Fleiri fréttir

Árni skilaði einn ekki uppgjöri

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er eini þingmaðurinn sem skilaði ekki inn fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar vegna þátttöku í prófkjöri eða forvali vegna þingkosninganna í vor.

Hælisbeiðni Hosmany hafnað

Útlendingastofnun hefur hafnað hælisumsókn brasilíska lýtalæknisins Hosmany Ramos. Hann hyggst kæra niðurstöðuna. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið tekur innan skamms afstöðu til beiðni yfirvalda í Brasilíu sem vilja að Hosmany verði framseldur til heimalandsins.

Samninganefnd vegna ESB skipuð

Utanríkisráðherra hefur skipað samninganefnd Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Pínulítið grunsamlegt?

Það hugsaði enginn neitt sérstaklega út í tímasetningu á laugardaginn þegar mexíkóski borgarstjórinn Mauricio Fernandes sagði í ræðu við embættistöku sína að helsti andstæðingur hans Hector Saldana hefði fundist látinn í Mexíkóborg.

Benda á fjarveru Dags

Fjarveru Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í skipulagsráði Reykjavíkur, á fundum ráðsins má rekja til þess að hann er formaður Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram í bókun fulltrúa Framsóknarflokks- og Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði um mætingu Sigmundar Davíðs á fundi ráðsins. Fulltrúar meirihlutans telja réttast að Samfylkingin byrji á sjálfri sér í þessum efnum vilji flokkurinn að reglur um mætingarskyldu séu skýrari. Þeir benda á fjarveru Dags B. Eggertssonar, borgarfulltrúa og varaformanns Samfylkingarinnar, málinu sínu til stuðnings.

Íslenskt flugfélag flýgur með flóttamenn til Íraks

Flugvél íslenska leiguflugfélagsins Primera Air, sem áður hét JetX, flaug í morgun með íraska flóttamenn frá Danmörku til Íraks fyrir dönsku lögregluna, eftir því sem fullyrt er á fréttavefnum Smugunni

Birkir Jón: Svik Samfylkingarinnar

Samfylkingin hefur ekki fylgt eftir kosningaloforðum sínum og svikið fjölda fólks á landsbyggðinni. Þetta kom fram í máli Birkis Jóns Jónssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf án staðsetningar. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að það væri eindregin vilji stjórnvalda að sem flest störf standi fólki til boða, ekki síst á landsbyggðinni.

Gleymdu að setja niður hjólin

Tveir flugmenn hjá ástralska flugfélaginu Quantas hafa verið leystir frá störfum meðan rannsókn stendur yfir á því hvers vegna þeir settu ekki hjól Boeing 767 þotu sinnar niður fyrir lendingu í Sydney.

Þingmenn VG styðja frumvörp um persónukjör með fyrirvara

Þingflokkur Vinstri grænna styður frumvörp um persónukjör til Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga með fyrirvara. Þetta kom fram í máli Atla Gíslasonar, þingmanns VG, á þingfundi í dag. Það var Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem innti Atla eftir afstöðu þingflokksins. Athygli vakti í gær að enginn þingmaður Vinstri grænna tók þátt í umræðum um frumvörpin þegar fyrsta umræða um frumvörpin fór fram í gærkvöldi.

Bygging nýs Landspítala hefst 2011

Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir við byggingu nýs Landspítala hefjist á síðari hluta árs 2011 og standi fram á árið 2016, samkvæmt viljayfirlýsingu sem fulltrúar lífeyrissjóðanna og fulltrúar ríkisstjórnarinnar undirrituðu í dag.

Fimm þúsund hafa sagt nei takk við Árna Pál

Fjöldi þeirra sem hafa afþakkað greiðslujöfnunarúrræði ríkisstjórnarinnar hjá Íbúðalánasjóði var kominn í 4.700 núna um hádegið. Fólk sem ekki ætlar að nýta sér úrræðið sem Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti á dögunum, hefur frest til 20. nóvember næstkomandi að tilkynna um það, vegna gjalddaga í desember.

