Innlent

Stækkunarstjóri ESB á opnum fundi

Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu.
Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu.
Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, heimsækir Ísland í næstu viku. Hann mun meðal annars halda erindi á opnum fundi næstkomandi miðvikudag um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsókn Íslendinga að sambandinu.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, opnar fundinn sem haldinn er á vegum Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, stýrir fundinum.

Fundurinn fer fram eins og áður sagði næstkomandi miðvikudag. Hann fer fram í Norræna húsinu og hefst klukkan 10:30. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum, að fram kemur í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×