Fleiri fréttir

Líkti Fjármáleftirlitinu við engla

Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, líkti Fjármálaeftirlitinu við engla í ávarpi sem hún flutti á ráðstefnu eftirlitsins í janúar árið 2005. Á sömu ráðstefnu sagði Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, eftirlitsaðila með fjármálastarfsemi hér á landi vera jafn kraftmikla og eftirlitsstofnanir í Lúxemborg.

Innbrotsþjófar á unglingsaldri drepnir

Eigandi einbýlisshús í Texas í Bandaríkjunum skaut tvo 16 ára unglinga til bana, og særði annan lífshættulega, þegar ungmenninn brutust inn á heimili hans í dag. Fjórði unglingurinn komst ósærður undan. Ekki er vitað hvað þeim gekk til.

Nýjar leiðbeiningar um fjarvistir vegna veikinda af völdum svínaflensu

Með hliðsjón af nýjum upplýsingum er einstaklingum sem taldir eru vera með sýkingu af völdum H1N1 inflúensu, eða svínaflensu, ráðlagt að halda sig heima í tvo daga eftir að þeir verða hitalausir, að fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Þar segir ráðleggingarnar séu gefnar til að reyna að draga úr líkum á smiti í samfélaginu.

Stúdentar fordæma niðurskurð menntamálaráðherra

Stúdentaráð Háskóla Íslands fordæmir fyrirhugaðan niðurskurð menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, til Háskóla Íslands á komandi skólaári. Á álykun ráðsins segir að ljóst sé að niðurskurðurinn muni koma hart niður á Háskólasamfélaginu og fela í sér verulega skerta þjónustu og lakari menntun.

Ráðherra kallar eftir upplýsingum um mál Landsvirkjunar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, mun á næstu dögum óska eftir frekari upplýsingum vegna skipulagstillögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, líkt og kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Það er gert í ljósi úrskurðar samgönguráðuneytisins um að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu sveitarfélagsins vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Í samtali við fréttastofu sagðist Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, telja þetta vera nýja túlkun á lögum.

Ekki hægt að bera kennsl á mörg líkanna

Uppundir 100 manns féllu þegar orrustuþotur NATO gerðu árás á tvo olíubíla sem Talibanar höfðu rænt í Afganistan. Óljóst er hvort óbreyttir borgarar voru á meðal þeirra. Mörg líkanna voru svo illa brunnin að ekki var hægt að bera kennsl á þau.

Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi fer fram í kvöld

Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi verður haldið á veitingastaðnum Sólon í kvöld. Átta norskir pókerspilarar og einn íslenskur munu keppa um laust sæti á pókermóti í Litháen þar sem tugmilljónir króna eru í boði fyrir sigurvegarann.

Kannast ekki við samkomulag um áhættusæknari fjárfestingar

Enginn stjórnarmaður hjá Styrktarsjóði hjartveikra barna kannast við að hafa undirritað nýjan samning við Landsbankann, sem heimilaði áhættusæknari fjárfestingar með fjármuni sjóðsins. Stjórnin undirritaði hins vegar viðauka, þar sem bankanum er heimilað að fjárfesta í erlendum gjaldeyri - þar er hins vegar tekið fram að 90% peninganna skuli varið í ríkisbréf.

Óttast að læknar og hjúkrunarfræðingar flýi land

Framkvæmdastjóri Lækninga á Landspítalanum útilokar ekki að nýútskrifaðir læknar og hjúkrunarfræðingar muni flýja land. Þá er ljóst að spítalinn mun ekki geta endurnýjað tækjakost sinn á næstu árum vegna stórfellds niðurskurðar.

Forstjóri Landsvirkjunar: Við brutum ekki lög

Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað að Landsvirkjun hafi brotið lög með því að greiða fyrir skipulag vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Forstjóri Landsvirkjunar telur þetta nýja túlkun á lögum.

Fjórðung af erlendum skuldum þjóðarbúsins má rekja til Björgólfs

Björgólfur Thor Björgólfsson ber ábyrgð á um fjórðungi af erlendum brúttóskuldum íslenska þjóðarbúsins án bankanna, um eitt þúsund milljörðum króna. Viðskiptaráðherra og aðalhagfræðingur Seðlabankans segja fjarstæðukennt að halda því fram að Ísland stefni í greiðsluþrot.

Stækkunarstjóri ESB á opnum fundi

Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, heimsækir Ísland í næstu viku. Hann mun meðal annars halda erindi á opnum fundi næstkomandi miðvikudag um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsókn Íslendinga að sambandinu.