Gatnamót lokuð í nótt

Í nótt verða gatnamót Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar lokuð, nema að því leyti að akreinar fyrir hægri beygju verða opnar. Áætlað er að gatnamótin verði opnuð að nýju fyrir klukkan sex í fyrramálið. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi lokun kann að valda.

Komu saman við Vogaafleggjara

Undirbúningshópur Keflavíkurgöngunnar 2009 kom saman við Vogaafleggjara í hádeginu ásamt bæjarstjórum og oddvitum í bæjarmálunum af svæðinu. Undirbúningshópurinn saman stendur af hópi Suðurnesjamanna með ólíkar stjórnmálaskoðanir. Ætlunin er að vekja athygli á atvinnumálum á Suðurnesjum.

Vopnaflutningaskip hertekið

Ísraelski flotinn hefur hertekið vopnaflutningaskip um 160 kílómetra undan ströndum landsins. Það var dregið til hafnar í Ísrael.

Auðveldar ríkjum að segja sig úr ESB

Auðveldara verður fyrir ríki að segja sig úr Evrópusambandinu eftir að Lissbon-sáttmálinn tekur gildi, en síðustu hindrun í vegi gildistökunnar var rutt burt í gær þegar Tékkar staðfestu sáttmálann. Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjóra verða til með sáttmálanum.

Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerkin í ár

Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerki Íslandspósts í ár. Bessastaðakirkja er með elstu steinbyggingum landsins en hún var vígð árið 1796. Um miðja síðustu öld var svo sett steint gler í glugga kirkjunnar í tilefni af sextugsafmæli Ásgeirs Ásgeirssonar þáverandi forseta. Alls eru gluggarnir átta en á þeim er trúarsaga Íslendinga rakin. Frímerkin koma út á morgun.

Gylfi: AGS stýrir ekki Íslandi

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki fara með stjórn efnahagsmála á Íslandi, eins og margir þingmenn og fleiri hafa gefið í skyn. Sjóðurinn sé í samstarfi við Íslendinga að beiðni íslenskra stjórnvalda.

Mansalsmál: Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm Litháum og einum Íslendingi síðar í dag, en þeir hafa setið í varðhaldi í tengslum við rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi, meðal annars mansali og tryggingarsvikum.

Grafarvogsbúar funduðu um framtíðina

Samgöngumál og íþróttir og útivist voru íbúum Grafarvogs efst í huga á opnu húsi í Foldarskóla í gær um framtíðarskipulag hverfisins. Þetta var þriðja opna húsið af 10 sem Skipulags- og byggingarsvið efnir til í hverfum borgarinnar í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.

Festi hendi í hakkavél

Sjúkralið og lögregla voru kölluð að Krónunni í Lindahverfi í Kópavogi um tuttugu mínútur í tíu í morgun þegar starfsmaður festi hendi í hakkavél. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni varð slysið í kjötborði í versluninni. Vinnueftirlitið rannsakar nú málið. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um líðan starfsmannsins.

Barnaníðingur krossfestur

Dómstóll í Saudi-Arabíu hefur staðfest þann dóm yfir barnaníðingi þar í landi að hann skuli krossfestur.

Fimm breskir hermenn drepnir í Afganistan

Afganskur lögreglumaður skaut fimm breska hermenn til bana í Helmand-héraðinu í Afganistan síðdegis í gær og hefur breska varnarmálaráðuneytið hafið rannsókn á málinu. Þar með hafa 94 breskir hermenn fallið á þessu ári sem er það mesta á einu ári síðan í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum þremur áratugum. Alls hafa 229 breskir hermenn nú látist í Afganistan frá því stríðið þar hófst árið 2001.

Þrefalda sekt fyrir vændiskaup

Frá og með deginum í dag hækkar sekt fyrir að kaupa vændi í Osló upp í 546 þúsund íslenskar krónur. Það er nærri þreföldun.

Bergur ráðinn til þingflokks VG

Bergur Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hann tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót.

