Innlent

Sportbát og tveimur vélhjólum stolið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að sportbáti sem var stolið í sumar. Báturinn er af gerðinni Quick Silver en hann var tekinn úr Reykjadal við Reykjaflöt. Þá leitar lögreglan einnig að auðþekkjanlegu mótorhjóli.

Það er rautt á litinn og er af gerðinni American Ironhors Texas Chopper, skráningarnúmer VH983. Því var stolið úr Rósarima í Reykjavík í sumar.

Þá var svo kallaður krossari tekinn ófrjálsri hendi frá Naustabryggju í Reykjavík í haust. Það er af gerðinni Yamaha YZ 450OF, skráningarnúmer YK768.



Lögreglan biður alla þá sem geta gefið upplýsingar um þjófnaðina að hafa samband við lögreglustöðina á Völuteigi 8 í Mosfellsbæ í síma 444-1190 á skrifstofutíma. Meðfylgjandi eru myndir af mótorhjólunum og sportbátnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×