Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stöðvaður á yfir 190 kílómetra hraða Ökumaður á vélhjóli var stöðvaður eftir að hann hafði mælst á 192 kílómetra hraða á þjóðvegi 1, rétt austan við Selfoss eftir hádegið í dag. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Maðurinn verður ákærður vegna athæfisins enda sagði lögreglumaður á Selfossi í samtali við Vísi að hraðinn væri það mikill að hann væri búinn að sprengja alla „sektarskala". 3.9.2009 17:36
Aksturstími til Ísafjarðar styttist um eina og hálfa klukkstund Samgönguráðherra vígði í dag eina tignarlegustu brú landsins, bogabrúna yfir Mjóafjörð. Aksturstími að vetri milli Reykjavíkur og Ísafjarðar styttist um eina og hálfa klukkustund með samgöngumannvirkjum sem eru að komast í gagnið. 3.9.2009 19:02
Flæmdur frá heimalandi sínu Mikhail Voitenko blaðamaður hefur flúið Rússland vegna ásakana hans um að Arctic Sea, skipið sem menn telja að hafi verið rænt í júlí, hafi verið í vopnaflutningum. Voitenko segir að honum hafi verið sagt að flýja frá landinu eða eiga hættu á handtöku. 3.9.2009 17:22
Þiggja á annað hundrað milljóna króna frá OR Ráðgjafarfyrirtækið Arctica Finance, sem er í eigu fyrrverandi starfsmanna Landsbankans, þiggur á annað hundrað milljóna króna, fyrir ráðgjöf til Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið fær peningana fyrir að finna kaupanda að hlut Orkuveitunnar í HS orku. 3.9.2009 19:00
Jóhanna skrifaði starfsbræðrum bréf vegna Icesave Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi starfsbræðrum sínum í Bretlandi og Hollandi bréf í síðustu viku vegna samþykktar Alþingis á lögum um ríkisábyrgð í tengslum við Icesave samningana. Óskaði Jóhanna atbeina þeirra til að ná fram farsælli lausn að því er varðar Icesave málið og fjallaði um hugsanlega fundi forsætisráðherranna. 3.9.2009 17:47
Meintur tóbaksþjófur áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem var handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum í Árbæ í fyrrakvöld en þeir eru grunaðir um að hafa brotist inn í verslun í Hraunbæ. 3.9.2009 16:35
Ekið á níu ára stúlku Ekið var á gangandi vegfarendur á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Níu ára stúlka varð fyrir bíl á Rauðalæk síðdegis og var hún flutt á slysadeild. 3.9.2009 16:08
Reyna að bæta skuldastöðu einyrkja Stjórnvöld kanna sérstaklega hvernig unnt er að bæta skuldastöðu einyrkja sem eiga í miklum greiðsluerfiðleikum. Margir þeirra hafa lagt allt undir, bæði atvinnurekstur og heimili. 3.9.2009 16:06
Grunaður yfirheyrður vegna vídeóleigubruna Maður hefur verið yfirheyrður vegna brunans í Laugarásvídjói síðustu helgi. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns, var maðurinn látinn laus eftir yfirheyrslur en rannsóknin heldur áfram. 3.9.2009 15:30
Fleiri greinast með svínaflensu Alls hafa 168 greinst með svínaflensu (H1N1) vegna sýkingu á Íslandi sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala, samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Þar af eru 92 karlar og 76 konur. Í síðustu viku höfðu 162 greinst með flensuna. 3.9.2009 14:59
VG vilja einkavæða bílastæðahús borgarinnar Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykkti tillögu VG á fundi borgarráðs í dag um könnun á kostum þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu hinsvegar fyrirvara við málið og sátu hjá. 3.9.2009 14:43
Ásættanleg niðurstaða fyrir borgina Niðurstaðan eftir rúmlega hálfs árs söluferli Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS Orku er góð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og eigendur hennar, að fram kemur í tilkynningu frá borginni. Borgarfulltrúar meirihlutans styðja söluna. 3.9.2009 14:21
Lögðu fram á þriðja tug fyrirspurna varðandi HS Orku Fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu fram á þriðja tug fyrirspurna varðandi söluna á HS Orku á fundi borgarráðs í dag. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í stjórn Orkuveitunnar, segir málið yfirgripsmikið og því hafi minnihlutaflokkarnir lagt fram fyrirspurnirnar. 3.9.2009 13:49
Blása til mótmælatónleika vegna Ingólfstorgs og Nasa Áhugahópur um björgun Ingólfstorgs hefur blásið til baráttutónleika sem verða haldnir á torginu á laugardaginn. 3.9.2009 13:10