Á fjórða tug sagt upp í hópuppsögnum

Vinnumálastofnun bárust 2 hópuppsagnir í oktobermánuði, þar sem sagt var upp 34 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og er ástæðan verkefnaskortur.

Repúblikanar hrósa sigri

Bandaríski Repúblikanaflokkurinn fagnar því ákaft að hafa unnið tvo stórsigra í ríkisstjórakosningum.

Vilja fresta aftöku Muhammads

Lögmenn Johns Allen Muhammad, sem dæmdur var til dauða fyrir þátt sinn í leyniskyttumorðunum í Maryland, Virginíu og Washington haustið 2002, hafa beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta aftökunni, sem er á dagskrá 10. nóvember, á þeirri forsendu að hann eigi við geðræn vandamál að stríða og hafi auk þess fengið ófullnægjandi vörn við réttarhöldin.

Dómari sá aumur á kynskiptingi

Breskur kynskiptingur á sextugsaldri slapp við fangelsisdóm eftir að dómari sá aumur á honum vegna erfiðrar ævi. Thea Cox, sem þó var fædd sem Timothy, gekkst undir kynskiptaaðgerð fyrir 26 árum.

Fjögur lík í viðbót hjá Cleveland-morðingja

Lögregla í Cleveland í Ohio hefur fundið fjögur lík til viðbótar á heimili Anthony Sowell, dæmds nauðgara og grunaðs fjöldamorðingja, en lík sex kvenna fundust þar í síðustu viku.

Þrjú innbrot í nótt

Brotist var inn í Sjónvarpsmiðstöðina í Síðumúla um klukkan tvö í nótt. Þjófurinn braut rúðu til að komast inn og var hann horfinn á braut áður en lögreglu bar að garði. Ekki er ljóst hvort hann hafi stolið einhverju en lögregla handtók mann skömmu síðar grunaðan um verknaðinn. Hann er nú í haldi og bíður yfirheyrslu.

Sjö prósent beiðna hefur verið hafnað

Af þeim 318 beiðnum sem dómstólum hafa borist um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar hafa 215 verið samþykktar, 14 verið hafnað og 12 verið afturkallaðar. 77 eru óafgreiddar.

Fyrirtæki vega þungt í erlendum skuldum

Erlendar skuldir þjóðarbúsins eru hærri en áður hafði verið talið en þó ekki úr takti við það sem gerist í öðrum þróuðum ríkjum. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og birt var í gær. Skuldabyrðin sem bæst hefur við frá síðasta mati nemur 92 prósentum af áætlaðri þjóðarframleiðslu þessa árs, eða sem nemur 10,9 milljörðum dollara, eða um 125 milljörðum króna.

Samráð við UNESCO um Valhallarreitinn

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mun koma að ákvörðun um framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð á Þingvöllum.

Værum berskjaldaðri án Schengen

Með aðgangi að alþjóðlegum gagnabönkum í krafti Schengen-aðildar geta yfirvöld nálgast margvíslegar upplýsingar sem gagnast þeim í baráttunni við erlenda glæpahringi.

Lonely Planet setur Ísland í toppsætið

Lonely Planet, umsvifamesti útgefandi ferðabóka í heiminum, setur Ísland í efsta sæti á lista yfir þá staði sem hagkvæmast er að ferðast til á næsta ári. Þetta kemur fram í nýjustu ferðabók útgefandans, Best in Travel 2010.

Stakk mann með hnífi

Nær sextugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega árás. Hann stakk annan mann með hnífi ofarlega í framanverðan brjóstkassa. Fórnarlambið hlaut þriggja sentimetra langan skurð nokkru neðan við vinstra viðbein. Atvikið átti sér stað á Akureyri í júní.

Ýmsar upplýsingar komnar fram

Gert er ráð fyrir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum krefjist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm Litháum og einum Íslendingi, að sögn Jóhannesar Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Suðurnesjum. Mennirnir hafa verið í einangrun vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi, þar á meðal meintu mansali og tryggingasvikum.

Sjá næstu 50 fréttir