Innlent

Lögreglustjórinn var fyrstur manna á vettvang

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stefán Eiríksson tekur þátt í aðgerðum lögreglunnar á vettvangi óhappsins. Mynd/ Vilhelm.
Stefán Eiríksson tekur þátt í aðgerðum lögreglunnar á vettvangi óhappsins. Mynd/ Vilhelm.
Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut við Skaftahlíð um klukkan tvö í dag. Að sögn lögreglunnar voru bílarnir í vesturátt. Fólkið slasaðist minniháttar sjúkrabíll var sendur á staðinn til öryggis. Það vakti athygli vegfarenda að Stefán Eiríksson lögreglustjóri var fyrstur lögreglumanna á vettvang og tók þátt í hefðbundnum verkefnum lögreglunnar sem falla til við þessar aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×