Borgarráð frestar afgreiðslu á sölu HS orku Borgarráð Reykjavíkur hefur að ósk fulltrúa minnihlutans í ráðinu ákveðið að fresta um viku afgreiðslu á sölu á hlut Orkuveitur Reykjavíkur í HS Orku til Magma Energy. 3.9.2009 12:58
Flóttamenn handteknir við komuna til Íraks Íraska lögreglan hefur handtekið fimm flóttamenn sem dönsk yfirvöld sendu heim til Íraks í gær. Sautján flóttamenn sem einnig var flogið með til Íraks munu á leið til norðurhluta landsins þar sem vinir og vandamenn eru sagðir bíða þeirra. 3.9.2009 12:50
Flóahreppur fékk einnig greiðslur frá Landsvirkjun vegna skipulagsvinnu Flóahreppur, hefur eins og Skeiða- og Gnúpverjahreppur, fengið greiðslur frá Landsvirkjun vegna skipulagsvinnu. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir að greiðslur til sveitarfélaganna séu að öllu í samræmi við lög og vísar því á bug að þær séu óeðlilegar. 3.9.2009 12:28
Ísafjarðarleiðin að styttast um 72 kílómetra Byrjað verður eftir helgi að leggja klæðningu á Arnkötludalsveg en með honum hverfur síðasti ómalbikaði kaflann á leiðinni milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Verktakinn segir fátt geta komið í veg fyrir að vegurinn verði opnaður fyrir mánaðamót. Vestfirðingar fagna í dag vígslu Mjóafjarðarbrúar en með henni losna þeir við síðustu malarkaflana á Djúpvegi. 3.9.2009 12:09
Viðbrögð Hollendinga og Breta kynnt fjárlaganefnd Viðbrögð Hollendinga og Breta við fyrirvörum við Icesave ríkisábyrgðina verða kynnt fjárlaganefnd á fundi sem hefst nú á hádegi. 3.9.2009 11:59
Ekki mútugreiðslur „Þarna er lítið sveitarfélag að takast á við gríðarlega stórt verkefni sem kostar mjög mikið og það er ekkert óeðlilegt að það sé farið fram á það við framkvæmdaaðila að hann greiði kostnað sem fellur á sveitarfélagið," segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra virkjana. Ekki sé um mútugreiðslur að ræða. 3.9.2009 11:28
Fórnalömbin samúðarfull með starfsmanni á plani „Við finnum til með manninum. Hann þarf greinilega á hjálpa að halda,“ segir Kristjana Kristjánsdóttir en hún ásamt manni sínum, Raymond McQueen og vinafólki ætluðu að taka bensín á Olís í Norðlingaholti í gærdag. 3.9.2009 11:25
Tjá sig ekki um hugmyndir um skattahækkanir á álfyrirtæki „Við tjáum okkur ekki um þetta mál nema við fáum um það formlegt erindi frá stjórnvöldum,“ segir Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og upplýsingamála Alcoa Íslandi sem rekur álverið á Reyðarfirði, aðspurð um yfirlýsingar varaformanns fjárlaganefndar Alþingis sem vill að hærri skattur verði lagður á álfyrirtæki. 3.9.2009 11:20
Guðbjörg Jóhannesdóttir nýr prestur í Hafnarfirði Guðbjörg Jóhannesdóttir hefur verið valin prestur í Hafnarfjarðarprestakalli en embættið veitist frá 1.október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu. 3.9.2009 11:09
Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. 3.9.2009 10:40
Stálu barnavagni og heimabíói Tveir menn af erlendum uppruna voru dæmdir í 30 og 60 daga skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir að stela meðal annars barnavagni að andvirði 129 þúsund króna. 3.9.2009 10:29
Vilja stýra Borgarahreyfingunni Hópur fólks hefur tilkynnt um framboð í stjórn Borgarahreyfingarinnar en landsfundur hreyfingarinnar fer fram laugardaginn 12. september. Í hópnum eru meðal annars Valgeir Skagfjörð, varaþingmaður, og Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og einn af stofnendum hreyfingarinnar. 3.9.2009 09:56
Ögmundur: Skýrslan slær öll met í yfirlæti Heilbrigðisráðherra segir nýja skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) slá met í yfirlæti. Hann segir skýrslur stofnunnar unnar af einstaklingum sem upp til hópa aðhyllast hægri sinnaða markaðshyggju. Ráðherrann spyr hver greiði fyrir skýrsluna. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir einnig skýrsluna. 3.9.2009 09:11
Fjarskiptagervitungl komst ekki á sporbaug Indónesískt fjarskiptagervitungl, sem skotið var á loft frá Kína á mánudaginn, komst ekki á sporbaug eftir að hreyfill í þriðja þrepi burðarflaugar þess fór ekki í gang. 3.9.2009 08:37