Annasamt hjá sjúkraflutningamönnum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur haft í nógu að snúast í dag og farið í rúmlega 60 sjúkraflutninga frá því klukkan átta í morgun. Að meðaltali þurfa sjúkraflutningamenn að sinna á bilinu 30 til 40 slíkum útköllum á hverri dagvakt sem er á frá klukkan átta á morgnanna til átta á kvöldin.

Innri endurskoðun skoðar mál Ólafs

Stjórn Frjálslynda flokksins hefur borist tilkynning frá Reykjavíkurborg um að máli Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa, hafi verið vísað til innri endurskoðunar borgarinnar. Frá þessu er greint á vef Frjálslynda flokksins

Gígjökulslys: Áverkar ekki lífshættulegir

Líðan konunnar sem slasaðist við Gígjökul í dag er eftir atvikum góð, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans. Hún er með höfuðáverka en ekki er talið að þeir séu lífshættulegir.

Metfjöldi erlendra ferðamanna

Um 92 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum ágústmánuði, átta þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári sem þá var met. Erlendum gestum fjölgar því um 9,6% milli ára. Brottförum Íslendinga fækkaði hins vegar um tæp 40%, voru um 24 þúsund í ágúst í ár en um 39 þúsund á árinu 2008, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu.

Brasilískur flóttamaður frjáls eftir viku

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglustjórans í Reykjavík að brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann lyki 30 daga afplánun sem hann hlaut fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns.

Óttast að maður hafi höfuðkúpubrotnað við Gígjökul

Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, fyrir stundu vegna manns sem slasaðist við Gígjökul, sem er skriðjökull sem er í norðanverðum Eyjafjallajökli. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu er talið að maðurinn hafi höfuðkúpubrotnað þegar hann varð fyrir grjóthruni.

Lögreglustjórinn var fyrstur manna á vettvang

Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut við Skaftahlíð um klukkan tvö í dag. Að sögn lögreglunnar voru bílarnir í vesturátt. Fólkið slasaðist minniháttar sjúkrabíll var sendur á staðinn til öryggis. Það vakti athygli vegfarenda að Stefán Eiríksson lögreglustjóri var fyrstur lögreglumanna á vettvang og tók þátt í hefðbundnum verkefnum lögreglunnar sem falla til við þessar aðstæður.

Landsvirkjun braut lög með greiðslum

Landsvirkjun braut lög með því að greiða fyrir skipulagsvinnu Flóahrepps, vegna virkjana í Neðri-Þjórsá. Þetta kemur fram í úrskurði samgönguráðuneytisins. Samkvæmt úrskurðinum er engin heimild í lögum fyrir því að Landsvirkjun greiði sveitarfélögum fyrir vinnu við aðalskipulag.

Landspítalinn sker niður um 2,8 milljarða á þessu ári

Landspítalinn þarf að skera niður um 2,8 milljarða króna á þessu ári. Stjórnendur Spítalans funduðu með starfsmönnum í morgun til að kynna væntanlegar niðurskurðaraðgerðir. Framkvæmdastjóri Lækninga á Landspítalanum á ekki von á því að þjónusta muni skerðast á þessu ári.

Alþjóðahús er ekki lokað

Þar sem þess misskilnings gætir að Alþjóðahús hafi hætt starfsemi , er því hér með komið á framfæri að allir þættir í starfsemi hússins eru starfandi að fullu samkvæmt tilkynningu sem barst frá Alþjóðhúsinu.

Stjórnvöld verða að grípa strax til aðgerða

Stjórnvöld verða að horfast í augu við slæma skuldastöðu og grípa til aðgerða strax, segir Gunnar Tómasson hagfræðingur og fyrrverandi starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í aldarfjórðung.

Gera ráð fyrir 400 þúsund bólusetningum vegna flensu á Íslandi

Inflúensa A eða svokölluð svínaflensa hefur verið staðfest alls staðar á landinu nema í Vestmannaeyjum. Alls hafa 173 tilfelli af inflúensunni verið staðfest með sýnatöku hérlendis. Tilfellunum hefur farið fækkandi og er skýringin mögulega sú að sýnatökum er að fækka.

