. 5.11.2009 01:15
Tilkynnt um þrjú innbrot Þrjú innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Brotist var inn í Sjónvarpsmiðstöðina í Síðumúla um klukkan tvö um nótt, en ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið þaðan. Maður var handtekinn í kjölfarið grunaður um innbrotið. 5.11.2009 01:15
Gistinætur færri en í fyrra Gistinóttum á hótelum í september í ár fækkaði um 2 prósent miðað við sama tíma í fyrra, úr 122.500 í 120.500. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum, nema á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. 5.11.2009 01:00
Ráðist á hersveitir talibana Um 40 vígamenn talibana hafa fallið síðustu daga í hörðum bardögum við pakistanska herinn í Suður-Waziristan við landamæri Pakistans og Afganistans. Þar af féllu tíu í hörðum götubardögum í borginni Ladha, einu af þremur helstu vígjum talibana og hryðjuverkasamtakanna Al Kaída í héraðinu. 5.11.2009 00:30
Kennir Bandaríkjamönnum að soðsteikja lambaskanka Kokkurinn Sheryl Julian kennir Bandaríkjamönnum að soðsteikja lambaskanka á vefútgáfu blaðsins Boston Globe. Í greininni segist hún hafa verið hrifnari af ameríska lambinu, þá helst vegna þess að hún vilji styðja innlenda framleiðslu. Hún bregður þó út af vananum og eldar íslenska lambið í þetta skiptið. 4.11.2009 20:48
Sportbát og tveimur vélhjólum stolið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að sportbáti sem var stolið í sumar. Báturinn er af gerðinni Quick Silver en hann var tekinn úr Reykjadal við Reykjaflöt. Þá leitar lögreglan einnig að auðþekkjanlegu mótorhjóli. Það er rautt á litinn og er af gerðinni American Ironhors Texas Chopper, skráningarnúmer VH983. Því var stolið úr Rósarima í Reykjavík í sumar. 4.11.2009 19:46
Dæmdur nauðgari laus vegna dráttar á upplýsingum Hæstiréttur hefur úrskurðað að Eugenio Daudo Silva Chipa, sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hrottalega nauðgun, verði ekki gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans í Hæstarétti líkt og farið var fram á. Ástæðan er dráttur á upplýsingum frá héraðsdóminum sem var óskað eftir í sumar. 4.11.2009 18:03
McDonalds vill ekki koma aftur - of flókið rekstrarumhverfi Forsvarsmenn skyndibitakeðjunnar McDonalds, segjast ekki hafa neinar fyrirætlanir um að snúa aftur til Íslands eftir að þremur McDonalds stöðum var lokað nú um mánaðamótin. Þetta kemur fram á fréttasíðunni Foodweek.com.au. 4.11.2009 17:50
Umferðaróhapp við Gullinbrú Umferðaróhapp varð fyrir stundu við Gullinbrú. Sjúkrabíll hefur verið sendur á vettvang. Samkvæmt varðstjóra eru tildrög slyssins enn óljós og ekki hægt að gefa nánari upplýsingar að svo stöddu. 4.11.2009 20:25
Þróar fimmhjóla rafmagnsbíl sem ekur til hliðar Íslenskur hugvitsmaður hefur tryggt sér einkaleyfisvernd á beygjubúnaði rafmagnsbíls sem getur ekið til hliðar inn í bílastæði. 4.11.2009 19:00