Kínverjar sýna kjarnavopnin Kínverjar munu sýna kjarnavopn sín opinberlega á 60 ára afmæli Kommúnistaflokksins í haust. 3.9.2009 08:26
Atkins synjað um reynslulausn í átjánda sinn Konu úr glæpagengi Charles Manson hefur verið neitað í átjánda skiptið um reynslulausn. 3.9.2009 08:21
Geimrusl nálgast Alþjóðlegu geimstöðina Bandaríska geimferðastofnunin NASA fylgist nú grannt með torfu af geimrusli sem er margir metrar í þvermál og svífur um geiminn í nágrenni við Alþjóðlegu geimstöðina og geimskutluna Discovery sem nú er stödd við stöðina. 3.9.2009 08:19
Enn sverfur til stáls í Mexíkó Sautján eru látnir eftir að tólf grímuklæddir byssumenn réðust inn í meðferðarstöð í mexíkósku borginni Ciudad Juarez í gær, stilltu vistmönnum þar upp við vegg og hófu skothríð. 3.9.2009 08:17
Tala látinna á Jövu komin í 46 Tala látinna í indónesíska bænum Cianjur er kominn upp í 46 eftir að snarpur jarðskjálfti skók eyjuna Jövu í gær. Í kjölfar skjálftans féll aurskriða á bæinn og kaffærði ellefu heimili. 3.9.2009 08:12
Hugðust myrða samnemendur sína Tveir breskir unglingar lögðu á ráðin um að sprengja sprengju í verslunarmiðstöð í Manchester og fara því næst í skólann og skjóta eins marga samnemenda sinna til bana og þeir gætu. 3.9.2009 08:11
Skoska þingið leggst gegn ákvörðun MacAskill Skoska þingið felldi í gær með nokkrum meirihluta þá ákvörðun Kenny MacAskill dómsmálaráðherra að láta Lockerbie-sprengjumanninn Mohmed al Megrahi lausan. 3.9.2009 07:33
Slasaðist í álveri Kalla þurfti út menn fjá Björgunarfélagi Akraness til að ná niður manni sem hafði slasast uppi á 12 metra háu sílói í álverinu á Grundartanga í gær. Björgunarmennirnir bjuggu um hann í börum og létu hann svo síga niður, þar sem sjúkraflutningamenn tóku við honum og fluttu hann á sjúkrahúsið á Akranesi. Maðurinn mun ekki hafa slasast alvarlega. 3.9.2009 07:30
Fiskitorfa af óþekktri tegund Skipstjóri á síldveiðiskipi, sem var á leið til Vestmannaeyja í nótt, lóðaði á stóra fiskitorfu austur af Vestmannaeyjum. 3.9.2009 07:25
Bátur rann af vagni Ekki vildi betur til en svo, þegar menn voru að sjósetja bát á Kjalarnesi í gærkvöldi, að hann rann svo hressilega af vagninum að þeir misstu tök á honum og hann tók að reka á haf út. 3.9.2009 07:21
Hafnaði næstum í ánni Minnstu munaði að bíll færi út af Elliðaárbrúnni í Reykjavík og hafnaði ofan í ánni, þegar ökumaður missti stjórn á honum í gærkvöldi og bíllinn lenti á handriði, sem var um það bil að gefa sig þegar bíllinn nam staðar. 3.9.2009 07:18
Kartöfluuppskera framar vonum Kartöfluuppskera í Hornafirði er nú meiri en bændur muna til að hún hafi nokkurn tímann verið, að því er fram kemur á vef Hornafjarðar. 3.9.2009 07:08
Þjófar staðnir að verki í 10-11 Tveir unglingspiltar voru staðnir að búðahnupli í verslun 10-11 í Glæsibæ í nótt. Þegar starfsmaður sá til þeirra lögðu þeir á flótta og sluppu en skildu þýfið eftir. 3.9.2009 07:04
Yfir 2.000 fyrirtæki hafa verið stofnuð frá hruninu Ekkert lát er á stofnun nýrra fyrirtækja þrátt fyrir ískyggilega stöðu í efnahagslífinu. Forsvarsmenn atvinnulífsins telja sjálfsbjargarviðleitni atvinnurekenda og viðbrögð við atvinnumissi búa að baki. 3.9.2009 06:30
Óeirðadeildin fullmönnuð Flestir þeir lögreglumenn sem ákváðu að ganga úr óeirðadeild lögreglu í síðasta mánuði hafa nú gengið til liðs við hópinn á ný. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins töldu lögreglumennirnir sig hafa komið óánægju sinni á framfæri með því að hætta í mannfjöldastjórnunarhópi lögreglu, svokallaðri óeirðadeild. Því myndi ekkert frekar vinnast með því að halda sig utan við hópinn áfram. 3.9.2009 06:30
Ólga í Framsókn vegna Magma-sölu Bakland Framsóknarflokksins í Reykjavík virðist missátt við að Orkuveitan hafi gengið að kauptilboði Magma Energy. Formaður borgarráðs segir að þrýstingur frá óánægðu framsóknarfólki breyti ekki niðurstöðu málsins. 3.9.2009 06:15
Lést í vinnuslysi í Árbæ Karlmaðurinn sem féll af húsþaki við vinnu sína í Árbæjarhverfi var úrskurðaður látinn við komu á slysadeild á sjötta tímanum á þriðjudag. Maðurinn hét Gísli Ágústsson og var á fimmtugsaldri. Hann var til heimilis að Vagnhöfða 7 í Reykjavík. Gísli lætur eftir sig tvö börn. 3.9.2009 06:00