Bjössi fær nýtt búr

Ísbirnirnir í dýragarðinum í Kaupmannahöfn fá nýja gryfju til að hreiðra sig um í árið 2012. Dýrin fá gryfjuna að gjöf frá góðgerðarsamtökum í tilefni af 150 ára afmæli dýragarðsins eftir því sem fram kemur í Berlingske Tidende.

Leigubílaskýlið flutt úr Lækjargötunni

Til stendur að flytja leigubílaskýlið sem staðið hefur við Lækjargötu í Reykjavík yfir í Hafnarstræti og mun það standa fyrir framan hús nr. 16. Samkvæmt upplýsingum frá hverfisstöð Reykjavíkurborgar við Njarðargötu er gert ráð fyrir að nokkursskonar samgöngumiðstöð verði á planinu við Hafnarstræti og þótti því eðlilegt að flytja skýlið. Það er rétt að skemmtanaglaðir Reykvíkingar hafi þetta í huga í framtíðinni því líkur eru á að þeir grípi í tómt ef þeir ætla sér að freista þess að ná í leigubíl í Lækjargötunni í framtíðinni.

NATO gerði loftárás á stolna flutningabíla

Um 90 manns eru ýmist slasaðir eða látnir eftir að orrustuvélar á vegum NATO gerðu loftárás snemma í morgun á tvo eldsneytisflutningabíla sem stolið hafði verið í norðurhluta Afganistan.

Viðkvæmur sannleikur um Arctic Sea

Rússneskur blaðamaður hefur flúið heimaland sitt eftir að hafa vakið athygli á hinu dularfulla máli flutningaskipsins Arctic Sea.

Stöðugleikasáttmálinn var ekki grín

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins minnir stjórnvöld á að stöðugleikasáttmálinn hafi ekki verið undirritaður upp á grín og að brýnt sé að koma verkefnum af stað.

Hið ameríska jihad

Bandaríkjamaður um tvítugt er fyrir rétti, ákærður fyrir morð og mannrán sem hann segist hafa framið til dýrðar Allah.

Óvíst hvar Jackson hvílir til frambúðar

Óljóst er hvort Forest Lawn-kirkjugarðurinn í Glendale í Kaliforníu verður hinsti hvílustaður poppgoðsins Michales Jackson. Jarðneskar leifar hans munu þó að minnsta kosti hvíla þar fyrst um sinn en athöfnin fór fram í gærkvöldi.

Nálgast lokastig auðgunar

Norður-Kóreumenn eru að nálgast lokastigið í því ferli að auðga úran og plútón og koma þessum efnum í það ástand að þau verði nothæf til gerðar kjarnavopna.

Tannlæknir hótaði Sarkozy lífláti

Tannlæknir og arkitekt eru meðal ellefu manna sem handteknir voru í gær, grunaðir um að hafa sent Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og átta frönskum ráðherrum líflátshótanir.

Bretland síðast úr krumlum kreppunnar

Bretland verður síðasta stóra hagkerfi heimsins sem losnar úr viðjum fjármálakreppunnar, ef marka má spár OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu.

Aldrei meiri umferð á þjóðvegum

Umferð á þjóðvegum landsins var meiri í sumar en nokkru sinni fyrr, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Heldur dró úr umferð í fyrrasumar og var það meðal annars rakið til bensínhækkana.

Bruggverksmiðja í heimahúsi

Lögreglan á Suðurnesjum gerði upptæka stórtæka bruggverksmiðju í heimahúsi í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þar fundust 40 lítrar af tilbúnum landa og 300 lítrar af gambra, ásamt áhöldum og tækjum til bruggunar og átöppunar.

Tekinn tvisvar á sama klukkutíma

Ökumaður var tekinn tvisvar á sama klukkutímanum í nótt fyrir of hraðan akstur. Annars vegar á Breiðholtsbraut á hundrað kílómetra hraða og hins vegar á Reykjanesbraut á 110 kílómetra hraða.

Lentu í árekstri undir áhrifum

Tveir voru fluttir á slysadeild og síðan í fangageymslur eftir árekstur tveggja bíla á Nýbýlavegi í nótt. Mennirnir voru í öðrum bílnum, en ökumann hins bílsins sakaði ekki.

Forstjórinn segir þörf á hörðum aðgerðum

Reynt verður eftir fremsta megni að komast hjá uppsögnum á Landspítalanum þótt mikill niðurskurðir blasi við. Þetta segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, sem mun funda með starfsfólki spítalans í dag. Þó sé líklegt að starfshlutfall verði skert eða vöktum breytt.

Sjá næstu 50 fréttir